Bændablaðið - 24.03.2022, Page 6

Bændablaðið - 24.03.2022, Page 6
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 20226 Búnaðarþing 2022 verður haldið dagana 31. mars til 1. apríl næstkomandi, unnið er að undirbúningi og skipulagi þessa dagana svo þingið geti gengið sem best má verða. Mikil reynsla var af Búgreinaþingunum fyrr í mánuðinum og margt rætt þar sem mun rata inn á Búnaðarþingið. Eitt af stóru málum þingsins er stefnumörkun Bændasamtakanna til næstu ára. Mikilvægt er að ná samstöðu um helstu mál til framtíðar svo stjórn og starfsmenn hafi veganesti til næstu verka. Upprunamerki Viku eftir Búgreinaþingið var afhjúpað nýtt upprunamerki landbúnaðarafurða, „Íslenskt staðfest“, en ráðherra matvæla afhjúpaði merkið með viðhöfn í Hörpu þann 14. mars síðastliðinn. Merkið hefur strax fengið athygli sem samræmd skilaboð um íslenskar afurðir og vil ég óska öllum til hamingju með merkið. Nú er það okkar að standa vörð um merkið og vinna því sess í huga neytenda. Þetta er ekki átaksverkefni heldur langtímahugsun sem þarf að fylgja íslenskri framleiðslu til framtíðar. Fæðuöryggi? Nú stöndum við frammi fyrir þeim tímum að ekkert er sjálfgefið í þessari veröld. Eins og þróun átaka í Austur-Evrópu er að raungerast höfum við framleiðendur talsverðar áhyggjur af þróun aðfangaverðs. Í áburði hefur það raungerst og það meira að segja fyrir stríðsrekstur. En hvernig verður þróun til lengri tíma með áburð til framtíðar þar sem fyrirsjáanlegt er að viðskiptahömlur á Rússland munu vera í talsverðan tíma þótt átökum ljúki? Þetta er eitthvað sem við verðum að vera meðvituð um og hvernig við leysum áburðarmál til framtíðar. Annað sem truflar okkur í dag eru þessar miklu hækkanir á kornafurðum og möguleikar úkraínskra bænda til að yrkja jörðina á vordögum. En eins og hefur komið fram er framleiðsla á korni og kornafurðum mjög mikil á þessu svæði og hefur í raun bein áhrif á verð á heimsmarkaði á þessum afurðum. Nú sem aldrei áður er nauðsynlegt að ráðamenn þjóðarinnar í samstarfi við Bændasamtökin marki stefnu til framtíðar um birgðir, ekki síður eflingu á þeim þáttum sem geta leitt til meiri sjálfbærni til lengri tíma. Því við erum og verðum alltaf að horfa til þess að fyrst og fremst eru bændur matvælaframleiðendur. Ég vil hvetja til þess að bændur horfi til þeirra möguleika sem við höfum til að verða sjálfum okkur nóg í að brauðfæða íslenska þjóð. Bændablaðið kemur út 24 sinnum á ári. Því er dreift ókeypis á yfir 400 stöðum á landinu og á öll lögbýli landsins. Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti gegn greiðslu burðargjalds. Árgangurinn (24. tölublöð) kostar þá kr. 12.200 með vsk. (innheimt í tvennu lagi). Ársáskrift fyrir eldri borgara og öryrkja kostar 8.000 með vsk. Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279 Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar − SKOÐUN Stríðið í Úkraínu hefur opnað augu fólks fyrir ýmsum furðulegheitum sem tengjast stríðandi aðilum þó enn kjósi margir að trúa bara því sem hentar best. Enda er sannleikurinn yfirleitt það fyrirbæri sem fyrst fýkur út um gluggann í stríði. Mikið fer fyrir umræðu um rússneska ólígarka (oliharchs), sem svo eru kallaðir, og urðu skyndilega ríkir og vellauðugir við hrun Sovétríkjanna sálugu sem staðfest var með undirritun Alma-Ata samningsins 21. desember 1991. Ólígarkarnir, eða frumkvöðlarnir eins og þeir voru líka kallaðir, urðu í raun til þegar ákveðið var að fara í einkavæðingu á orku- og iðnaðarinnviðum gömlu Sovétríkjanna. Þá var gott að eiga vini í háum stöðum í nýju Rússlandi. Vesturlandabúar, og Íslendingar þar á meðal, eru nú mjög uppteknir af að fordæma þá olígarka sem þarna spruttu upp og efnuðust óstjórnlega við að ná undir sig ríkiseigum gamla stórveldisins. Þar má meðal annars nefna orkukerfið með öllum sínum olíuiðnaði, sem Þýskaland og fleiri ESB ríki eru nú afskaplega háð. Talandi um ólígarka, þá má velta því fyrir sér hvort það skipti máli af hvaða þjóðerni þeir peningamenn eru sem kunna að nýta sér tækifærin þegar pólitískri fulltrúar þjóða ákveða að bjóða þeim aðgengi að eigum almennings fyrir slikk. Ætli rússneskir ólígarkar séu eitthvað verri en kollegar þeirra af sama sauðahúsi í öðrum löndum þegar upp er staðiðð? Hvort við köllum þá ólígarka eða eitthvað annað skiptir væntanlega engu máli. Við kölluðum snillingana sem fleyttu rjómann af íslensku samfélagi fyrir bankahrunið 2008 útrásarvíkinga. Allt voru það snillingar á sinn hátt í að maka sína króka og áttu þá auðvelt með að eignast vini í ótrúlegustu kimum íslenskra stjórnmálaflokka til hægri og vinstri. Á Íslandi þurfti ekki að leggja niður eitthvað sovét til að opna kjötkatlana og hefja hér ólígarkauppeldi í stórum stíl. Aðeins þurfti að búa til fáein lög um kvóta og frjálst og óháð framsal veiðiheimilda, til að blása almennilegu lífi í nasir þessara nýju þjóðfélagsþegna. Upp úr þessu spratt mikil gróska og hugmyndaauðgi um hvernig mætti betur nýta verðmæti almennings sem lágu fyrir hunda og manna fótum og voru auk þess án nokkurra hirða að séð varð. Ríkisstofnanir voru seldar fyrir slikk og stundum var jafnvel aldrei ljóst hvort nokkuð hafi komið upp í kaupverðið. Samt dugði það vel til að kaupa einn banka og annan, jafnvel með fallegum loforðum um að nýta rúblugróða frá sjálfu draumalandi „orginal“ ólígarka. Auðvitað voru það svo tóm leiðindi að setja út á það þegar peningaloforðin reyndust mörg í plati og öll þessi spilaborg hrundi til grunna einn góðan haustdag 2008. Batnandi mönnum er samt best að lifa. Búið var að sannreyna uppskriftina að getnaði almennilegra ólígarka á Íslandi og ástæðulaust að láta svo góða uppskrift fara forgörðum. Nóg er líka til af eignum sem skrifaðar eru á þjóðina og best að losa hana við slíka bagga. Orkukerfið reyndist rússneskum ólígörkum mikill happafengur líkt og kollegum þeirra í ESB og því skyldi slíkt hið sama ekki geta átt við okkar eigin ólígarka? Þó löngum hafi verið þrætt fyrir að innleiðingar ótal orkupakka myndi leiða til uppskipta og sölu á stærsta orkufyrirtæki landsmanna, þá er nú búið að opinbera áhugann á slíku í röðum alþingismanna. Enda til hvers að láta þjóðina sitja uppi með slíkan ófögnuð þegar duglegir menn geta grætt svo miklu meira á því bixi? Orkuna sjálfa, sem hér drýpur af hverju strái, geta ólígarkar af íslenskum ættum síðan gert að enn meiri pening með innleiðingu á mælum, – sem eru sagðir afskaplega smart. /HKr. Þeir eru nokkrir Svínadalirnir á Íslandi, en þessi liggur samsíða norðanverðum Hvalfirði. Fyrir miðri mynd blasir bærinn Geitaberg og á bak við hann sjást tveir stallar neðan við rætur Söðulfells, sem er 358 metra hátt. Um gilið hægra megin á myndinni rennur Geitabergsá út í Þórisstaðavatn. Hægt er að aka í Svínadalinn skammt frá Ferstiklu í Hvalfirði og yfir Dragaveg meðfram Ferstikluhálsi. Þaðan liggur leiðin meðfram bænum Geitabergi og yfir Geldingardraga (Dragaveg) og yfir í Skorradal. Myndin er hins vegar tekin af Svínadalsvegi sem liggur til vesturs meðfram Þórisstaðavatni og Eyrarvatni og niður í Leirársveit. Mynd / Hörður Kristjánsson Gunnar Þorgeirsson formaður Bændasamtaka Íslands gunnar@bondi.is ÍSLAND ER LAND ÞITT Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 – Blaðamenn: Guðrún Hulda Pálsdóttir gudrunhulda@bondi.is – Margrét Þóra Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigrún Pétursdóttir sigrunpeturs@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Auglýsingastjóri: Þórdís Una Gunnarsdóttir thordis@bondi.is – Sími: 563 0303 Netfang auglýsinga: augl@bondi.is − Sími smáauglýsinga: 563 0300 – Vefur blaðsins: www.bbl.is − Netfang blaðsins: (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Frágangur fyrir prentun: Sigrún Pétursdóttir – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621 Blessaðir ólígarkarnir Stefnumörkun Bændasamtakanna Frá vel heppnuðu Búgreinaþingi sem fram fór nýverið. Fram undan er svo Búnaðarþing þar sem allar búgreinadeildir innan Bændasamtaka Íslands ræða málefni landbúnaðarins í heild.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.