Bjarmi - 01.12.2010, Qupperneq 18
AGNES T. RAGNARSSON
Sögur um kynferðislega misnotkun meðal
framámanna innan kristinna safnaða, hafa tröllriðið
allri fjölmiðlaumræðu síðustu vikurnar og hefur kirkjan
skaðast verulega á þessari umræðu. Afleiðingin er meðal
annars sú að sífellt fleira fólk fyllist vantrú gagnvart
forstöðumönnum og kirkjuleiðtogum. Og það með réttu.
Ísíðasta tölublaði fjallaði Ragnar Gunn-
arsson um málefni kynferðislegrar
misnotkunar og hvernig kristin félaga-
samtök og kirkjur geta tekið á slíkum
málum eða forðast að lenda í þeim.
En málið ervíðfeðmara en kynferð-
isleg hneykslismál. Það er til nokkuð
sem kallast „hin vanhelga þrenning",
kynlíf, peningarog völd, nokkuð sem er
viðvarandi í hinu veraldlega samfélagi,
en á sér einnig stað innan kirkjunnar.
Misnotkun peninga er ekki síður
skaðleg kristnu samfélagi en óviðeig-
andi kynferðisleg hegðun. Hætta á
spillingu er raunveruleg, sérstaklega
vegna afbakaðra prédikana og sjón-
varpsprédikara, sem bjóða krafta-
verkalækningar fyrir stórar gjafir.
Kenneth Hagin eldri er vel þekktur
sem faðir velgengniguðfræðinnar, en
hún kennir m.a. að þeir sem gefi nógu
mikla peninga geti átt von á ríkulegum
launum bæði hér á jörð og á himnum.
í áranna rás hafa ýmsir fetað í fótspor
Hagins. En sjálfur reit Hagin bók, sem
kom út þrem árum fyrir andlát hans,
þar sem hann játar að sér hafi snúist
hugur hvað velgengniguðfræðina
varðar, skilaboðin um heilsu og auð-
æfi. I Midas - jafnvægisnálgun á hug-
takinu biblíuleg velgengni (gefin út af
Faith Library), tilgreinir Hagin nokkrar
kenningar um velgengni og endar með
því að segja að fjárhagsleg velgengni sé
á engan hátt merki um blessun Guðs.
í dag eru enn margar peninga-
plokksvélar í gangi (ekki síst í sjónvarpi),
þar sem því er haldið fram að líkamleg
lækning, bænasvar eða frelsun vinar,
séu líklegri, þegar peningagjöf fylgir.
Sumir prédikarar í Bandaríkjunum eða
18