Fréttablaðið - 07.05.2022, Síða 20

Fréttablaðið - 07.05.2022, Síða 20
20 Íþróttir 7. maí 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 7. maí 2022 LAUGARDAGUR Mino Raiola, einn merki- legasti fýr fótboltans, er látinn. Hann lætur eftir sig tvo syni og ókláraða samninga um framtíð Erling Braut Haaland og Paul Pogba – svo tveir séu nefndir. Hann kom að samn- ingaviðræðum Inter og Ajax um Dennis Bergkamp en stóra tækifærið kom þegar Pavel Nedved sló í gegn á EM 1996. benediktboas@frettablaðid.is Umboðsmaðurinn Mino Raiola lést í vikunni aðeins 54 ára gamall. Hann var ólíkur f lestum öðrum umboðsmönnum sem vilja yfir- leitt vera bak við tjöldin, klæddir í fínustu jakkaföt. Raiola var bara í stuttermabol og gallabuxum, þéttur á velli og hataði ekkert sviðsljósið. Hann lenti upp á kant við fjölmarga knattspyrnustjóra og yf irmenn knattspyrnumála hjá stórum félögum en það er ljóst að leikmenn sem hann vann fyrir elskuðu hann. Og það eru ekkert bara einhverjir leikmenn því Raiola var með á sínum snærum marga af bestu og efnilegustu knattspyrnu- mönnum Evrópu. Mino Raiola fæddist á Suður-Ítal- íu en flutti ungur til Haarlem í Hol- landi með foreldrum sínum þar sem þau opnuðu pitsustað. Hann sagði eitt sinn að fjölskyldan hefði kennt honum vinnusiðferði. Að hver einn og einasti viðskiptavinur skipti máli og enginn starfsmaður væri of góður til að þrífa klósettið. Hann skar sig úr í fjöldanum. Yfir- borðskenndir fótboltamenn eru yfirleitt uppteknir af útlitinu en Raiola var alveg sama. „Ég er lítill og feitur og er í fötum sem mér líður vel í. En margir vanmátu mig lengi vel vegna þess að ég var ekki í jakka- fötum, eitthvað sem ég nýtti mér við samningaborðið,“ sagði hann árið 2019 við Sport1. Hann spilaði fótbolta með Haar- lem en vann á pitsustað foreldra sinna með tuðrusparkinu en hann var ekki nógu góður til að verða atvinnumaður og lagði skóna á hill- una um 18 ára gamall. Hann lærði lögfræði í tvö ár, sem hann sagði við þýskt sporttímarit að hefði verið mesta tímasóun lífs síns. Þar sem hann talaði betri hollensku en karl faðir hans sá Raiola um bókhaldið og samskipti við birgja, meðal ann- ars ítalska þar sem hann talaði jú ítölsku. Draumur hans var samt að vera tengdur fótboltanum. Eitt sinn kom eigandi Haarlem- liðsins inn á pitsustaðinn og Rai- ola á að hafa sagt við hann að liðið gæti ekki neitt en undir hans stjórn myndi það breytast. Eigandinn sannfærðist og réð Raiola sem yfir- mann knattspyrnumála. Raiola hafði stóra drauma og í viðtali við The Financial Times sagðist hann hafa séð ungling hjá Ajax, Dennis Bergkamp, og að hann ætlaði að koma honum til Haarlem, selja hann til stórliðs og byggja upp Haarlem fyrir þá peninga. Það gekk ekki og Raiola yfirgaf stöðuna skömmu síðar. Stóra tæk ifærið í umboðs- mennsku kom þegar Rob Jansen, sem þá var að selja téðan Bergkamp til Inter frá Ajax, bað Raiola að vera þýðanda og þul í þeim vistaskipt- um. Raiola talaði alls sjö tungumál og fékk hann starf í kjölfarið hjá Jansen hjá Sports Promotions. Eftir að hafa verið viðloðandi vistaskipti Bryan Roy til Foggia, Wim Jonk til Inter og f leiri Hollendinga yfirgaf Raiola Sports Promotions til að byrja með sinn eigin rekstur. Fótboltinn var að breytast í kjöl- far Bosmans-samningsins og sjón- varpspeninga. Eftir Evrópukeppn- ina 1996 keypti Lazio Pavel Nedved og Raiola sá um samninginn. Lazio var þá undir stjórn Zdenek Zeman sem Raiola hafði kynnst hjá Foggia í tengslum við Bryan Roy-samning- inn. En fyrsta alvöru samningnum var lokað og stjarna við samninga- borðið var fædd. Stjarna sem skein allt til dauðadags. Hann sá um viðskiptavini sína eins og foreldrarnir höfðu kennt honum. Allir voru mikilvægir og ekkert verk var of erfitt til að leysa. Miðað við minningarorð fyrrver- andi skjólstæðinga hans á Twitter hjálpaði hann sínum mönnum að koma sér fyrir á nýjum stöðum. Kaupa íbúðir, bíla, ísskáp, fá raf- virkja til að tengja og nánast allt þar á milli. Trúlega voru fleiri klukku- tímar í hans sólarhring en annarra. Heilsu Raiola fór að hraka í byrjun árs en í upphafi árs sagði þýska blaðið Bild að hann hefði verið lagður inn á gjörgæsludeild San Raffaele-sjúkrahússins þar sem hann gekkst undir aðgerð. Þá var ástand hans sagt stöðugt og heilsan öll á uppleið en hann hafði fengið lungnabólgu. Tilkynnt var að hann væri látinn fimmtudaginn 28. apríl en það reyndist vera uppspuni. Fjöl- skyldan tilkynnti þó um andlátið tveimur dögum síðar. „Hann snerti marga með vinnu sinni og skrifaði nýjan kafla í sögu fótboltans. Hann barðist við veikindin af sama krafti og hann barðist fyrir leikmenn sína og markmiði Mino um að gera fót- boltann að betri stað fyrir leikmenn verður haldið áfram af sama krafti,“ sagði meðal annars í yfirlýsingu fjölskyldunnar. Frændi Raiola, Vincenzo Raiola, kallaður Enzo, hefur tekið við kefl- inu ásamt brasilíska lögmanninum Rafaela Pimenta sem vann náið með þeim frændum. Fram undan er risastórt sumar þar sem Erling Braut Haaland mun væntanlega fara frá Dortmund, Paul Pogba frá Man chester United og Ryan Graven- berch, einn efnilegasti miðjumaður heims, mun væntanlega fara til Bayern frá Ajax. Svona mætti áfram telja en Raiola hafði um 80 leik- menn á sínum snærum og virtist hafa tíma fyrir þá alla. Upphafið með Zlatan Í ævisögu sinni segir Zlatan Ibra- himovic frá kynnum sínum af Rai- ola. Þeir hittust á sushi-stað og kom Raiola á fundinn í Nike-bol og galla- buxum. Áður en hann sagði nokkuð dró hann upp nokkur A4-blöð með tölfræði framherja. Zlatan hafði þá skorað fimm mörk í 25 leikjum. „Hvernig á ég að geta selt þig ef þetta er tölfræðin?“ spurði Raiola. Hann benti svo á útlit Zlatan og setti út á gullúrið, Porsche-bílinn sem hann átti og Gucci-jakkann sem hann var í. „Ef þú vilt vera bestur, einbeittu þér að fótboltanum. Allt hitt mun þá fylgja. Seldu úrin og byrjaðu að æfa eins og maður, því tölfræðin þín er hræðileg.“ Zlatan hugsaði sig um í stundar- korn en hringdi svo í Raiola og sagðist vilja vinna með honum. Seldi Porsche Turbo-bílinn sinn og fékk sér Fiat Stilo-smábíl, byrjaði að ganga um í æfingafatnaði og úrin urðu að snjallúrum til að fylgjast með æfingunum. Ætli f lestir viti ekki hvernig sú saga endaði. Sir Alex hataði Raiola Sagan um Sir Alex Ferguson og Paul Pogba er einnig þekkt úr fótbolta- heiminum en Pogba var ungur drengur í Manchester og Raiola sagði að hann væri á allt of lágum launum. Ferguson varð orðlaus yfir kröfunum og Raiola fór með Pogba til Juventus. Þar blómstraði Frakk- inn og snéri til baka til Man chester United fyrir um 105 milljónir evra. Sögur herma að 27 af þeim hafi endað í vasa Raiola. Ferguson skrif- aði í sína ævisögu að hann hefði ekki treyst Raiola frá því hann gekk inn á skrifstofu hans. Einu sinni var Raiola spurður hvort það væri rétt að Ferguson hataði hann. „Það er frábært hrós. Ef maður á enga óvini hefur maður ekki sinnt vinnunni sinni nógu vel,“ sagði Raiola við GQ Italia. n Umbinn sem breytti leiknum Eftir að Juvent­ us hafði tryggt sér Matthijs de Ligt kom Mino Raiola með leikmanninum og var fagnað sem þjóðhetju af stuðnings­ mönnum Juventus. Allir stuðningsmenn sungu Mino, Mino, Mino og vildu fá mynd af kappanum. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Zlatan Ibrahimovic og Mino Raiola á HM í Rússlandi árið 2018. Þeir félagarnir áttu í merkilegu sambandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Mino Raiola velti sér ekki upp úr út­ litinu. Hér með skjólstæðingi sínum Mario Balotelli á götum Mílanó. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Nokkrir leikmenn sem voru hjá Raiola n Erling Braut Haaland, fram­ herji Dortmund n Matthijs de Ligt, varnar maður Juventus n Gianluigi Donnarumma, markmaður PSG n Paul Pogba, miðjumaður Man. Utd n Marco Verratti, miðjumaður PSG n Ryan Gravenberch, miðju­ maður Ajax n Justin Kluivert, framherji Roma n Xavi Simons, miðjumaður PSG
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.