Bjarmi - 01.04.2018, Blaðsíða 42
Þegar áilíiiiiiiiigariiai*
leiða okknr í gönnr —
eyöileggja safnaðarMð
RAGNAR GUNNARSSON
Fyrir nokkru barst mér í hendur bókin The
Emotionally Healthy Church (Kirkjan sem er
tilfinningalega heilbrigð) með undirtitlinum:
A Strategy for Discipleship that Actually
Changes Lives (Stefnumörkun í eftirfylgd
sem breytir lífi fólks í raun og veru). Titillinn
er áhugaverður og er ætlunin að gefa
innsýn í efni bókarinnar þó svo full ástæða
sé til að lesa hana alla.
Höfundurinn, Peter Scazzero, er
stofnandi og aðalprestur New Life Fellow-
ship Church í Queens, New York. Bókin
kom fyrst út árið 2003 og síðan endurbætt
og ný útgáfa 2010. Frásaga höfundar er
mjög persónuleg þar sem hann lýsir glímu
sinni við ýmsa vanþroskaða og óheilbrigða
þætti í persónuleika sínum sem síðan höfðu
áhrif á fjölskylduna og kirkjuna sem hann
veitti forstöðu. Hann lýsir því hvernig Guð,
í nokkrum áföngum og á löngum tíma,
opnaði augu hans fyrir því sem hann var
áður blindur á - og telur hann sig ekki vera
kominn á leiðarenda, þó svo margt hafi
þroskast til betri áttar hjá honum, honum
sjálfum til blessunar, fjölskyldu hans og
kirkjustarfi - og Guði til dýrðar. Á höfundur
hrós skilið fyrir að draga ekkert undan og
opna augu lesandans með því að sýna
hvað þurfti til að Guð opnaði augu hans.
INNGANGSKAFLAR
f fyrsta kafla bókarinnar er mikilvægi
prestsins, forstöðumannsins eða þeirra
sem eru í forystu, dregið fram. Ástæðan
er sú að sjaldan fer söfnuðurinn fram úr
forystusauðinum í þroska. Leiðtogi sem vill
ekki horfast í augu við eigin veikleika getur
haft mjög hamlandi áhrif á það starf sem
hann eða hún er í forsvari fyrir. Viðkomandi
getur látið stjórnast af reiði og beiskju, ótta
og kvíða eða skömm, án þess að gera sér
grein fyrir því. Þessi grunnhugsun mótar
afstöðu viðkomandi til þjónustu sinnar
og samskipta við fólk og leiðir suma til
uppgjafar og allt miðast við að brenna
ekki út meðan aðrir fara í far vinnualkans
á kostnað fjölskyldu og hjónabands. Hvort
tveggja, og hvaða veikleiki sem ekki er
horfst í augu við, hefur síðan bein og óbein
áhrif á það starf sem reynt er að vinna, oft
í eigin krafti frekar en fyrir anda Drottins.
Leiðin til betra lífs er að leyfa Jesú að
komast að dýpra en bara á yfirborðinu.
En því miður erum við oft treg til að hleypa
Guði inn í djúp hjartans vegna þess hversu
óþægilegt það er. Við erum oft ekki í
nægum tengslum við tilfinningar okkar og
áttum okkur ekki á því hvernig þær knýja
okkur áfram í daglegu lífi okkar. Þá áttum
við okkur yfirleitt heldur ekki á tilfinningum
þeirra sem kringum okkur eru. Um þetta
fjallar annar kafli bókarinnar og vísar m.a.
í kvikmyndina Postulinn (The Apostle) frá
árinu 1997. Allt er fagurt á yfirborðinu en
undir niðri kraumar ýmislegt sem smám
saman nær upp á yfirborðið og afhjúpar
það sem í ólagi var.
Tilfinningar valda oft deilum og spennu
sem glíma þarf við á réttan hátt - sem
42 | bjarmi | apríl 2018