Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.09.2013, Qupperneq 38

Bjarmi - 01.09.2013, Qupperneq 38
FrankLin Graham predikar í TaLLin í EistLandi árið 2009 geröi athugasemdir viö hársídd Franklins þá minnti Ruth mig á aö slíkt væri ekki siðferðlegt máiefni og ég minntist ekki framar á þetta mál. Raunar, eins og Ruth benti á með glampa í augum, gengi Franklin inn í hefö spámanna og postula." Billy Graham skildi álagiö sem hvíldi á börnum hans. Síðar sagði hann: „Börn predikara ganga oft í gegnum tímabil erfiðleika jafnvel þar sem allt fer á annan endann. Ef til vill væntir fólk of mikils af þeim vegna foreldranna. Eða að þau kunna að vænta of mikils af sér sjálfum, gera óraunhæfar kröfur til sín til að reyna að mæta væntingum annarra. Börn okkar fengu tvöfaldar byrðar: Þau voru predikarabörn og faðirinn frægur. Stúlk- urnar komu til með að giftast og skipta um ættarnafn en strákarnir sátu uppi með „Graham"." Þegar allt er tekið með í reikninginn þá er ekki hægt að segja að byrjunin hafi 38 september 2013 bjarmi lofað góðu fyrir son Billys Graham, sér- staklega í Ijósi allra miklu væntinganna sem fólk hafði gert til hans strax við fæðingu. En svo fór að hann tók virkilega u- beygju á grýttri vegferð sinni en 22 ára gamall gaf Franktín Jesú Kristi líf sitt, þá í hótelherbergi á ferðalagi í jerúsalem. Stuttu síðar bauð dr. Bob Pierce, stofn- andi kristilegu hjálparsamtakanna Samaritan's Purse (budda Samverjans), hinum unga Graham að koma með sér í sex vikna boðunarferð til Asíu. Reynslan úr þessari ferð hafði djúp áhrif á Franklin sem hélt áfram að vinna í þessu hjálpar- starfi. Árið 1979, eftir dauða dr. Pierce, varð Franklin Graham forseti Samaritan's Purse. Flann starfar nú einnig sem aðal- framkvæmdastjóri og leiðir aðgerðir stofnunarinnar í meira en IOO löndum, þar með talin verkefni eins og „Operation Christmas Child" og „Children's Heart Project". Starfsferill Franklins hefur verið á vettvangi hjálparstarfa en boðun fagnaðarerindisins er honum hjartfólgin. En samkvæmt hans eigin orðum var hlutverk föðurins honum aldrei ætlað. „Boðun fagnaðarerindisins að hætti fagnaðarboða er það sem pabbi gerir, mér kom aldrei til hugar að það ætti fyrir mérað liggja." Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni, segir máltækið. Árið 1989 predikaði Franklin Graham í fyrsta sinn á boðunar- samkomu og tók að verja einum tíunda af tíma sínum í slíka boðun. Þessi annar starfsferill hans hefur haldið áfram að þróast fram til þessa og á 24 árum hefur Franklin Graham boðað meira en 7 milljónum manna víðs vegar um heiminn fagnaðarerindið. Þessi boðunarstarfsemi gengur nú

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.