Bændablaðið - 24.03.2022, Síða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 2022 41
Fyrir áhugasama. Við rannsóknir
er gerðar voru á salernisvenjum
nashyrninga komust líffræðingar
að þeirri niðurstöðu að ástæða þess
að nashyrningar snúi aftur á sama
stað til að gera þarfir sínar dag
hvern, sé vegna þess að ilmurinn
frá mykju annarra nashyrninga
veiti þeim mikilvægar upplýsingar.
Efnafræðilegar vísbendingar í
saurnum innihaldi margvísleg gögn,
sem tengjast aldri, kyni, almennri
heilsu og æxlunarstöðu.
Einn yfirmanna rannsóknarinnar
og doktor í vistfræði, Courtney
Marneweck frá háskólanum í
KwaZulu-Natal í Suður-Afríku,
útskýrði þetta fyrir National
Geographic: „Við mannfólkið lítum
á mykju sem úrgangsefni, en það er
í raun góð leið fyrir dýr til að hafa
samskipti. Í því sem við köllum
úrgang er fullt af upplýsingum sem
við kunnum ekki að nýta okkur en
má í raun segja að nashyrningar noti
mykjuhrúgur sem samfélagsnet.“ „Það
er þó ekki óvanalegt þegar kemur að
dýrum, öll þekkjum við þann ávana
hunda að þefa af stöðum sem aðrir
hafa gert þarfir sínar á. Svipað á sér
stað og hefur verið rannsakað í stórum
hópum apa, kanína og gasella, en
fjölmörg dýr geta greint efni í þvagi
og saur og nýtt sér það til þess að
vita hvað er að gerast hjá öðrum af
sömu tegund.“
Árið 2017 var þetta þó fyrst
staðfest hvað viðkom nashyrningum.
Þótt það þyki einsdæmi að þeir fari
alltaf á sama stað til að gera þarfir
sínar er það þó ef til vill ekki jafn
óvanalegt og ætla mætti, enda hafa
nashyrningar og ættfeður þeirra alla tíð
verið einstaklega vanaföst dýr. Jafnvel
þrjóskast við að halda sínum venjum
þótt það bitni á stærð stofns þeirra.
Courtney Marneweck tekur fram
að hvorki hafi verið erfitt að finna
mykjuhaugana né svæðið sem dýrin
halda sig almennt á, en troðinn stíg má
vanalega finna frá aðalsamkomusvæði
þeirra að svæði sem gegnir hlutverki
salernisstöðu. Að auki sjást haugarnir
í langri fjarlægð, en eðlilegt er að hver
nashyrningur losi sig við í kringum
20 kg daglega. Lyktin þykir þó ekkert
tiltökumál, því fæði þeirra einskorðast
í raun við þurrt gras.
Teymi Marneweck greindi meðal
annars efnasamsetningu mykjunnar
og komst að því að munur var á
efnasamsetningu hennar, er kom að
aldri, kyni og stöðu hvers og eins
dýrs í hópnum. Mikilvægt er meðal
dýranna að allir meðlimir hópsins séu
meðvitaðir um hvað sé á döfinni, enda
minnkar það verulega þörf þeirra á
valdabaráttu.
Mykjuhaugarnir eru líka mikil-
vægir þegar kemur að samskiptum
við aðra flokka af sömu tegund, en
margir haugar sitja til dæmis við jaðar
yfirráðasvæða hópa og hjálpa til við að
styrkja mörk þeirra.
Þetta er mörgum nashyrningum
til hugarhægðar enda afar nærsýnir
og lyktarskynið eitt helsta leiðsögu-
tæki þeirra í lífinu. /SP
Salernisvenjur nashyrninga:
Mykjuhaugar nýttir sem samfélagsnet
18 x 35 x 3 m - 18.000.000 kr. m/vsk.
Z STÁLGRINDARHÚS
TÖLVUPÓSTUR
sala@bkhonnun . is
SÍMI
571 3535
VEFFANG
www .bkhonnun . is
Tilvalið sem reiðskemma eða vélageymsla.
Innifalið er Z stálgrind, óeinangruð stálklæðning í dökk
gráum lit. Stór iðnaðarhurð og tvær gönguhurðir í hvítum
lit. Allar áfellur ofan sökkuls.Skrúfur, festingar og
áfellur.Tilbúnar teikningar.