Bændablaðið - 24.03.2022, Síða 19
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 2022 19
Efnahags- og framfarastofnunin,
OECD, telur að innrás Rússa
í Úkraínu muni hafa mikil og
langvarandi áhrif á efnahag
um allan heim. Í nýrri skýrslu
stofnunarinnar kemur fram að
hagvöxtur er skör minni í ár vegna
átakanna en verðbólga gæti aukist
um 2,5% um allan heim.
Vöruverð hefur og mun hækka
mikið samkvæmt skýrslunni.
Rússland og Úkraína standa undir
um þriðjungi af útflutningi á hveiti
í heiminum og eru auk þess afar
mikilvægir framleiðendur áburðar
og málma sem notaðir eru í iðnaði.
Hráefnisverð rýkur upp
Heimsmarkaðsverð á hveiti hefur
hækkað um 88,4% frá janúar 2022,
áburðarverð um 77,3% og verð á
maís um 42,1%. Verð á nikkel
hækkar um 63,4%, palladíum
hækkar um 34,8% og álverð um
17%. Afleiðingar þessa eru og
verða gífurlegar að mati Efnahags-
og framfarastofnunarinnar. Með
truflunum á aðfangakeðju hveitis,
maís og áburðar má búast við auknu
hungri og fæðuóöryggi um allan
heim. Hækkun málmverðs mun
meðal annars leiða af sér áhrif á
flugvéla- og bílaframleiðslu.
Þar sem Evrópa reiðir sig mjög á
orkuframboð Rússa mun kostnaður
á olíu og jarðgasi aukast gríðarlega
og bitna á heimilum álfunnar og
trufla fjölbreytta framleiðslu vöru
og þjónustu.
Um 27% af eldsneyti og 41%
af jarðgasi til Evrópu kemur frá
Rússlandi samkvæmt Mathias
Cormann, framkvæmdastjóra
OECD, en hann sagði við kynningu
skýrslunnar að það muni taka nokkur
ár að byggja upp orkuöryggi í
Evrópu og aðgerðir í þá átt þyrftu
að hefjast strax.
OECD óttast andstöðu
við hnattvæðingu
Aðalhagfræðingur stofnunarinnar,
Laurence Boone, benti á að um leið
og hagkerfi heimsins væru að reyna
að rísa úr tveggja ára kreppu vegna
heimsfaraldurs sé augljóst að stríðið
muni skaða enn frekar alþjóðlegan
efnahag og auka verðbólgu.
„Við sjáum að stríðið hefur vakið
upp öfl andsnúin hnattvæðingu sem
gætu haft djúpstæð og ófyrirsjáanleg
áhrif. Stefnur stjórnvalda gegna
mikilvægu hlutverki við að
endurreisa það öryggi sem glatast
hefur,“ segir Laurence Boone.
Áhyggjur stofnunarinnar beinast
ekki síst að fátækari ríkjum sem
reiða sig mjög á ódýran innflutning
á kornvörum frá Rússlandi og
Úkraínu. Framboðsskortur kallar
á tafarlaus og samheldin viðbrögð
stjórnvalda heimsins. Forgangs-
atriði sé að hlúa að þeim flótta-
mönnum sem nú flýja í milljónavís
frá Úkraínu.
OECD metur það svo að
markvissar ráðstafanir í ríkisfjár-
málum upp á um 0,5% af vergri
landsframleiðslu (GDP) gæti
dregið verulega úr efnahagslegum
áhrifum kreppunnar án þess að auka
verðbólgu.
/ghp
Nýr
Fendt
300 V
ario
!
Gerðust áskrifandi að fréttabréfinu
núna á www.fendt.com/300
– VERKIN TALA
Gylfaf löt 32 ● 112 Reykjavík ● Sími 580 8200 ● www.velfang. is ● Óseyri 8 ● 603 Akureyri
It‘s Fendt. Beacause we understand Agriculture.
fendt.com | Fendt is a worldwide brand of AGCO.
Nýtt og byltingarkennt
starfsumhverfi með
FendtONE.
Hornsteinninn bak við alla nýsköpun hjá Fendt er að taka eitthvað stórkostlegt
og gera það betra. Nýja Fendt vinnuumhverfið býður fleiri skjái og aðgengilega
stjórnrofa, með öllum þessum frábæru Fendt eiginleikum. Nýjir Fendt eigendur
munu samstundis upplifa sig á heimavelli.
Efnahagsleg áhrif stríðsins í Úkraínu kalla á tafarlaus viðbrögð
– að mati Efnahags- og framfarastofnunarinnar sem fram kemur í nýrri skýrslu – Hveiti hefur hækkað um 88,4% frá ársbyrjun
Laurence Boone, yfirhagfræðingur
OECD.