Morgunblaðið - 11.03.2022, Side 76

Morgunblaðið - 11.03.2022, Side 76
Þ að er gaman að fylgjast með unga fólkinu okkar ná árangri í sínu fagi. Ein þeirra er Ólöf Ólöfs- dóttir eftirréttakokkur sem sigr- aði nýverið í Eftirréttum ársins 2021, en þema keppninnar var nýr heimur og áttu réttirnir að vera vegan. Þeir sem hafa heimsótt veitingastaðinn Monkeys vita hvernig eftirréttir Ólafar smakkast, en hún gerir ekki bara dásamlega góða rétti heldur einstaklega fallega. „Eftirréttir eru eitt af því skemmtilegasta sem ég geri svo það var mjög gaman að búa til draumakökuhlaðborð fermingarbarnsins fyrir Morgunblaðið. Ég gerði hlaðborð með fjórum tegundum af eftirréttum og einni köku, sítrónu tarta sem líta út eins og blóm, íspinna með hvítri súkkulaðimús og hindberjum, Choux au Craquelin bollur með mangó, ástaraldin geli og vanillurjóma. Hvítsúkkulaði ostaköku í eftirrétta glösum og sítrónutertu með sítrónurjómaosta- kremi.“ Veislur og þá sér í lagi fermingarveislur hafa lengi verið í miklu uppáhaldi hjá Ólöfu. „Ég sá um fermingarveisluna mína frá a til ö og var staðráðin í því að gera þriggja hæða fermingarköku alveg sjálf. Það gekk misvel enda var ég nýbyrjuð að baka en ég get sagt að þetta er eftirminnilegasta kaka sem ég hef bakað. Hún var kannski ekki sú flottasta en hún var einstaklega bragðgóð.“ Ólöf vann í bakaríi í mörg ár og hefur gert ótalmargar fermingartertur. „Ég skil vel að það getur verið erfitt að vita hvert maður á að snúa sér varðandi mat og kökur. Hér eru nokkrar uppskriftir og hug- myndir frá mér sem að vonandi hjálpa á þessum tímum. Fermingin er skemmtilegur tími sem gerist bara einu sinni á lífsleiðinni, því er um að gera að baka og njóta!“ „Ég sá um ferm- ingarveisluna mína frá a til ö“ Ólöf Ólafsdóttir Eftirréttakokkur ársins 2021 gerði þriggja hæða fermingartertu þegar hún fermdist á sínum tíma. Kakan smakkaðist einstaklega vel enda hefur þessi unga kona á uppleið í veitingahúsageiranum alltaf elskað að baka. Hún vildi gera drauma-kökuhlað- borð fyrir fermingarbörn landsins og deilir hér uppskriftum. Að hennar mati eigum við að baka og njóta með börnunum á fermingunni. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Girnilega sítrónuterta með sítrónurjómaosta- kremi skreytt á fallegan hátt með íslensku fánalitunum og blómum sem eftir er tekið. Ólöf Ólafsdóttir sigraði í keppn- inni um Eftirrétt ársins 2021. Hún sá um sína eigin fermingarveislu á sínum tíma og bakaði meðal annars þriggja hæða fermingar- tertu sem bragðaðist einstaklega vel. Hér heldur hún á sítrónutertu með sítrónurjómaostakremi. Choux au Craquelin- bollur með mangó- og ástaraldingeli og vanillurjóma. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þessi uppskrift er fyrir átta til tíu manns. Innihald 240 g smjör 95 g marsípan 240 g sykur 240 g egg 234 g hveiti 10 g lyftiduft sítrónubörkur af tveimur sítrónum Blandið sykur og marsipani saman í hrærivél. Bætið síðan smjörinu út í og þeytið þangað til deigið er orðið ljóst og létt. Eggjunum er síðan bætt út í blönduna í þremur skömmtum. Þegar þetta er komið vel saman þá er þurrefnunum og sítrónuberk- inum bætt út í deigið. Ég skipti deiginu í þrjú 15 cm form og bakaði í 25 til 30 mínútur við 170 gráður C. Enginn ofn er eins þannig að gott er að kíkja á kökuna af og til. Krem 650 g flórsykur 250 g rjómaostur 10 g vanillusykur 60 g smjör 60 g smjörlíki börkur af tveimur sítrónum Rjómaostur, flórsykur og vanillusykur sett í skál og þeytt saman. Síðan er smjörinu og smjörlíkinu bætt við og þeytt þangað til að krem- ið er orðið hvítt og loftkennt. Ég skreytti kökuna með lifandi blómum, brómberjum, þurrkuðum fjól- um og þurrkuðum hindberjum. Kosturinn við þessa uppskrift er að þú getur skipt út sítrónuni og sett hvað sem er í staðinn. Svo sem hindber, bláber, appelsínubörk eða jafn- vel kakó dufti og þá ertu komin/kominn með með súkkulaði-köku. Sítrónukaka 76 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2022 STOFNAÐ 1953 Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is www.facebook.com/efnalauginbjorg • Sími 553 1380 Er allt á hreinu fyrir ferminguna? Fatahreinsun Dúkaþvottur Dúkaleiga Heimilisþvottur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.