Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.09.2013, Qupperneq 42

Bjarmi - 01.09.2013, Qupperneq 42
Björguwnniðstöðin - dæmisdgd Höfundur; Theodor UUedel Við hættulega sjávarströnd þar sem oft verða skipskaðar var eitt sinn grófgert björgunarskýli. Byggingin var bara lítill kofi og þar var aðeins einn bátur. En nokkrir menn sem tóku af heilum hug þátt í starfi björgunarfélagsins fylgdust stöðugt með hafinu og án þess að skeyta um eigið öryggi fóru þeir út í brimið dag og nótt þar sem þeir gerðu allt hvað þeir gátu til þess að koma þeim, sem voru að farast, til bjargar. Mörgum mannslífum var bjargað af þessu frábæra litla björg- unarfélagi þannig að það öðlaðist frægð fyrir afrek sín. Sumir þeirra sem hafði verið bjargað og ýmsir aðrir í nágrenninu vildu gjarnan tengjast þessu litla félagi og styrkja það með tíma sínum og fjár- munum. Nýir bátar voru keyptir og nýjar áhafnir voru þjálfaðar upp. Litla björg- unarfélagið óx og dafnaði. Þegar fram liðu stundir urðu sumir félagsmanna ósáttir, þar sem byggingin var svo gróf og illa búin. Þeim fannst að útvega ætti þægilegri og heppilegri stað sem fyrsta skjól þeirra sem tókst að bjarga úr sjávarháska. Þess vegna settu þeir rúm í björgunarskýlið í stað neyðar- beddanna sem fyrir voru og bjuggu það betri húsgögnum eftir að byggingin hafði verið stækkuð, þannig að björgunar- miðstöðin varð nú vinsæll staður meðal félagsmannanna til þess að hittast. Þeir lögðu því sig alla fram við að prýða björg- unarmiðstöðina sem best og innrétta hana glæsilega, því þeir sáu að mögulegt væri að nýta hana með nýjum hætti í því samhengi að þeir voru nú komnir með nokkurs konar klúbb. En færri félags- menn höfðu nú áhuga á því að fara til sjávar í björgunarferðir, þannig að þeir réðu til sín áhafnir til þess að sinna björg- unarstöfunum í þeirra stað. Við skulum hafa það hugfast að enn sáust skýr merki um sjóbjörgun í táknum félagsins og á því hvernig björgunarmiðstöðin var inn- réttuð og prýdd, það var til dæmis tákn- rænn björgunarbátur í salnum þar sem nýir félagsmenn voru innvígðir í félagið, þannig að breytingarnar sem höfðu orðið þýddu ekki endilegá það að upphaflegur tilgangur félagsins hefði alveg glatast. Um þetta leyti fórst stórt skip úti fyrir ströndinni og atvinnumennirnir í áhöfnum björgunarbátanna komu að landi með heilu bátsfarmana af köldu, blautu og hálfdrukknuðu fólki. Þetta var óhreint fólk og veikt og sumt að því var svart á hörund og annað gult. Eins og nærri má geta fór alit á annan endann í fallega nýja klúbbnum, þannig að nefndin sem sá um eignir klúbbsins, lét þegar setja upp steypibaðskýli fyrir utan klúbbinn þar sem hægt væri að þvo skip- brotsmenn áður en þeir komu inn í aðal- byggingu klúbbsins. Strax á næsta fundi reis upp ágrein- ingur meðal félagsmanna klúbbsins. Flestir félaganna vildu leggja niður björgunarstarfsemina þar sem hún var óþægileg og auk þess truflaði hún venjubundið félagslíf klúbbsins. Sumir félaganna stóðu fast á þeirri skoðun sinni að sjóbjörgun væri megintilgangur starfseminnar enda kallaðist staðurinn þrátt fyrir allt björgunarmiðstöð. En þessir fáeinu félagar urðu að lokum undir í atkvæðagreiðslu og þeim sagt að ef þeir vildu endilega standa í því að bjarga alls konar fólki, sem strandaði í sjónum þarna nálægt, gætu þeir bara farið og stofnað eigiö sjóbjörgunarfélag annars staðarvið ströndina. Það var einmitt það sem þeir gerðu. Þegar árin liðu gekk nýja sjóbjörgun- arfélagið neðar við ströndina í gegnum sömu breytingar og upphaf lega björgun- armiðstöðin. Það þróaðist í klúbb og enn á ný þurfti að stofna nýtt björgunarfélag til þess að sinna upphaflegum tilgangi þess. Sagan hélt áfram að endurtaka sig og ef þú kemur að þessari sjávarströnd nú, muntu sjá fjölmarga einkaklúbba meðfram ströndinni. Skipskaðar eru algengir á þessum stað en flest fólkið drukknar. Þýðing: Ægir Örn Sveinsson Heimild: http://resurrectionwc. org/crudejif esaving_station.htm 42 september 2013 bjarmi

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.