Bjarmi - 01.12.2010, Blaðsíða 20
Madmaxer I Dreamstime.com
Sumir leiðtogar hafa týnt boðskapnum um kærleika Krists vegna græðgi.
safnaðarmeðlim alltaf til stórskaða
fyrir viðkomandi.
Því miður eru til mörg dæmi hér á
landi um leiðtoga sem hafa misnotað
aðstöðu sína og safnaðarmeðlimi sem
hafa beðið varanlegt tjón á sálu sinni
af þeim orsökum. Þannig frásagnir eru
þeim mun meira stuðandi þar sem
kristin trú er byggð á kærleika Guðs og
samfélagi við hann.
Afleiðingar þess konar misnotkunar
í kirkjunni eru þær sömu og annars
konar misnotkunar, sterk tilfinningaleg
viðbrögð og reiði. Allir sem upplifa
slíkt, einnig hér á landi, lýsa afleiðing-
unum sem vantrausti á kirkjunni eða
félagsskapnum sem í hlut á.
Meðal viðbragða við andlegri mis-
notkun er taugaveiklun og kvíði, sem
oft getur komið fram löngu seinna.
Afleiðingarnar geta einnig birst sem
sjálfsásökun, þunglyndi og jafnvel
sjálfsvígshugleiðingar. Stundum getur
það tekið fólk mörg ár að ná sér eftir
slíka misnotkun.
íslendingar eru ekki nógu meðvit-
aðir um þessi mál, sérstaklega ráð-
gjafar, sem taka ekki nógu alvarlega á
misnotkun af þessu tagi.
Kannanir í Bretlandi hafa sýnt að
þolendur andlegrar misnotkunar eru
oft skildir eftir óhæfir til að treysta
öðrum og Guði. Fólk álasar Guði,
þó hann komi þar hvergi nærri. Guð
grætur misnotkun meira en nokkur
annar.
Jesús sagði að sá sem vildi verða
mestur meðal manna, skyldi vera
þjónn allra (Lk 22:26). Hann sýndi
þetta líka á marga vegu með fordæmi
sínu og kennslu, völd og áhrif eru ekki
það sem heimurinn þarfnast. Hann
sýndi fordæmi í hinum auðmjúka, lít-
illáta manni, sem reið á ösnufola inn í
Jerúsalem. Meistarinn sem fór í þjóns-
Því miður eru til mörg dæmi
hér á landi um leiðtoga sem
hafa misnotað aðstöðu sína
og safnaðarmeðlimi sem
hafa beðið varanlegt tjón á
sálu sinni af þeim orsökum.
20