Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.09.2013, Page 20

Bjarmi - 01.09.2013, Page 20
á orðunum „Auga fyrir auga ..." sem jesús vitnar til í Fjallræðunni (Matt 5.38). Þarna vitnar jesús til hins gamla lög- máls (2Mós 21.24) sem hann er ekki að hafna heldur hnykkja á er hann segir: „En ég segi yður: Rísið ekki gegn þeim sem gerir yður mein." Að ekki er um and- stæður að ræða sést vel af samanburði við nálæg vers. Ákvæðið um „auga fyrir auga og tönn fyrir tönn" er gamalþekkt í réttarhugsun Austurlanda nær, allt aftur til lagasafns Hammúrabís Babýloníu- konungs. Því er einmitt ætlað að koma í veg fyrir hefnd en ekki hvetja til hennar líkt og margir virðast álíta. Merking þessa gamla lagaákvæðis er, að refsing megi aldrei vera alvarlegri en afbrotið. Hefndin gengur jafnan, eins og kunn- ugt er, lengra en samsvarar afbrotinu. Vissulega var þetta ekki almennt skilið bókstaflega heldur að t.d. sektargreiðsla eða fangavist ætti ekki að vera þyngra inngrip heldur en afbrotið olli. jesús er því einmitt að taka undir þetta gamla ákvæði en óska eftir að enn lengra sé gengið í því að/fjarlægjast hefnd og hefndarhugarfar. Algengt dæmi um að fyrirfram- skilningur eða sannfæring fólks fái það til að lesa útúr textanum það sem það vill fá er kunn túlkun á orðum Páls postula í Fyrra Þessalóníkubréfi (5. 21). „Prófið allt, haldið því sem gott er." Til þessara orða heyrist vísað sem hvatningu til þess að kristið fólk eigi ekki að loka sig af frá virkri þátttöku í neins konar athafnasemi í þjóðfélaginu - fólk verði a.m.k. að prófa allt, taka þátt í hverju og einu (t.d. alls kyns skemmtanalífi). Þarna villist fólk á merkingarblæbrigðum sagnarinnar „að prófa" sem getur vissulega merkt að kynna sér einhverja starfsemi með því að taka þátt í henni. Samhengi skrifa Páls og innsýn í líf safnaðanna sem hann stofnaði bendir þó til að verið sé að fjalla um kenningarleg atriði. Samhengi þessa vers staðfestir það: „Slökkvið ekki and- ann. Fyrirlítið ekki spádómsorð. Prófið allt, haldið því sem gott er. En forðist allt illt í hvaða mynd sem er" (IÞess 5.19-22). Það er verið að fjalla um boðskap sem fluttur er í söfnuðinum og vara við því að samþykkja eitthvað sem ekki hefur verið sannreynt - borið saman við viðurkennd trúaratriði og samhljómur fyrir því stað- festur meðal þeirra sem andlegir voru taldir. Loks mætti nefna misskilning, á efni úr Biblíunni, sem varla verður kallaður misskilinn lestur hennar heldur fremur ímyndun um hvað í henni standi. Alkunna er t.d. að í sköpunarsögu fremst í Biblí- unni (Gamla testamentinu) sé ritað um 20 september 2013 bjarmi að Eva hafi bitið 1' forboðið epli og gefið manni sínum. En hvergi er minnst á epli í þessu sambandi í Biblíunni - aðeins getið um „ávöxt" af skilningstrénu (IMós 2 og 3). Löngum hefur einnig verið vitnað til biblíuversins: „Hóflega drukkið vín gleður mannsins hjarta." Þetta vers hefur ekki verið að finna í íslenskum biblíuútgáfum í nærri 200 ár (þó í biblíuútgáfum 1841 og 1859) - fyrr en þá að það kemur inn í Biblíuna frá 2007. í þessari nýjustu íslensku biblíu- útgáfu eru svokallaðar Apókrýfar bœkur Gamla testamentlsins auk hefðbundnari rita þess. í einni þessara „aukabóka", Síraksbók, er þetta vers (Sír 31.28 - orðalag breytt í nýrri þýðingu). En hvaðan höfðu íslendingar þá þetta orð- tak þegar það vantaði í Biblíuna. jú, það hefur verið sótt til Gríms meðhjálpara í skáldsögunni, Manni og konu, eftir Jón Thoroddsen. Þó að ekki hafi verið ætlunin að fjalla um biblíuþýðingar þá eiga slíkar þýðingar frá 19. öld skilið að fá svolitla uppreisn æru eftir háðið hér framar. i Biblíunni frá 1866 (og næstu útgáfum þar á undan) segir í 4. kafla Efesusbréfsins að Kristur hafi skipað postula, spámenn, guðspjallamenn [trúboða] hirða og læri- feður, „Svo hinir heilögu yrðu hæfilegir til framkvæmdasamrar þjónustu, Krists líkama til uppbyggíngar" (Ef 4.11,12). Hér skal því haldið fram að þetta sé efnis- lega betri þýðing en í síðari íslenskum biblíuútgáfum. Nú er 12. versið svona: „Þeir eiga að fullkomna hin heilögu og láta þeim þjónustu í té, líkama Krists til uppbyggingar." Skilninginn frá 19. öldinni styður fjöldi virtra erlendra biblíuþýðinga og jafnframt má benda á að gríska orðið sem í nýrri þýðingum verður „að full- komna" er heiti sem notað var í læknis- fræðinni um „að kippa í liðinn" eða að ganga frá beinbroti sem vísar til þess að gera óvirkan útlim virkan og starfhæfan.3 Hugsunin hlýtur að vera sú að byggja þurfi safnaðarfólk upp (gera það hæfttil þjónustu) svo að hver geti þjónað öðrum í kærleika og allur söfnuðurinn byggst upp - ekki aðeins að þjónusta einhverra fárra byggi allan söfnuðinn upp. ’Tihntn&rdr 1. Sjá Trúmaður á tímamótum - Ævisaga Har- alds Níelssonar, e. Pétur Pétursson, 2011 bls. 116,117 og 122. 2. The Subtle Power of Spiritual Abuse - Reco- gizing and Escaping Spiritual Manipulation and False Spiritual Authority Within the Church, e. David Johnson og Jeff VanVond eren, Befhany House Publishers, Minneapolis, 1991, bls. 81. 3. Sjá t.d. W. Barcley, The Letters to the Galatians 8 Ephesians, Saint Andrews Press 1976, bls. /49. bjarnil september 2013 21

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.