Bændablaðið - 24.03.2022, Blaðsíða 37
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 2022 37
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
ALLAR STÆRÐIR
AF CAT RAFSTÖÐVUM
Gerðu kröfur - hafðu samband við Karl
í síma 590 5125 og kynntu þér þína möguleika.
Stöðvar í gám
Við Norðurlandsveg - 560 VarmahlíðSími: 453 8888 - Opið virka daga kl. 9-17
Allt fyrir gæludýrin!
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
GRAFAGRINDUR
GOTT ÚRVAL
Ráðstefna á Selfossi:
Maturinn, jörðin og við
Ráðstefnan Maturinn, jörðin
verður haldin á Hótel Selfossi
dagana 7. og 8. apríl.
Markmið ráðstefnunnar er að
hvetja til upplýstrar umræðu um
áskoranir í matvælaframleiðslu
með hliðsjón af loftslagsmálum,
heilsusjónarmiðum og fleiri
áhrifaþáttum á neyslu og lífsstíl
fólks. Sjónum verður sérstaklega
beint að áhrifum á samfélög,
byggð og atvinnulíf í landinu
og þeim tækifærum sem við
stöndum frammi fyrir.
Ráðstefnan er haldin af
félaginu Auður norðursins í
samstarfi við Byggðastofnun og
fleiri. Sigurður Ingi Jóhannsson
innv iðaráðher ra se tu r
ráðstefnuna, en fjöldi áhuga
verðra erinda verða á dagskrá.
/MÞÞ
Búnaðarsamband Eyjafjarðar:
Ólíðandi viðskiptahættir og
verðmæti fara í súginn
„Það eru ólíðandi viðskiptahættir
að skila vöru sem runnin er út á
tíma sem í mörgum tilfellum leiðir
til þess að umtalsverð verðmæti
fara í súginn,“ segir í ályktun
sem samþykkt var á aðalfundi
Búnaðarsambands Eyjafjarðar.
Hvatti fundurinn afurðastöðvar í
landbúnaði og matvöruverslanir
landsins til ábyrgrar innsetningar
á vörum með það að markmiði að
minnka matarsóun sem leiði til
betri nýtingar.
Sigurgeir Hreinsson, fram
kvæmda stjóri Búnaðar sambands
Eyjafjarðar, segir að af og til ber
ist af því fréttir að matvara lendi
í ruslagámum þegar verslanir
skili vöru sem komin er á síðasta
söludag. Hann segir vitað að stóru
verslanakeðjurnar skili og eða hendi
talsverðu magni af matvælum og
segir það furðu sæta að verslunin
geti sett upp ákvæði um skilarétt –
þ.e. að hún geti skilað vöru sem ekki
selst og er að nálgast eða komin á
síðasta söludag. Slíkt gildi ekki um
vörur sem keyptar eru frá útlöndum.
Ríflega pantað inn
til að sýna full kæliborð
Nefnir hann að í tilviki norðlenska
matvælaframleiðandans Kjarna
fæðis/Norðlenska sé vörum ekið
á markað á höfuðborgarsvæðinu
en verslanakeðjurnar geti svo
losað sig við það sem ekki selst
með því að hlaða þeim aftur á
bíla og senda norður til förgunar.
Þetta fyrirkomulag sé í raun galið.
„Ástæða þess að verslunin skilar svo
miklu magni af vöru er m.a. sú að oft
og tíðum er pantað ríflega inn sem
virðist hafa þann eina tilgang að geta
sýnt fullar kistur og kæliborð. Við
vitum af þessu til að mynda varðandi
hangikjöt t.d. fyrir jólin, kæliborðin
voru alltaf yfirfull, en eftir jól var
rúllunum pakkað saman og þær
sendar norður,“ segir Sigurgeir.
Hann bendir á að afurðastöðvar
verði einnig að sjá til þess að
afgreiðslumáti sé með þeim hætti að
varan nýtist sem best og hvetur hann
fjölmiðla til að veita fyrirtækjum
aðhald í þessum efnum. /MÞÞ