Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.04.2018, Side 25

Bjarmi - 01.04.2018, Side 25
Lúthers var það stærsta kraftaverkið þegar trúin kviknar í lífi mannveru. Til þess voru Orðið og náðarmeðulin sem Andinn verkaði í, meira þurfti í rauninni ekki. Hins vegar eru mörg dæmi úr ritum Lúthers og lífi sem sýna að hann var ekki stefnufastur þegar náðargjafir voru annars vegar. Til dæmis sagði hann frá því í bréfi til vinarsem hafði beðið um leiðbeiningu um bænalíf að sjálfur styddist hann við bænirnar í Faðir vor. Stundum fékk hann þá „ríkulegar, góðar hugsanir" í bæn sinni: .......þá prédikar Heilagur andi sjálfur og eitt orð í prédikun hans er betra en þúsund bænir okkar. Oft hef ég lært meira á einni slíkri bæn en ég hefði getað tileinkað mér með löngum lestri og íhugun." Hann gerði líka ráð fyrir að Guð gæti notað drauma - þó að ekki væri hægt að segja til um það fyrr en eftir á hvort þeir væru frá Guði. Allar spámannlegar opinberanir og drauma þurfti að meta í Ijósi Ritningarinnar. Að minnsta kosti þrisvar á lífsleiðinni fékk Lúther að reyna kraftaverk þegar óttast var að dauðann bæri að garði. Það voru hann sjálfur, Katrín kona hans og Melanchton sem hlutu lækningu eftir fyrirbæn, hvert í sitt skiptið. Enn eitt merkið um að Lúther gerði ráð fyrir að lækning gæti átt sér stað var að árið 1545 skrifaði hann leiðbeiningar um hvernig hægt væri að biðja fyrir sjúklingi samkvæmt Jakobsbréfi. Það má margt læra af því hvernig Lúther leit á náðargjafirnar: - Mesta kraftaverkið sem getur gerst á meðal okkar er ekki líkamleg lækning eða neitt annað sem vekur mikla athygli heldur að mannvera eignast trú á Jesú Krist. Það kraftaverk veitir aðgang að eilífðinni. - Allar fullyrðingar, opinberanir og kraftaverk þarf að rannsaka. Við eigum einungis að halda því sem er í samsvari við Ritninguna og tengir okkur við Krist. Allt annað leiðir í villu, hversu vel sem það lítur út að öðru leyti. - Andinn kemur fyrst og fremst í Orðinu og sakramentunum. Fyrirheit Guðs tengjast þeim. - Við erum líka minnt á að bæn er samtal við Guð - ekki einræða frammi fyrir honum. Við eigum að hlusta þegar við biðjum. Þetta er líka eitt af þeim sviðum þar sem guðfræði Lúthers tekur ekki á öllum þáttum. Hann fjallaði aldrei um það sem Biblían segir um gjafir Andans, þó að guðfræði hans um Andann og verk hans hafi að öðru leyti verið ríkuleg. Það er hægt að setja saman biblíulegaog lútherska guðfræði sem sam- þykkir fyllilega kröft- ugt starf Andans. Náðargjafameð- vitaðar systurkirkjur okkar í Tansaníu og ekki síður Eþíópíu minna okkur á það. Við getum óhrædd sótt ýmislegt til náðargjafahreyfingar- innar sem hefur farið um hinn kristna heim frá sjöunda áratug síðustu aldar - ef við höfum Biblíuna að leiðarljósi og erum guðfræðilega meðvituð. Það má jafnvel vera að náðargjafarhreyfingin þurfi á sumum áherslum lútherskrar guðfræði að halda til að þroskast eðlilega. Það er að minnsta kosti álit Veli-Matti Kárkkáinen prófessors við Fuller Seminary sem hann setur fram í greininni „Trúin ein og allt fagnaðarerindið" en hann þekkir náðargjafahreyfinguna betur en flestir aðrir. Haraldur Jóhannsson þýddi. Greinin er kafli í bókinni Tillbaka till friheten - att tánka iutherskt i dag sem kom út í fyrra og birtist hér með góðfúslegu leyfi útgefanda og höfundar. bjarmi | apríl 2018 | 25

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.