Bændablaðið - 24.03.2022, Side 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 2022 29
Víkurhvarfi 8, Kópavogur
Sími 544 4656 - www.mhg.is
EZ-GO RXV ELiTE Golfbílar
Endingargóð og viðhaldsfrí Elite Lithium
rafhlaða með 8 ára ábyrgð
Til á lager
Jóhannesson og Sjöfn Sigurðardóttir,
búa enn á staðnum og eru henni
innan handar.
„Hér starfar líka gott fólk sem
hefur haldið starfseminni gangandi
þótt þau séu komin með nýjan
yfirmann sem kann frekar lítið,“
segir Halla.
Ætlar að auka við útiræktun
Á garðyrkjustöðinni Gróður er
stunduð ylrækt í rúmum 4.000 fm
gróðurhúsum ásamt útiræktun.
Starfsmannafjöldinn er frá sex á
veturna og upp í 12–15 á sumrin.
„Undirstaða rekstursins eru
sólskinstómatarnir sem við ræktum
allan ársins hring. Síðan erum við
með minna af hefðbundnum stórum
tómötum. Úti ræktum við blómkál,
kínakál og sellerí, sem ég vil auka
töluvert strax í sumar,“ segir Halla
en Gróður er eini ræktandi sellerís
á landinu.
Hún segist enn vera að finna
jafnvægi eftir stökkið stóra. „Það
er allt svo nýtt og ég læri eitthvað
á hverjum degi. Um leið og ég fæ
svar við einni spurningu vakna tíu
aðrar. Ég áttaði mig alveg á að þetta
yrði mikil skuldbinding, enda kallar
þetta á viðveru hér alla daga og það
mun ekkert breytast á næstunni. Ég
var líka bara orðin þreytt á því að
sitja við tölvu og vildi vera á meiri
hreyfingu. Mér finnst þetta því
spennandi, enda þarf að huga að
mörgum breytum og umhverfið er
rosalega lifandi.“
Halla segir sveitungana á
Flúðum hafa tekið henni opnum
örmum. „Fjölskyldan er vestur á
Snæfellsnesi og flesti vinirnir í
bænum svo þetta eru viðbrigði, rétt
eins og að flytja til útlanda. En hér
er garðyrkja aðalatvinnugreinin
og allir af vilja gerðir til að hjálpa
mér. Ég er í stöðugu sambandi við
reynsluboltana á svæðinu, þau eru
ekki orðin þreytt á mér, enn þá að
minnsta kosti,“ segir hún hlæjandi.
Í náinni framtíð sér Halla fyrir
sér að auka framleiðslu Gróðurs,
enda vanti ekki eftirspurn eftir þeim
afurðum sem hún ræktar.
„Þetta mun snúast um stærðar
hagkvæmni. Ég er byrjuð að auka
útiræktunina, en það er ekki hlaupið
að því að bæta við sig starfsfólki
þegar vantar húsnæði á svæðinu.
Útiræktuninni fylgir rosalega mikil
handavinna. Hver einasti kálhaus
er handskorin upp, svo þarf að
snyrta og pakka. Með því að bæta
geymsluaðstæður og tækjakost gæti
ég vonandi boðið upp á fjölbreyttari
útiræktaðar afurðir og yfir lengra
tímabil. Svo dreymir mig strax um
að byggja við gróðurhúsin. En ég
vona að ég eigi eitthvað inni til að
fullnýta rýmið sem er til staðar, setja
t.d. upp sparneytnari lýsingu og stýra
aðstæðum betur. Þannig vil ég fyrst
reyna að auka kíló af uppskeru á
hvern fermetra í stað þess að bæta
við fermetrum.“
- Frh. á næstu síðu.
„Ég áttaði mig alveg á að þetta yrði mikil skuldbinding, enda kallar þetta
á viðveru hér alla daga og það mun ekkert breytast á næstunni.“ Halla vill
m.a. auka útiræktun og geta boðið upp á fleiri afurðir. Mynd / HSSH
ORKUSJÓÐUR
Orkusjóður auglýsir styrki til orkuskipta 2022
ORKUSJÓÐUR
Heildarfjárhæð til úthlutunar er allt að 900 m.kr.
Styrkupphæð til hvers verkefnis ræðst af getu sjóðsins og fjölda umsókna.
Styrkir geta numið 33% af áætluðum stofnkostnaði.
Verkefnastyrkir
Umsóknafrestur er til 7. maí 2022
Umsóknir skulu sendar gegnum
þjónustugátt Orkustofnunar: gattin.os.is
orkusjodur.is
2. Minnkun olíunotkunar í iðnaði: Búnaður sem nýtir vistvæna orku í stað olíu.
1. Bætt orkunýting: Búnaður sem minnkar raforkunotkun til beinnar hitunar í
rafkyntum varmaveitum og/eða minnkar olíunotkun.
3. Raf- og lífeldsneyti og metan: Bættir innviðir (t.d. dreifing, varaafl) og/eða
framleiðsla raf- eða lífeldsneytis úr orku sem tryggð hefur verið til þess
verkefnis. Nýting líf- og rafeldsneytis og metans skal einnig vera tryggð (t.d. í
tæki), hvort heldur sem orkugjafi eða til frekari framleiðslu.
4. Hleðslustöðvar fyrir samgöngur: Uppsetning hleðslu- eða áfyllingarstöðva til
þéttingar nets hleðslustöðva við vegakerfið sem og gististaði, frístundasvæði
(t.d. íþróttahús, sundlaugar), verslanir og fjölsótta ferðamannastaði. Ef um
hraðhleðslustöðvar er að ræða (150 kW og stærri) getur kostnaður við
sérlausnir verið innifalinn (t.d. rafhlöður, sólarsellur, vindrellur).
5. Orkuskipti í haftengdri starfsemi: Aðgerðir sem nýta vistvæna orku í
haftengdri starfsemi og siglingu til og frá höfn.
Undirstaða rekstursins eru sólskins-
tómatarnir. Mynd / ghp
Halla býr vel að því að hafa reynslumikið starfsfólk og fyrri eigendur Gróðurs
sér til halds og trausts. Mynd / ghp