Fréttablaðið - 07.05.2022, Síða 68
og fermingarblaðið okkar sem við
gerðum um daginn. Það er ekki séns
að gera þetta allt einn,“ útskýrir
Hildur sem segist umkringd hæfi-
leikaríku fólki.
Hildur tekur fram að þær konur
sem starfi hjá Yeoman séu bæði á
breiðu aldursbili og alls konar í lag-
inu. „Við framleiðum fjölbreyttar
stærðir og tökum allar þátt í að máta
snið og stærðir. Við hugsum mikið
um að gera föt sem klæða alls konar
líkamstýpur og gerum föt í stærðum
frá XS-XXL. Okkur langar að gera föt
sem efla sjálfstraustið, konur veita
okkur innblástur og við viljum vald-
efla þær með réttu flíkinni.“
Óður til bjartari tíma
Það er alltaf mikil eftirvænting eftir
nýrri línu frá Yeoman en í gærkvöldi
var hulunni svipt af IN BLOOM,
nýrri línu, með sýningu í Höfuð-
stöðinni, safni Shoplifter
í Elliðaárdalnum.
„Línan er óður
t i l bja r t a r i
tíma sem eru
loksins mætt-
ir, partí, glimm-
er, pastel og fjör.
E f t i r þ en na n
harða vetur lang-
aði okkur bara í
smá hamingju-
sáldu r,“ seg ir
hún og bendir
á að í línunni sé
að finna sumar-
leg a r f l í k u r
s e m h e n t i
bæði í strand-
ferðalögin og
s u m a r æ v i n-
týri í íslenskri
náttúru.
Stórstjörnur í
Yeoman
Markaðssetn-
ing út f y r ir
landsteinana
er f lókið fyrir-
bæri en erlendar
stjör nur hafa
sést í Yeoman-
flíkum.
„Þetta er marg-
þætt en hef ur
mikið að gera með
samfélagsmiðlana
okkar. Oft f inna
stílistar stjarnanna
okkur á Instagram
og hafa samband.
En einnig erum við
með PR-skrifstofu í
London sem sér um
að lána f líkur til
tónlistarfólks, leik-
ara, eða áhrifafólks
á sviði tísku. Kard-
ashian-systurnar
eru til dæmis með
nokkrar f líkur í
láni, svo stundum
er maður heppinn
og þær sjást í ein-
hverju eins og Kylie
Jenner sem birti
mynd af sér á dög-
unum í f lík frá mér.
En stundum er maður
það ekki.“
Sjálfri f innst Hildi
skemmtilegast að vinna
náið með tónlistarfólki.
„Ég er til dæmis mikill
aðdáandi sveitar sem heitir
Kruangbin og við Laura,
bassaleikarinn, spjöllum oft.
Hún og hennar tónlist veita
mér innblástur og hún hefur oft
klæðst fatnaði frá mér við ýmis til-
efni. Hún klæðir sig meira sjálf og er
ekki alltaf með stílista.“
Hildur nefnir einnig bandarísku
söngkonuna Kehlani. „Hún er algjör
töffari og stílistinn hennar er oft í
bandi að biðja um eitthvað nýtt og
spennó fyrir mismunandi tækifæri.“
Stórar búðir banka upp á
Hildur vann sjálf í plötubúð í mörg
ár og segist alltaf hafa haft gaman af
því að grúska í tónlist. „Nú þegar ég
hef minni tíma í að uppgötva eitt-
hvað nýtt hjálpar þessi vinna við
það. Ég dýrka hvað þetta heldur
manni á tánum tónlistarlega séð.“
Hildur segir fatnaðinn farinn að
seljast töluvert erlendis í gegnum
vefsíðuna. „Einnig eru stórar búðir
úti farnar að banka upp á sem er
frábært. Það er samt mjög erfitt
að keppa við sendingarkostnað á
öðrum erlendum síðum.
Það mætti hjálpa þessari grein
miklu meira en gert er hér heima
svo hún verði samkeppnishæfari.
Það er svo mikið af hæfileikafólki
hér heima og þessi grein hefur alla
burði til að verða mjög sterk útflutn-
ingsgrein,“ segir hún að lokum. ■
Hildur segist hafa farið að vinna að klassískari flíkum á Covid-tímum. MYND/SAGA SIG
Glaðlegt hönnunarteymi Yeoman. MYND/ANNA MAGGÝ
Hildur Yeoman hefur fest sig
í sessi sem einn vinsælasti
fatahönnuður landsins og því
alltaf mikil eftirvænting sem
fylgir nýrri línu frá henni.
IN BLOOM, óður til bjartari
tíma, gefur sannarlega tóninn
inn í sumarið.
Við erum mikið partí-
merki, þegar það mátti
ekki djamma þá var
því eðlilega rólegra
hjá okkur, segir Hildur
spurð út í hvernig reksturinn hafi
farið út úr Covid-tímanum. „Fyrsta
bylgjan var erfiðust, þá stóðum við
á tómum Laugavegi að gera story
fyrir Instagram eins og einhverjir
veruleikafirrtir „influencers in the
wild“,“ segir hún og hlær. „Það var
samt það sem hélt í okkur lífinu,
samfélagsmiðlar og vefverslunin
okkar.“
Hún segist í framhaldi hafa lært
betur á bylgjurnar og nýtt tímann
vel.
„Við vorum tilbúin með eitthvað
nýtt og spennandi þegar losnaði
um og fólk vildi fara að dansa. Eins
fórum við að vinna að klassískari
flíkum og ullarflíkum og ullarsett-
um sem henta vel í útivist, sumar-
og vetrarævintýri.“
Handteiknaði beint á
flíkurnar
Í upphafi ferilsins
ha nnaði Hildu r
aðallega aukahluti
en fór svo að færa
sig yfir í fatnað en
segir sjálf að þær
f líkur hafi verið
algjör „showpieces“,
og því eðli málsins
samkvæmt ekki farið
í framleiðslu.
„Ég var þá að hand-
teikna prentin beint á
f líkurnar og bródera í
þær. Eins voru fötin oft
úr efnum sem hefðu illa
þolað þvott. Ég var bara að
gera tilraunir og leyfði mér
að þróa minn stíl án þess að
hugsa um að fólk myndi vilja
ganga í f líkunum.“
En eftirspurnin myndaðist
og árið 2015 ákvað Hildur að
gera fyrstu línuna fyrir fram-
leiðslu og síðan hafa þær verið
þó nokkrar þó að hún segist ekki
endilega hafa talið þær.
Endurnýtt efni úr plasti
Spurð um ferlið svarar Hild-
ur ákveðin: „Tíska er team-
work. Hönnunarteymið í
Yeoman samanstendur af
mér, Steinunni Eyju fata-
hönnuði sem hefur verið
með mér frá því við opn-
uðum Yeoman verslunina
og Alexöndru Jónsdóttur
sem byrjaði fyrir um tveim-
ur árum.“
Hildur segir í mörg horn að
líta við hönnun fatnaðar. „Við
erum ekki bara að hanna flík-
ur, gera prent, drapera og sníða.
Það þarf líka að finna bestu
efnin, við höfum til að mynda
lagt mikið upp úr því að finna efni
úr endurnýttu hráefni,“ segir hún en
endurnýttir þræðir, unnir úr plasti
úr sjónum, eru notaðir í fatnað eins
og sundboli og marga kjólanna en
sumir þeirra eru unnir úr efni úr
trjákvoðu.
„Við sjáum líka alveg um mark-
aðsmál sjálf, samfélagsmiðlana,
setjum upp lookbook og blöð eins
Partímerkið
varð klassískara í faraldrinum
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
Ný lína Yeoman, IN BLOOM, er óður
til bjartari tíma. MYND/SAGA SIG
Við hugsum mikið um
að gera föt sem klæða alls
konar líkamstýpur og
gerum föt í stærðum frá
XS-XXL.
32 Helgin 7. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ