Morgunblaðið - 27.01.2022, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.01.2022, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2022 Höfðabakka 9, 110 Reykjavík Hafið samband við Gústa sölustjóra vinnufatnaðar, sími 888-9222, gustib@run.is VANDAÐUR VINNUFATNAÐUR ÖRYGGISSKÓR Sjáum um allar merkingar SAFE & SMART monitor Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt 2, 3, 4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu versl- unum og mörkuðum. Við bjóðum upp á skoðunar- ferðir fyrir hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/- veislur í höllum, köstulum eða húsum frá miðöldum. www.transatlantic.is info@transatlantic.is Sími 588 8900 GLÆSILEGAR FORNAR BORGIR Í SUÐUR OG AUSTUR EVRÓPU Saga Rómar spannar yfir 2800 ár, borg sem óx úr litlu ítölsku þorpi á 9. öld f. Krist yfir í að vera höfuðborg heimsveldis á tímum Rómverja. Í dag er Róm höfuð- borg Ítalíu, menningarleg miðstöð, stórborg á heims- vísu og er fremst í flokki þeirra borga sem þykja einna hvað fallegastar frá fornum og horfnum heimi. Þar finnur þú allt fyrir ferðamanninn. Róm er einstakur vettvangur mikillar sögu, menningar og lista er einnig borg sem iðar af fjölskrúðugu og litríku mannlífi. Sælureitur góðrar matseldar og frábærra vína með veitinga- og kaffihús á hverju horni. Stórkostlegar byggingar príða þessa glæsilegu borg sem unun er að skoða á tveimur jafnfljótum. Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er verndaður af Unesco. Þar ber hæst kasta- linn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. RIGA Í LETTLANDI RÓM TALLINN EISTLANDI NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ Vilnius, Budapest, Prag Gdansk, Krakow,Varsjá, Bratislava,Wroclaw St. Pétursborg,Vínar- borg, Napolí,Mílanó Feneyjar og Brugge Tallinn er ein allra fallegasta borg Evrópu og er gamli bæjarhlutinn sá hluti borgarinnar sem mesta aðdráttaraflið hefur á ferðamenn. Þar eru götur steini lagðar, byggingar frá 11. öld sem hefur tekist að varðveita ótrúlega vel. Þú ferð úr 21. öldinni beint aftur í miðaldir. Þar sem Tallinn er best varðveitta miðaldaborg N-Evrópu hefur henni verið bætt við á heimslista UNESCO. DAGMÁL Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Þegar Aníta Rut Hilmarsdóttir, Rósa Kristinsdóttir og Kristín Hildur Ragnarsdóttir horfðu upp á tölfræði sem sýndi að á móti hverri konu sem fjárfestir á hlutabréfamarkaði fjár- festa fjórir karlmenn ákváðu þær að taka málin í eigin hendur. Þær höfðu setið málþing eftir málþing, m.a. á tímum kórónuveirunnar, þar sem þessi mál voru rædd en allt virtist það gert innan sama bergmálshell- isins. Samstarfsverkefnið Fortuna Invest varð að veruleika. Gáfu þær út bók í fyrra undir heit- inu Fjárfestingar þar sem á manna- máli er farið yfir helstu atriði sem al- menningur þarf að kunna skil á þegar kemur að fjármálamark- aðnum, bæði lántökum, lífeyrisrétt- indum og fjárfestingum ýmiskonar. Naut bókin mikilla vinsælda og er erfitt orðið að finna eftirhreytur af upplaginu í bókabúðum. Fræðslan beinist að öllum Verkefni Fortuna Invest, segja þær Aníta Rut og Rósa, sem eru gestir Dagmála í dag, er ekki aðeins að uppfræða konur um fjármál held- ur allan almenning. Áhuginn á við- fangsefninu hafi aukist og sést það m.a. á því að instagram-vettvangur verkefnisins hefur laðað að sér yfir 17 þúsund fylgjendur. Segja þær að það hafi komið mörgum á óvart hversu mikill áhuginn væri. Hins vegar rigni fyrirspurnum yfir þær þar sem fólk veltir fyrir sér ýmsum hliðum fjár- málaheimsins. Þær ítreka að þeirra hlutverk sé ekki ráðgjöf, heldur vilji þær koma réttum upplýsingum á framfæri og hvetja fólk um leið til þess að taka upplýstar ákvarðanir í sínum fjárfestingum. Þær benda á að sprenging hafi orð- ið í þátttöku almennings á hluta- bréfamarkaði í fyrra þegar Íslands- banki og Síldarvinnslan voru skráð á markað. Það hafi t.d. komið í hlut Fortuna Invest að benda fólki á að lágmarksfjárhæð til þátttöku í útboði bankans hafi einungis verið 50 þús- und krónur. Það hafi ekki allir áttað sig á því. Það sé reyndar staðan á fjármálamarkaðnum almennt. Ekki þurfi að fjárfesta fyrir háar fjárhæðir og gott sé að fara rólega af stað þegar fólk tekur sín fyrstu skref í fjárfest- ingum. Aðgengi að fjármálamörkuðum sé betra en áður. Nú sé hægt að kaupa og selja hlutabréf í gegnum banka- öppin. Það sé allt annað en fyrir nokkrum árum þegar hringja þurfti í verðbréfamiðlara til að eiga viðskipti. Framtak Aníta Rut Hilmarsdóttir og Rósa Kristinsdóttir stofnuðu Fortuna Invest ásamt Kristínu Hildi Ragn- arsdóttur. Þær gáfu í fyrra út bókina Fjárfestingar. Hlaut hún góðar viðtökur og er nærri því uppseld. Mikill áhugi á fjárfestingum - Forsvarskonur Fortuna Invest segja þörf á fjármála- fræðslu - Með yfir 17 þúsund fylgjendur á Instagram Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Sundabraut, hvort heldur er í jarð- göngum undir Kleppsvík eða um brú yfir hana, hefur mikinn sam- félagslegan ávinning og er metin samfélagslega hagkvæm fram- kvæmd samkvæmt félagshagfræði- legri greiningu á lagningu Sunda- brautar, sem kynnt var í vikunni. Brúarlausnin hefur það fram yf- ir jarðgöngin að um hana getur farið umferð gangandi og hjólandi en það verður ekki framkvæman- legt verði jarðgangalausnin valin. Starfshópur um lagningu Sunda- brautar fékk verkfræðistofuna Mannvit og danska ráðgjafafyrir- tækið Cowi til að vinna félagshag- fræðilega greiningu en Mannvit hefur m.a. unnið að samgöngulík- ani borgarinnar. Þar voru teknir fyrir þrír valkostir, brýr og göng, og þeir bornir saman við óbreytt umferðarkerfi án Sundabrautar. Niðurstöður skýrsluhöfunda eru að í heild nemi þjóðhagslegur ábati 186-236 milljörðum króna, eftir útfærslu Sundabrautar með brú eða göngum. Mestur ábati fel- ist hvort tveggja í minni akstri, út- blæstri og mengun og styttri ferðatíma vegfarenda vegna styttri leiða til og frá höfuðborgarsvæð- inu. Heildarakstur á höfuðborgar- svæðinu gæti minnkað um 150 þúsund km á hverjum sólarhring við opnun Sundabrautar. Verkefni er talið vera þjóðhags- lega hagkvæmt ef núvirtur ábati er jákvæður, þ.e. ábati fyrir sam- félagið er meiri en kostnaður við verkefnið, segir í skýrslunni. Tímasparnaður og styttri vega- lengdir leiða einnig til færri slysa, minni útblásturs gróðurhúsaloft- tegunda, minni umferðarhávaða og minni mengunar. Jákvæð áhrif þessa eru talin nema á milli 21,5 og 22,6 milljörðum króna yfir allt 30 ára greiningartímabilið. Ítar- legri greiningar á hljóðvist, um- ferðaröryggi og áhrifum á um- hverfið verða gerðar á næstu stigum verkefnisins. Næstu skref eru að hefja undir- búning á umhverfismati, víðtæku samráðsferli og nauðsynlegum breytingum á aðalskipulagi en miðað er við að Sundabraut verði opnuð árið 2031. Þjóðhagslegur ábati Sundabrautar mikill Morgunblaðið/Eggert Samkomulag Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Sigurður Ingi Jóhanns- son samgönguráðherra undirrituðu yfirlýsingu um Sundabraut í fyrra. - Umferð gang- andi og hjólandi einungis um brú
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.