Fréttablaðið - 07.05.2022, Page 36

Fréttablaðið - 07.05.2022, Page 36
Deildarstjóri afgreiðsludeildar Menntasjóður námsmanna (MSNM) er félagslegur jöfnunarsjóður sem hefur það að markmiði að tryggja námsmönnum í lánshæfu námi jöfn tækifæri til náms, án tillits til efnahags og stöðu að öðru leyti, með því að veita námsmönnum fjárhagslega aðstoð í formi námslána og styrkja. Hjá Menntasjóði námsmanna starfa um 40 starfsmenn. Gildi sjóðsins eru: fagmennska, samstarf og framsækni. Nánari upplýsingar má finna á: www.menntasjodur.is. Menntunar- og hæfniskröfur: Upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225. • Stjórnun og ábyrgð á starfsemi deildarinnar • Ábyrgð á daglegri umsýslu og mótun verklagsreglna um móttöku og meðferð erinda • Umsjón með skjalavörslu sjóðsins og skilum gagna til Þjóðskjalasafns • Ráðgjöf og fræðsla til starfsmanna vegna rafrænnar stjórnsýslu og skjalavörslu • Ábyrgð á innri- og ytri vef MSNM • Umsjón með útsendingum og skönnun á uppgreiddum skuldabréfum • Ábyrgð á símsvörun og afgreiðslu Helstu viðfangsefni og ábyrgð: Umsóknarfrestur er til og með 23. maí 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku), þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra við Fræðagarð stéttarfélag. Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. • Háskólapróf sem nýtist í starfi, s.s. á sviði bókasafns- og upplýsingafræði eða sambærilegt • Reynsla af skjalastjórnun er skilyrði og reynsla af notkun rafrænna skjalavistunarkerfa er kostur • Reynsla af stjórnun og eftirfylgni verkefna er kostur • Mjög góð tölvufærni • Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðhorf og lausnamiðuð hugsun • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti • Frumkvæði, sjálfstæð og öguð vinnubrögð Menntasjóður námsmanna óskar eftir að ráða metnaðarfullan leiðtoga með yfirgripsmikla þekkingu og brennandi áhuga á skjalamálum og rafrænni þjónustu. Um fullt starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225 og Elías Pétursson, bæjarstjóri (elias@fjallabyggd.is) í síma 464 9100. Fjallabyggð er nyrst á Tröllaskaga. Í sveitarfélaginu, sem telur rúmlega 2.000 íbúa, eru tveir þéttbýliskjarnar, bæirnir Ólafsfjörður og Siglufjörður. Bæirnir byggja afkomu sína að mestu á sjávarútvegi og vinnslu fiskafurða. Í seinni tíð hefur fjölbreytnin í atvinnu- lífinu aukist og mikill vaxtarbroddur er í ferðaiðnaði og ýmis konar fjar- vinnslu fyrir fyrirtæki og stofnanir á höfuðborgarsvæðinu. Fjallabyggð er fjölskylduvænt sveitar- félag og eru þar tveir leikskólar, grunnskóli, framhaldsskóli og tón- skóli. Góð aðstaða er til íþróttaiðkunar. Mikil náttúrufegurð er í Fjallabyggð og margar góðar gönguleiðir liggja um sveitarfélagið. Í Fjallabyggð eru landsþekkt söfn og menningarlífið blómstrar. Nánari upplýsingar má finna á: www.fjallabyggd.is. Deildarstjóri stjórnsýslu og fjármála Fjallabyggð auglýsir laust til umsóknar starf deildarstjóra stjórnsýslu og fjármála. Deildarstjóri heyrir beint undir bæjarstjóra og er staðgengill hans. Um er að ræða áhugavert atvinnutækifæri í vaxandi sveitarfélagi fyrir einstakling sem býr yfir leiðtogahæfileikum, frumkvæði og góðum samskiptahæfileikum. Um 100% starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. • Stjórnun og daglegur rekstur og mannauðsmál stjórnsýslu- og fjármáladeildar • Umsjón með fjármálum sveitarfélagsins og stofnana þess og eftirlit með fjárreiðum • Undirbúningur funda bæjarstjórnar og bæjarráðs í samvinnu við bæjarstjóra og ritun fundargerða • Ráðgjöf og upplýsingagjöf til stjórnenda og kjörinna fulltrúa varðandi stjórnsýsluhætti, rekstur og mannauðsmál • Undirbúningur og gerð fjárhagsáætlunar, auk eftirlits og eftirfylgni með framkvæmd • Umsjón með launagreiðslum sveitarfélagsins • Þátttaka í stefnumótun og framkvæmd stefnu í þeim málaflokkum sem undir sviðið heyrir Helstu verkefni og ábyrgð: • Háskólapróf sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er kostur • Reynsla af rekstri, fjárstýringu, áætlunargerð og stjórnun • Reynsla af opinberri stjórnsýslu, helst af vettvangi sveitarfélaga • Leiðtogahæfileikar, frumkvæði og skipulagshæfileikar • Almenn þekking á mannauðsmálum • Framúrskarandi samskiptahæfni • Mjög góð tölvukunnátta, þekking á Navision er kostur • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti Menntunar- og hæfniskröfur: Umsóknarfrestur er til og með 23. maí 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Launakjör eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.