Fréttablaðið - 07.05.2022, Side 44
Mannauðs- og starfsumhverfissvið
Lögfræðingur
Skrifstofa kjaramála leitar að öflugum lögfræðingi til starfa.
Skrifstofa kjaramála ber ábyrgð á gerð kjarasamninga fyrir hönd Reykjavíkurborgar og annast fyrirsvar Reykjavíkurborgar
gagnvart stéttarfélögum og öðrum aðilum vinnumarkaðarins. Skrifstofan veitir ráðgjöf vegna vinnuréttar og ber ábyrgð á túlkun
kjarasamninga ásamt því að bera ábyrgð á og hafa eftirlit með launamyndunarkerfi Reykjavíkurborgar.
Skrifstofa kjaramála tilheyrir mannauðs- og starfsumhverfissviði sem er kjarnasvið innan stjórnskipulags Reykjavíkurborgar
og hefur aðsetur í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Umsóknarfrestur er til 23. maí nk. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf og skal umsóknum skilað rafrænt
á vefsíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Rakel Guðmundsdóttir skrifstofustjóri á skrifstofu kjaramála í gegnum netfangið:
rakel.gudmundsdottir@reykjavik.is.
Helstu verkefni:
• Túlkun og framkvæmd kjarasamninga Reykjavíkurborgar
• Samskipti við stéttarfélög og aðila vinnumarkaðarins
• Lögfræðilegar álitsgerðir og/eða umsagnir tengdar lögum,
reglugerðum og reglum um vinnurétt og kjarasamninga
• Lögfræðileg ráðgjöf á sviði vinnuréttar
• Situr í samninganefnd Reykjavíkurborgar
• Tekur þátt í stefnumótun og innleiðingu í kjara- og
mannauðsmálum
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Embættispróf eða meistarapróf í lögfræði
• Þekking og reynsla á sviði vinnuréttar
• Þekking og reynsla af kjaramálum er æskileg
• Reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
• Góð íslensku og enskukunnátta í ræðu og riti
• Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Skipuleg og fagleg vinnubrögð
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Sölustjóri hjá Skeljungi
Helstu verkefni og ábyrgð
n Öflun nýrra viðskiptasambanda
n Skipulagning söluherferða
n Fylgja eftir settum markmiðum
n Viðhald viðskiptasambanda
n Fleiri verkefni í samráði við næsta yfirmann
Menntunar og hæfniskröfur
n Reynsla af sölustörfum og viðskiptastýringu
n Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og mikil þjónustulund
n Eiginleiki til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði
n Auðvelt með að koma frá sér upp lýsingu í ræðu og riti
n Góð tölvukunnátta
n Grunnþekking á smurolíum og bílarekstrarvörum er kostur
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingi Fannar Eiríksson, sviðs stjóri
sölu- og rekstrarsviðs, ingifannar@skeljungur.is, sími: 444-3000.
Sótt er um starfið á vef Skeljungs, skeljungur.is/laus-storf.
Umsóknarfrestur er til og með 24. maí næstkomandi.
Skeljungur ehf. leitar að öflugum og metnaðar fullum
aðila í starf sölustjóra. Hlutverk sölustjóra er að selja
eldsneyti, smurolíur og ýmsar rekstrarvörur til smærri
og stærri fyrirtækja um land allt.
Um Skeljung
Skeljungur er traustur félagi viðskiptavina sinna og leggur áherslu á að
hafa innanborðs áhugasamt og hæft starfsfólk sem sýnir frumkvæði, met-
nað í starfi og tekur virkan þátt í að gera félagið sífellt betra.
Hlutverk Skeljungs er að þjóna orkuþörf fyrirtækja á hagkvæman og
öruggan máta í sátt við samfélagið og umhverfi sitt. Starfsemi Skeljungs
er á sviði sölu og þjónustu við fyrirtæki tengt fjölorku. Fyrirtækið sér um
dreifingu, innkaup og heildsölu á eldsneyti, smurolíum, hreinsi- og ef-
navörum, áburði sem og öðrum vörum og þjónustuþáttum til fyrirtækja
og bænda. Þjónusta og sala til stór notenda, til útgerða, í flug og verktöku
er einnig hluti af starf seminni. Skeljungur IS er enn fremur umboðsaðili
Shell á Íslandi auk þess að fara með eignarhald í Barki, EAK og Fjölveri.
Ert þú
traustur félagi?
Skeljungur er jafnlaunavottað fyrirtæki og hvetjum við konur jafnt sem karla að sækja um viðkomandi starf.
Skeljungur, traustur félagi
Þátttakandi
í íslensku
atvinnulífi
í 50 ár
hagvangur.is
10 ATVINNUBLAÐIÐ 7. maí 2022 LAUGARDAGUR