Bjarmi - 01.04.2018, Blaðsíða 16
Otsoknír gegn
krísinn k'ólKi í
löiuluiii mnslíma
HERMANN BJARNASON
Ofsóknir á hendur kristnu fólki hafa fylgt
kirkjunni í aldanna rás. Aldrei hafa fleiri
sætt ofsóknum en nú á tímum. í þeim 50
löndum þar sem erfiðast er að vera kristinn
er talið að um 215 millj. kristinna manna
hafi verið ofsóttar á árunum 2016 og
2017 vegna trúar sinnar á Jesú Krist. Það
birtist m.a í að kristið fólk sætir mismunun,
verður fyrir barsmíðum, því er rænt,
það pyntað, konum nauðgað og þær
þvingaðar í hjónaband, eignir, húsnæði og
kirkjur eyðilögð, og fólk fangelsað og það
tekið af lífi. (World Summit of Defence of
Persecuted Christians 10.-13. maí 2017)
Talið er að um 8.700 kristnir menn
hafi verið myrtir á mánuði á síðustu fjórum
árum vegna trúar sinnar á Jesú Krist eða
um 100 þús. manns á ári, sbr. upplýsingar
frá Vatíkaninu árið 2018.(16) í frétt
Independent 13. jan. 2017 segir: 900.000
kristnir urðu písiavottar síðastliðinn áratug
Kort og listi frá Open Doors sýna þau
lönd þar sem ofsóknir gegn kristnum eru
mestar.
16 | bjarmi | apríl 2018