Bændablaðið - 24.03.2022, Blaðsíða 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 202236
LÍF&STARF
Fyrirtækið Strúktúr ehf. var
meðal þeirra sem voru með
kynningarbás á Búgreinaþingi
sem haldið var á Hótel Natura fyrir
skömmu. Þar kynnti fyrirtækið
CLT-límtrés- og stálgrindarhús,
yleiningar og klæðningar sem það
flytur inn.
Stefna fyrirtækisins er að bjóða
vörur sem standast íslenskt veðurfar
og uppfylla alla staðla og gæðakröfur
sem kaupandinn gerir. Meðal þekktra
bygginga sem reistar hafa verið úr
timbureiningum frá Strúktúr má
nefna hús Hafrannsóknastofnunar
að Fornubúðum 5 við Hafnarfjarðar
höfn. Þetta er fimm hæða bygging
og er jafnframt stærsta timburhús
landsins.
Með öfluga samstarfsaðila
,,Við veljum okkur samstarfsaðila
af kostgæfni, hvort sem er innlenda
eða erlenda birgja,“ segir Ingólfur
Á. Sigþórsson, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins.
Strúktúr var stofnað árið 2013
og starfsmenn þess búa yfir
mikilli reynslu af húsbyggingum.
Fyrirtækið flytur inn krosslímdar
CLT timbureiningar frá fyrirtækinu
Binderholz í Austurríki en þeir eru
stærsti framleiðandi CLT í dag og
þriðji stærsti timburframleiðandi í
heiminum með 29 verksmiðjur og
um 5.000 manns í vinnu.
Ingólfur segir að í dag sé
gríðarlega álitlegur kostur að byggja
úr CLTtimbureiningum.
Umhverfisvænt efni með hátt
einangrunargildi
,,Aukningin á að byggja úr timbri
hefur aukist, ekki síst í ljósi þess að
það er verið að nota endurnýtanlegt
efni. Efnið bindur kolefni og er því
umhverfisvænt. Ekki er að finna
kuldabrýr sem bjóða heim raka og
myglu. Einingarnar eru með hátt
Ugildi og því þarf minni einangrun
utan á þær,“ segir hann og bætir við
að í dag megi finna háhýsi um alla
Evrópu sem byggð eru úr CLT
timbureiningum.
Skrifstofuhús, fjölbýlishús,
parhús og einbýlishús
,,Við erum búnir að reisa í dag
4.200 m2 hús á fimm hæðum í
Hafnarfirði sem er alfarið úr CLT,
meira að segja lyftugöng og stigar.
Einnig erum við búnir að reisa fjölda
einbýlis, par og raðhúsa hér á landi
auk sumarbústaða. Þá er búið að
reisa fjögur 6 íbúða fjölbýlishús í
Reykjavík auk fjölda einbýlis og
parhúsa. Við sjáum líka um hönnun
ef þess er óskað.“
Fjölmargir kostir og
kostnaðarhagkvæmar lausnir
Ástæða fyrir vinsældum eining
anna er gríðarlegur styrkur í
efninu, vistfræðilegi hlutinn og
hagkvæmnin.
,,Einingarnar koma tilsniðnar
á byggingarstað sem gerir það að
verkum að það er fljótlegt að reisa
og loka húsinu.CLT timbur einingar
styttir byggingartíma töluvert meðan
ávallt er leitast við að viðhalda
miklum gæðum,“ segir Ingólfur og
heldur áfram.
Samsetning massífs timburs
og hefðbundinna byggingarefna,
svo sem steinsteypu, stál og gler,
geta leitt til kostnaðarhagkvæmra
lausna sem sameina kosti hefð
bundinna efna.
Hagkvæmara en stál
Hlutfallslega lítil þyngd massífs
viðar er mikill kostur, til dæmis,
þegar við byggjum aðra hæð á eldri
byggingar. CLT timbureiningar
vinnur rökin hér vegna möguleika
þess og sú staðreynd að álagið á
byggingunni, vegna lítillar þyngdar,
er ekki verulega aukið.
Í ljósi ástandsins í heiminum þá
er orðið mun hagkvæmara að byggja
úr límtré en stálgrind. /HKr.
Strúktúr ehf.:
Flytur inn krosslímdar CLT-límtréseiningar
í einbýlishús, parhús og blokkir
– frá Binderholz í Austurríki, sem er þriðji stærsti timburframleiðandi í heimi og stærsti framleiðandi CLT- eininga
Íbúðarhús í byggingu sem reist er úr krosslímdum CLT timbureiningum frá Binderholz í Austurríki sem Strúktúr
flytur inn. Mynd / Strúktúr
Ingólfur Á. Sigþórson, framkvæmda
stjóri Strúktúr.
Hús Hafrannsóknastofnunar í Hafnarfirði er byggt úr CLT timbureiningum
og er stærsta timburhús landsins. Mynd / HKr.
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Þórhallur Harðarson, framkvæmdastjóri fjármála og stoðsviða hjá
Heilbrigðisstofnun Norðurlands, var ánægður með endingu rafhlöðunnar.
Mynd / HSN
Græn skref hjá HSN við val á bílaleigubílum:
Ódýrara og betra fyrir umhverfið
Liður í því markmiði Heilbrigðis-
stofnunar Norðurlands, HSN,
að draga úr losun gróðurhúsa-
lofttegunda er að horfa til grænna
skrefa við val á bílaleigubílum.
Framkvæmdastjóri fjármála og
stoðsviða átti á dögunum leið á
Blönduós frá Akureyri, leiðin var
ekin á rafmagnsbíl og náðist á einni
hleðslu, auk þess sem 54 kílómetrar
voru eftir af hleðslunni. Þegar komið
var til Akureyrar var bíllinn settur
í hleðslu og var bílstjóri ánægður
með endingu á rafhlöðunni, þrátt
fyrir mótvind og kulda á leiðinni.
„Það er ekki einungis
umhverfislega hagstætt að velja
rafmagnsbíl, heldur einnig
rekstrarlega hagkvæmt þar sem
kostnaður við dísel eða bensínbíl
hefði verið 6.500 til 7.500 krónur
meira,“ segir á vef HSN.
Orkuskipti í bílaflotanum
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
keypti í febrúar fyrsta 100%
rafmagnsbílinn, hann er af gerðinni
Volvo XC40, en fyrir á HSN alls
6 Outlander tengiltvinnbíla. Þá
er búið að panta Skoda smájeppa
sem er 100% rafdrifinn og
verður hann afhentur á komandi
sumri. Kaup HSN á rafbílum eru
hluti af orkuskiptum á bílaflota
stofnunarinnar og liður í því að draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda.
/MÞÞ