Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.09.2013, Síða 40

Bjarmi - 01.09.2013, Síða 40
Hrangur af innleiðingu N5U Höfundur: Uigfús Inguar Inguarsson Samtökin Náttúruleg safnaðaruppbygg- ing á íslandi (NSU) eru ung og verkefni í söfnuðum á þeirra vegum hófust ekki fyrr en snemma á árinu 2012 (Sjá grein- ina „Náttúruleg safnaðaruppbygging", Bjarmi des. 2012). Takmörkuð reynsla er því komin hérlendis af þessari aðferða- fræði eða verkfæri til uppbyggingar á söfnuði. Forvitnilegt er þó að heyra frá þeim sem byrjaðir eru að nota NSU þótt almennt sé varað við því að búast við skjótum árangri. Frekar ætti að horfa tíl langtímauppbyggingar í söfnuðum. Vegurinn í Kópavogi var fyrsti söfn- uðurinn hér á landi til að gera samning um aðstoð við framkvæmd verkefnis að hætti náttúrulegrar safnaðaruppbygg- ingar (NSU). Því leituðum við frétta af gangi mála þar hjá Hafsteini G. Einarssyni sem vann mikið að framkvæmd verk- efnisins hjá Veginum. Hretnij Imr cL tiL cA l/zjurinn lujnntiit Á/SU. &3.fotncLa.fft<ie£inni? „Þannig var að forstöðumaður Vegarins, Högni Valsson, frétti af því að Eric Guð- mundsson, aðventisti, væri tengiliður NSU á íslandi. Aðventistar höfðu þá þegar beittsérfyrirútkomu bókará íslenskuum Náttúrulega safnaðaruppbyggingu. Til staðar var líka alþjóðlegur leiðbeinandi, Hjálpræðisherskonan Margaret Saue Marti, sem hafði réttindi til að vinna að innleiðingu NSU með einstökum kirkjum. Eftir að hafa setið kynningarfund með henni, leist öldungum Vegarins það vel á hugmyndafræðina að þeir ákváðu að fara af stað með verkefnið." Stso vax jaxclur icmninjur um vaxke.jyticL HvccL fólit í ho-num? „Samningurinn tilgreindi að Vegurinn fékk aðstoð frá tveimur leiðbeinendum til að fylgja verkefninu úr hlaði. Auk ráðgjafar frá Margaret, þá fengum við stuðning frá sr. Vigfúsi Ingvari Ingvars- syni sem reyndist okkur einkar vel. Þar sem aðferðafræðin byggir á mælingu 8 gæðaþátta í starfsemi kirkna þá teljum við afar mikilvægt að utanaðkomandi aðilar fylgist með að mælingin sé rétt og hlutlaust framkvæmd innan kirkj- unnar. Slíkt byggir upp traust á niður- stöðunum. Fyrst var öldungunum og vinnuhópnum boðið á kynningarnám- skeið og síðan fól samningurinn í sér tvær mælingar með um l!6 árs millibili. Á milli mælinga nutum við stuðnings frá Margaret og Vigfúsi með fundum og rýnivinnu." ■Hvaxniy vex vinn&n innan iafoncicLeixlni ikipulöjcC? „Öldungar Vegarins skipuðu strax 3 manna vinnuhóp til að halda utan um verkefnið. Auk mín voru þau Magnús Axel Hansen og Bryndís Róbertsdóttir í hópnum. Teymið vann nokkuð sjálf- stætt en við bárum hugmyndir okkar um breytingar undir öldungana til skoð- unar." Sw vax LftfzjacL macL ia.fncaLc.xkö-nnun. „)á, vinnuhópurinn hóf rýnivinnu eftir að fyrsta könnunin hafði verið lögð fyrir safnaðarmeðlimi í janúar 2012. Niðurstöðurnar bárust okkur í hendur nokkrum dögum síðar, enda allir spurn- ingalistar færðir inn í tölvu og út prentast súlurit með niðurstöðum á myndrænu formi. Niðurstöðurnar sýndu svart á hvítu hvaða skoðun safnaðarmeðlimir sjálfir höfðu á starfsemi kirkjunnar. Með 40 september 2013 bjarmi

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.