Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.09.2013, Blaðsíða 28

Bjarmi - 01.09.2013, Blaðsíða 28
arar og háskólastarfsmenn í ábyrgöar- stööum meö sameiginlegri yfirlýsingu í fjölmiðlum þar sem segir að gagnrýni hans sé sorglegur vitnisburður um þekk- ingarleysi á því hvaö felst í háskóla- kennslu á sviðum hug- og félagsvísinda. í ööru lagi gagnrýna vantrúarfélagar að ég skuli hafa stytt eina tilvitnun á glærunum og sett þar úrfellingarmerki. Þar er um aö ræöa tilvitnun í Matthías Ásgeirsson, einn af fimm stofnendum félagsins og helsta forystumann þess frá upphafi, þar sem hann segir: „Ég er oröinn þreyttur á trúmönnum sem [...] móögast svo þegar þeir eru kallaðir hálfvitar." Þetta er ein af nokkrum tilvitnunum þar sem sjá má hvernig forystumenn félagsins hafa beitt sér í trúmálaumræöunni. Aðal- atriðiö í þessari tilvitnun er aö Matthías sér ekkert athugavert við þaö aö kalla þá menn hálfvita sem hann telur veröskulda það en segist aö sama skapi þreyttur á þeim úr þeirra hópi sem móðgist fyrir vikiö. Ástæöan fyrir því hvers vegna hann telur þá verðskulda þetta er hins vegar á þessu stigi kennslunnar aukaatriði og því fellt út. Vantrúarfélagar halda því fram aö meö úrfellingarmerkinu hafi ég gert Matthías að meiri öfgamanni og rudda en hann sé. Ég tel þvert á móti að ef gagnrýna megi mig fyrir þessa úrfellingu þá sé þaö fremur fyrir þaö aö hafa gert hann þar eilítið yfirvegaðri. Textinn án úrfellingar er á þessa leið: „Ég er oröinn þreyttur á trúmönnum sem halda að þeir geti vaöið uppi í þessu samfélagi, hrópandi yfir- lýsingar í allar áttir. Hótandi mönnum heljarvist og eilífðarkvölum... og móög- ast svo þegar þeir eru kallaðir hálfvitar." Atferliö og trúaratriðin sem sögö eru réttlæta yfirlýsingu Matthíasar geta átt við um harla maryga. Þeir eru ófáir sem líta á sig sem truaða og lýsa ýmsu yfir opinberlega á grundvelli tjáningarfrelsis. Glötun með tilheyrandi táknfræði er ennfremur algengt trúarlegt sjónarmiö sem snýst um eilífa ábyrgð manna og getur haft víðtækt merkingarsviö sbr. t.d. karmalögmálið og heljarvist sem útslokknun eða þroskaferil. Vantrúar- félagar hafa reyndar sömuleiðis víða haldið því fram að með úrfellingunni sé Matthías ranglega látinn alhæfa um trúmenn að þeir séu allír hálfvitar. Mér er það hulin ráðgáta hvernig þeir geta lesið slika alhæfingu út úr tilvitnuninni því að tilvísunarfornafnið „sem" ein- skorðast hér augljóslega við þá eina sem auðsýna þau viðbrögð að móðgast við því að vera kallaðir hálfvitar. Um þetta eru þeir íslenskufræðingar sammála sem ég hef rætt við. Hitt er svo annað mál að úr texta Matthíasar má greina þá svart/hvítu heimsmynd að skipta megi mönnum í tvennt, annars vegar trúmenn og hins vegar trúlausa. Slík aðgreining er alhæfing sem auðveldlega má gagnrýna. Þriðja atriðið sem vantrúarfélagar gagnrýna mig fyrir er að hafa tekið orð- ræðu þeirra til umfjöllunar. Ein algeng- asta gagnrýnin sem komið hefur fram á Vantrú á liðnum áratug er einmitt hvernig þeir haga málflutningi sínum. Fjöldi þjóðþekktra íslendinga hefur itrekað gagnrýnt vantrúarfélaga fyrir ókurteisi, stóryrðanotkun og einelti. Þessa gagn- rýni tók ég fyrir í kennslustundinni og vó hana og mat með hliðsjón af orðfærinu. Þannig var ein glæran með dæmi um stóryrði sem finna má í skrifum helstu forystumanna félagsins og á vettvangi þeirra en þar er um að ræða hugtök eins og asni, bjáni, fáviti, fifl, drullusokkur og trúarnöttari, alls 18 dæmi. Raunin er sú að frá upphafi hafa skrif helstu for- ystumanna Vantrúar verið morandi af alls kyns stóryrðum um einstaklinga sem ýmist eru nafngreindir eða vísað til þannig að Ijóst er um hvern er rætt, 28 september 2013 bjarmi

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.