Bændablaðið - 24.03.2022, Page 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 202226
Rafhlöðu- og rafbílafyrirtækið
Gogoro í Taipei, höfuðborg
Taívan, afhjúpaði frumgerð af
útskiptanlegum „fastkjarna“-
rafhlöðum í heiminum þann 8. mars
síðastliðinn. Var þetta gert í léttu
rafmagnsbifhjóli frá Gogoro. Með
þessari rafhlöðu telur fyrirtækið
sig jafnframt vera að búa til nýjan
staðal fyrir skiptanlegar rafhlöður
í léttum rafknúnum farartækjum.
Rafhlaðan var þróuð í
samvinnu við ProLogium
Techno logy, sem er sagt leiðandi
fyrirtæki í rafhlöðuiðnaðinum
og með sérþekkingu á liþíum-
keramikrafhlöðum (LCB). Kera-
mikið í rafhlöðunum er sagt gera
það nær ómögulegt að í þeim kvikni.
Þá á að vera hægt að hlaða þær mun
hraðar en eldri rafhlöður.
Ekki í dreifingu alveg
á næstunni
Gogoro útskiptanlegu fast-
kjarna-rafhlöðunum er hægt að
skipta á nokkrum sekúndum á
rafhlöðuskiptistöðvum. Þar eru
rafhlöðurnar síðan endurhlaðnar
fyrir næsta viðskiptavin.
Kálið er þó ekki sopið þótt
í ausuna sé komið, því nýju
rafhlöðurnar fara ekki strax í
dreifingu á þúsundir rafhlöðu-
skiptistöðva Gogoro sem
notast enn við hefðbundnar
liþíum-jóna rafhlöður. Nýju
fastkjarna-rafhlöðurnar eru enn
á þróunarstigi. Ekki er heldur
útséð með hvort Gogoro tekst
að fjármagna framleiðsluna. Þessi
kynning í Taipei er því væntanlega
fyrst og fremst til að ganga í augun
á mögulegum lánveitendum og/eða
fjárfestum.
Gogoro framleiðir sínar eigin
vinsælu rafmagnsskutlur. Þá eru stór
fyrirtæki eins og Yamaha einnig í
samstarfi við Gogoro um að fá
rafhlöður Gogoro í sín léttu bifhjól.
Önnur öflugri „fastkjarna“-
rafhlaða í þróunarferli
Þá er Gogoro með nýjan „fast kjarna“
rafhlöðupakka í þróun. Hann
er sagður geta aukið núverandi
getu Gogoro rafhlaðanna úr 1,7
kílówattstundir (kWst) á hverja
rafhlöðu í 2,5 kWst. Sú 40% aukning
á orkuþéttleika myndi leiða til
sambærilegrar aukningar á drægni.
Slíkt afl myndi t.d. duga ágætlega
fyrir venjulegan golfbíl. Smábíllinn
Wuling Mini, sem er sagður vinsæl-
asti ódýri rafbíllinn í Kína, þyrfti
3-5 rafhlöður af þessari nýju gerð.
Wuling Mini er framleiddur af
kínversk-bandarísku samsteypunni
SAIC-GM. /HKr.
Nýjasta rafreiðhjólið frá Yamaha
er ekki bara framúrstefnuleg
ímyndun – fyrirtækið hefur gefið
það út að rafhjólið verði sett í
framleiðslu og að það verði komið
í sölu snemma árs 2023.
Það er bara mars 2022, en árið
er nú þegar að reynast spennandi í
rafhjólaheiminum. Framleiðandinn
Ducati hefur t.d. afhjúpað fjaðurlétt
rafhjól. Cannondale afhjúpaði nýja
gerð með 100 mílna drægni, eða um
161 km. Biktrix afhjúpaði annað hjól
sem var sérstaklega hannað til að
koma í veg fyrir að það hreinlega
liðist í sundur, eins og það sé viðtekin
venja hvað varðar ný rafhjól. Þá setti
Rad Power Bikes á markað eitt af
sterkustu og jafnframt ódýrustu
samanbrjótanlegu rafhjólunum sem
menn hafa nokkurn tíma séð.
Fyrr í þessum mánuði bættist
Yamaha við hópinn með par af
nýjum rafhjólum sem eru smíðuð
fyrir borgarferðir og stíga og
fleira er á döfinni hjá fyrirtækinu.
Yamaha B-01 er einhvers staðar
á milli rafhjóls og bifhjóls, með
öflugum mótor að aftan og
risastórum dekkjum fyrir alvöru
utanvegaakstur. Mest áberandi er
grind með opinni vinnupallahönnun
í stað hefðbundinnar rörasmíði.
Hjólið er vissulega athyglisvert, en
eins og greint er frá í ritinu Electrek
er B-01 ekki bara til sýnis.
„Framtíð þess mun rætast fyrr
en seinna,“ sagði Eric De Seynes,
forseti Yamaha Motors Europe. –
„Við munum hefja framleiðslu á
þessu ökutæki innan eins árs, frá
og með 2023.“ /HKr.
Yamaha B-01 er einhvers staðar á milli rafhjóls og bifhjóls, með öflugum mótor að aftan og risastórum dekkjum
fyrir alvöru utanvegaakstur.
Mikið að gerast í smíði rafhjóla:
Yamaha á leiðinni með
nýstárlegt rafhjól
Cannondale afhjúpaði nýja gerð af rafhjóli sem sagt er vera með 100 mílna
drægni eða til 161 km aksturs á einni hleðslu.
Rad Power Bikes setti á markað eitt af sterkustu og jafnframt ódýrustu samanbrjótanlegu rafhjólunum sem sagt
er að hafi nokkru sinni sést á markaðnum.
Vesturhrauni 3, Garðabæ | Austurvegi 69, Selfossi
Til afhendingar strax
Stærsti framleiðandi fjórhjóla í Evrópu
MIKIÐ ÚRVAL
FJÓRHJÓLA Á LAGER
Rafhlöðu- og rafbílafyrirtækið Gogoro í samvinnu við ProLogium Technology um rafhlöðuhönnun:
Fyrstu útskiptanlegu „fastkjarna“-liþíum-keramikrafhlöður heims kynntar í Taívan
Útskiptanleg Gogoro „fastkjarna“-rafhlaða var kynnt í Taipei, höfuðborg
Taívan, þann 8. mars síðastliðinn.
Gogoro rafskutlan var hönnuð í samstarfi
við Yamaha og hugsuð til markaðssetningar
um allan heim.
TÆKNI&VÍSINDI