Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.09.2013, Blaðsíða 9

Bjarmi - 01.09.2013, Blaðsíða 9
var tamur frá yngri árum og fléttaði saman bæn og íhugun og persónulega tileinkun. Frœðin minni, sem urðu undirstaða fermingarkveranna í lútherskum kirkjum, hugsaði Lúther sem „leikmannabiblíu" með grundvallartrúartextum, svo sem boðorðunum 10, Faðir vorinu, postullegu trúarjátningunni o.fl. Þetta „kver" átti fólk að læra utan að. Tilgangur utanbókar- lærdómsins virðist þó oft hafa gleymst er fram liðu aldir svo úr varð stundum mein- ingarlítið stagl. Að læra fræðslu- og upp- byggingaref ni utan að var vissulega sjálf- sagðara fyrr á öldum þegar minna var um bækur og lestrarkunnátta fátíðari en á okkar dögum. í fábreytninni má einnig ætla að fátt hafi truflað þennan lærdóm miðað við allt þetta áreiti nútímans. En utanbókarlærdómurinn var ekki neyðarráðstöfun vegna bókaskorts eða ólæsi. Efnið var ekki aðeins hugsað til fræðslu, þó að hún hafi verið ómissandi grundvöllur. Frœðin voru jafnframt ekki síður hugsuð sem bæna- og íhugunar- bók - „daglegt brauð sálarinnar".2 í íhugunarhefðum miðalda (og vísast á öðrum tímum) var endurtekning heilags texta með opnu og biðjandi hugarfari, lykilatriði. Því var mikilvægt að hafa slíka texta handbæra í daglegu lífi þar sem varla var um það að ræða að hafa bók við höndina til fletta upp í. Endurtekningin átti heldur ekki að vera einhvers konar þululestur upp úr bók heldur að hljóma í huganum og snerta sífellt dýpri hugar- fylgsni. Sumir kannast við endurtekningu jesúbænarinnar, „Drottinn, jesús Kristur, miskunnaðu mér, syndaranum," sem dæmi um svipaða hefð. Og endurtekning bænaversa sem fólki eru töm getur vísað til sömu áttar. En þó að Lúther leggi áherslu á endurtekningu í bæn og íhugun þá varar hann við að ofþreyta sig við bæn.3 Ttytóendwt trúar lífai cdmú^ani En hvers vegna átti alþýðufólk, hinn strit- andi almúgi, að lesa Guðs orð, biðja og íhuga? Vissulega er bænin skoðuð sem andardráttur trúarlífsins og það, sérstak- lega miðað við áherslur Lúthers, hvílir á Biblíunni. En gleymum ekki bakgrunni Lúthers og almennum kristnum trúar- hefðum hans tíma. Bilið á milli presta og klaustrafólks annars vegar og almúgans hins vegar hafði breikkað mikið þegar komið var fram á daga Lúthers. Hin fyrr- nefndu voru talin guðlegrar stéttar, þeirra bjarmi september 2013 9

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.