Fréttablaðið - 07.05.2022, Síða 8

Fréttablaðið - 07.05.2022, Síða 8
Áður en Jökulsá var brúuð héldu líka margir að það yrði ómögulegt. Einar Freyr Elínarson, oddviti Erlent fyrirtæki hefur hug á að flytja út gjall í allt að heila öld. Íbúar á Suðurlandi eru jákvæðir en vilja nýja höfn nálægt námasvæðinu. bth@frettabladid.is IÐNAÐUR Hluti íbúa á Suðurlandi vill skoða hvort rétt sé að fara í framkvæmdir við nýja höfn austan Víkur. Hugmyndin tengist áformum um útflutning á gríðarlegu magni af vikri. Vík er eina hafnlausa sjávar- pláss landsins. Fyrirtækið EP Power Minerals leitar leiða til að fá leyfi til að flytja mikið magn af vikri eða gjalli frá námum við Hafursey sem er í landi Kolbeinshöfða. Fyrirtækið gaf ekki kost á viðtali um áformin að sinni en ef mat á umhverfisáhrifum verður jákvætt er til skoðunar að flytja vikurinn frá Hafursey til Þor- lákshafnar og skipa efninu þar upp í flutningaskip þar sem siglt yrði með vikurinn í þeim tilgangi meðal ann- ars að nýta gjallið sem íblöndunar- efni í sement. Forskoðun bendir til að gjallið í námunni gæti dugað í útflutning allt að heila öld. Hluti heimamanna á Suðurlandi sem hlynntir eru áformunum telur að hægt væri að koma í veg fyrir stórfellda umferð flutningabíla um þjóðveginn með því að láta gera nýja höfn nálægt námasvæðinu. Höfnin fengi þó fleiri hlutverk. Vík hefur í gegnum tíðina verið kölluð hafnleysa, enda eina sjávar- þorp landsins þar sem aldrei hefur verið höfn, að sögn Einars Freys Elínarsonar, oddvita í Mýrdals- hreppi. Hann er í hópi áhugasamra íbúa um hafnargerð og þegar Frétta- blaðið tók hann tali á Suðurlandi í vikunni benti hann á að ekki væru bara atvinnuleg tækifæri í þessum hugmyndum heldur einn- ig umhverfisleg. „Þessir f lutningar á vikrinum gætu orðið mjög óumhverfisvænir og þess vegna hefur sveitarfélagið lagt til að skoðað verði að gera nýja höfn á suðurströndinni,“ segir Einar. Hann tekur fram að hugmyndirnar miðist ekki við að hið opinbera standi straum af gerð nýrrar hafnar. Einar telur enga ástæðu til að ætla að vandræðagangurinn við Landeyjahöfn muni endurtaka sig með nýrri höfn við Vík. Hægt sé að bregðast við sandburði með tækni- legum útfærslum. „Maður skilur að mörgum þyki það langsótt hugmynd að gera hér nýja höfn en áður en Jökulsá var brúuð héldu líka margir að það yrði ómögulegt,“ segir Einar. Einhæfni atvinnulífs er vanda- mál í Mýrdalshreppi að sögn Einars. Íbúar þurfi að vera vakandi fyrir fleiri tækifærum þótt blómleg ferða- þjónusta sé mikil blessun. Hann segir að rætt hafi verið um nýja höfn við Dyrhólaey alla síðustu öld eða þangað til hún var friðlýst. n Vilja nýja höfn við Vík og stórfelldan útflutning á gjalli Hugmyndir eru uppi um nýja höfn austan Víkur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Kjörskrá vegna kosningar vígslubiskups á Hólum hefur verið samþykkt og verður lögð fram 6. maí 2022. Viðmiðunardagur skilyrða kosningar- réttar er 28. apríl 2022. Kjósandi getur kannað á þar til gerðu vefsetri https://kirkjan.is/vígslubiskup/kjör- skrá hvort nafn hans er á kjörskrá. Við aðgang að vefsetrinu er notuð almenn inn- skráningarþjónusta, s.s. rafræn skilríki eða Íslykill. Athugasemdir vegna kjörskrár skulu berast kjörstjórn eigi síðar en fimm sólarhringum áður en tilnefning hefst. Athugasemdir skulu sendar á netfangið kirkjan@kirkjan.is Tilnefningin verður rafræn. Hún hefst kl. 12:00 hinn 19. maí 2022 og lýkur kl. 12:00 hinn 24. maí 2022. Heimilt er að tilnefna allt að þrjá einstaklinga sem uppfylla kjörgengisskilyrði skv. 1. gr. ofangreindar starfsreglna. Rétt til að tilnefna hafa vígðir einstaklingar sem kosningarréttar njóta auk leikmanna á kirkjuþingi, þ.e.: • Þjónandi prestar eða djáknar íslensku þjóðkirkjurnar er tilheyra prófastsdæmum sem eru í Hólaumdæmi. • Þjónandi prestar eða djáknar sem lúta tilsjónar biskups Íslands og eru í föstu og launuðu starfi á vegum stofnunar og/eða félagasamtaka hér á landi og sem starfa í Hólaumdæmi • Kirkjuþingsmenn. • Vígðir kennarar í föstu starfi við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. • Vígðir starfsmenn á biskupsstofu sem eru í föstu starfi. Áætlað er að kosning vígslubiskups á Hólum hefjist kl. 12:00 hinn 23. júní 2022 og ljúki kl. 12:00 hinn 30. júní 2022. Reykjavík, 6. maí 2022 f.h. kjörstjórnar þjóðkirkjunnar Anna M. Karlsdóttir, formaður. Auglýsing um framlagningu kjörskrár og tilnefningar vegna kosningar vígslubiskups á Hólum sbr. 9. og 11. gr. starfsreglna um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa nr. 9/2021-2022. Óbreytt starfsemi Sami sími - 595 1300 Nýr staður. HeilSugæSlaN lágmúla flytur! Við opnum á nýjum stað 11. maí nk., Hallgerðargötu 13, Kirkjusandi, 105 reykjavík. Heitum nú, Heilsugæslan Kirkjusandi. birnadrofn@frettabladid.is GARÐABÆR Sara Dögg Svanhildar- dóttir, oddviti Viðreisnar í Garðabæ, segir mikla óvissu um hvar fjörutíu börn í Barnaskóla Hjallastefnunnar muni sækja skóla í haust. „Skólahúsnæðið á Vífilsstöðum er sprungið og hefur Barnaskólinn óskað eftir að fá að koma fyrir færanlegu húsnæði á lóðinni. Þessu hefur Garðabær ekki svarað og því er hægt að tryggja skólavist barna á miðstigi. Í stað þess að afgreiða málið er því vísað á milli nefnda,“ segir Sara. „Hér er sveitarfélagið að missa for- ystu sína í stuðningi við sjálfstætt starfandi skóla, sem er ekki lengur sambærilegt við rekstrarumhverfi nágrannasveitarfélaganna. Garða- bær er að taka stór skref afturábak, á sama tíma og Hafnarfjörður og Reykjavík taka stór skref í þágu for- eldra og valfrelsis,“ segir Sara. n Segir óvíst hvar börnin sæki skóla Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi Garðabæjar og oddviti Viðreisnar kristinnpall@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR Dagur B. Eggertsson, borg- arstjóri Reykjavíkur, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barna- málaráðherra, og Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra skrifuðu í gær undir viljayfirlýsingu þess efnis að ný þjóðarhöll fyrir innanhúss- íþróttir rísi í Reykjavík. Stefnt er að því að framkvæmdum ljúki árið 2025 en þetta er ekki í fyrsta sinn sem skrifað er undir slíka viljayfir- lýsingu. Ef hugmyndir þeirra rætast mun ný þjóðarhöll verða tilbúin á sextíu ára afmæli Laugardalshallar sem hefur verið á undanþágum frá í rúma tvo áratugi. n Vilja reisa nýja höll á næstu árum kristinnpall@frettabladid.is SAMGÖNGUR Sigurður Ingi Jóhanns- son kynnti á ríkisstjórnarfundi gær- dagsins tillögu um að skipa verk- efnisstjórn sem sér um undirbúning þess að leggja Sundabraut. Miðast undirbúningurinn við að framkvæmdir hefjist árið 2026 og að  Sundabrautin verði tilbúin til notkunar 2031. Áætlaður kostnaður verði 1,5 milljarðar en að með þessu minnki akstur Íslendinga um 150 þúsund kílómetra á sólarhring. n  Sundabraut klár innan áratugar 8 Fréttir 7. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.