Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.09.2013, Side 37

Bjarmi - 01.09.2013, Side 37
laus við þrjósku þá hlaut hann að hafa reynt á þolrifin í foreldrunum. Mikið er til af „Franklin-sögum" í fjölskyldunni. Eitt sinn, þegar Franklin hafði grætt systur sína með sífelldri stríðni, missti Ruth stjórn á skapi sínu, stöðvaði bílinn og læsti son sinn niðri í skottinu. Þegar þau komu að veitingastað við veginn brá öðrum viðskiptavinum sem horfðu hneykslaðir á er hún opnaði skottið og spurði litla drenginn hvað hann vildi fá að borða. Franklin hoppaði hlæjandi upp úr skottinu og hrópaði, „Ostborgara en ekki með kjöti." Ekkert virtist geta brotið hann niður. En ofan á skaphita bættist álagið af því að vera „barn Billys Graham", nokkuð sem engu af Graham-börnunum reynd- ist auðvelt. Öll unglingsárin og fram yfir tvítugt virtist Franklin staðráðinn í að láta reyna á frelsi sitt til hins ýtrasta - reykti, drakk og gerði andlega uppreisn. „Væntingar annarra reittu mig til reiði," rifjar Franklin upp. „Ég vildi lifa á eigin forsendum." Meðan hann var í háskóla (college), var hann rekinn úr skólanum fyrir að halda skólasystur sinni úti fram yfir leyfðan útivistartíma. Skömmu áður hafði Franklin verið forsprakki að sturtu- flóði. Flann og annar stúdent í vestur- heimavist Tyler Hall tóku bókahillur og lokuðu með þeim leiðinni að baðinu sem almennur aðgangur var að á efstu hæðinni. Síðan lokuðu þeir niðurfallinu og fylltu sturtuklefann af nokkurra feta djúpu vatni. Að nokkrum dögum liðnum brotnuðu hillufjalirnar og vatnið flæddi um alla bygginguna. Andspænis taumlausu líferni hins unga Franklins reyndu Billy og Ruth af fremsta megni að hætta ekki að vera honum ástríkir foreldrar. „Við reyndum að aga börnin hóf lega en jafnf ramt reyndum við að hafa ekki margar reglur. Þegar ég bjarmi | september 2013 | 37

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.