Fréttablaðið - 07.05.2022, Page 52

Fréttablaðið - 07.05.2022, Page 52
Skjalastjóri Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu leitar að skjalastjóra sem hefur áhuga á að leiða þróun skjalastjórnunar innan embættisins. Skjalastjóri ber faglega ábyrgð á skjalamálum embættisins og hefur það markmið að skjalastjórn sé rekin með skipulegum og skilvirkum hætti í samræmi við lög og reglur sem stofnunin starfar eftir. Helstu verkefni og ábyrgð • Ábyrgð og umsjón með skjalasafni embættisins • Ábyrgð og ritstjórn gæðahandbókar • Rekstur og eftirlit gæða- og skjalastjórnunarkerfis • Þróun skjalastefnu og mótun verklags við skjalastjórn, þ.m.t. rafræna skjalavörslu • Ráðgjöf og fræðsla fyrir starfsfólk um skjalamál og eftirfylgni með skjalaskráningu • Samstarf við önnur sýslumannsembætti um samræmingu skjalamála • Frágangur og skil á gögnum til Þjóðskjalasafns • Stuðlar að stöðugum umbótum á ferlum sem varða skjalastjórnun og rafræna skjalavörslu Menntunar- og hæfnikröfur • Háskólapróf í upplýsingafræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur • Þekking á gæðamálum • Gott vald á upplýsingatækni, þ.m.t. á rafrænni skjalavörslu • Góð samskipta- og samvinnuhæfni og jákvætt viðmót • Frumkvæði, drifkraftur, skipulagni og sjálfstæði í starfi • Gott vald á íslensku í ræðu og riti Umsóknarfrestur er til og með 16. maí 2022. Sótt er um starfið á Starfatorg.is Umsókn þarf að fylgja afrit af prófskírteinum og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda í starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Vigdís Edda Jónsdóttir mannauðsstjóri (vigdisj@syslumenn.is). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Við ráðningu er tekið mið af jafnréttisstefnu Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Sýslumenn fara með framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði, hver í sínu umdæmi, skv. lögum nr. 50/2014. Í umdæmi sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu búa um 64% landsmanna. Nánari upplýsingar um verkefni sýslumanna má finna á island.is/syslumenn. Erum við að leita að þér? 18 ATVINNUBLAÐIÐ 7. maí 2022 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.