Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.09.2013, Qupperneq 5

Bjarmi - 01.09.2013, Qupperneq 5
„VIÐ LESTUR ÞESSARAR SOGU AFNÓA OG FLÓÐINU ER ÞAÐ EFTIRTEKTARVERT AÐ NÓI TEKUR ALDREITIL MÁLS. ÞAÐ ER ALLTAF GUÐ SEM TALAR OG FRAMKVÆMIR" söguna er að hafa gengið með Guði. Nói átti sögu með Guði í einrúmi áður en hann átti sér sögu á opinberum vett- vangi. í sínu nána samfélagi við Guð fékk hann innsýn í hvað er Guði þóknanlegt og hjarta hans umbreyttist þannig að það varð honum eðlilegt að hlýða Guði og elska hann. „Þetta er saga Nóa. Nói var réttlátur og vandaður maður á sinni tíð. Hann gekk með Guði" (I. Mós 6.9). Við lestur þessarar sögu af Nóa og flóðinu er það eftirtektarvert að Nói tekur aldrei til máls. Það er alltaf Guð sem talar og framkvæmir. Þetta snýst allt um áætlun, almætti og réttlæti Guðs en Guð tekur Nóa með sér í ráðagerð sinni. Hann segir honum frá hugsunum sínum og Nói sem hefur gengið með Guði treystir og hlýðir, því að hann þekkir Guð. Þegar Guð sagði Nóa að gera örkina þá gerði Nói allt eins og Drottinn bauð honum. Og Nói hlýddi þegar Guð sagði honum að ganga inn í örkina. Þetta var ekki trúarstökk út í bláinn því að Nói sem hafði gengið með Guði þekkti hann nógu vel til að vita að Guði væri treystandi. En Nói, fjölskylda hans og öll dýrin biðu í örkinni í sjö daga á þurru landi áður en nokkuð gerðist. Líklega hefur verið hlegið að þeim. Þetta hlýtur að hafa reynt á trú Nóa og hugsan- lega hefur hann spurt: „Ert þú sá sem þú segist vera, Guð?" Þegar Jóhannes skírari sat í fangelsi vöknuðu hjá honum spurn- ingar og hann lét spyrja jesú: „Ert þú sá sem koma skal eða eigum við að vænta annars?" (Lúk. 7.19) Jóhannes fékk svar þegar honum var sagt frá því sem Jesús væri að gera en hann fékk aldrei að sjá það með eigin augum. En Nói varð vitni að því hvernig Guð framkvæmdi allt eftir sinni áætlun og fékk staðfestingu á því að Guð stendur við orð sín. Guð deildi hugsunum sínum með Nóa og undirbjó hann fyrir dóm Guðs og valdi hann til að vera farvegur fyrir björgunina og nýtt líf í nýjum heimi. Guð sagði við Nóa: „Ég hef ákveðið endalok allra manna á jörðinni því að jörðin er full orðin af ranglæti þeirra vegna" (I. Mós 6.13). Jesús varaði einnig lærisveina sína við þegar hann sagði: „Eins og var á dögum Nóa, svo mun verða við komu Mannssonarins. Dagana fyrir flóðið átu menn og drukku, kvæntust og giftust allt til þess dags er Nói gekk í örkina. Og þeir vissu ekki fyrr en flóðið kom og hreif þá alla burt. Eins verður við komu Manns- sonarins. Þá verða tveir á akri, annar mun tekinn, hinn eftir skilinn. Tvær munu mala á kvörn, önnur verður tekin, hin eftir skilin" (Matt 24, 37-42). En sjálfur var Jesús farvegur Guðs fyrir björgun og frelsun mannanna. september 2013 5

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.