Bændablaðið - 24.03.2022, Síða 51
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 2022 51
er í fjósi á hverjum tíma er einna
best og skilvirkast að skoða það
hve margar kýr standa uppi í
legubásunum á hverjum tíma. Ef
margar kýr standa í legubásunum
er ástandið í fjósinu ekki eðlilegt
og bendir það til hönnunargalla í
nærumhverfi þeirra. Þegar gert er
svona mat á leguhegðun kúa þarf
að fylgjast með að lágmarki 10
kúm sem leggjast niður og standa
óhvattar aftur á fætur. Ef allt er
eins og best verður á kosið ætti
það að taka kýrnar að jafnaði um
5-6 sekúndur að standa á fætur og
15-20 sekúndur að leggjast niður
eftir að kýrnar eru komnar upp í
básana. Ef það tekur lengri tíma,
þurfa kýrnar greinilega lengri tíma
til að finna rétta stöðu áður en þær
leggjast sem bendir til að eitthvað
sé að í umhverfinu.
Það er líka góð aðferð að
fylgjast með því hvernig kýrnar
haga sér í legubásnum. Ef þær eru
fljótar að stíga út úr legubásunum,
t.d. ef þær eru reknar upp, þá
bendir það til þess að ástandið
sé ekki alvarlegt. Einnig má hafa
til viðmiðunar ef kýrnar standa
skáhallt í legubásunum og/eða
liggja þannig, að þá er líklegt að
þeir séu of litlir.
Þriðja vinnureglan, við mat á
hönnun legubása, er að horfa á
skítinn. Við venjulega dreifingu á
stærð kúa ættu u.þ.b. 20% kúnna
að vera það litlar að þær skíta upp
í legubásana (þ.e. skítur í fimmta
hverjum legubás). Á Íslandi hefur
löngum þekkst mikill munur á
stærð kúa innan sömu hjarðar,
nokkuð sem er mun síður áberandi í
erlendum hjörðum. Þessi staðreynd
gerir það að verkum að oft getur
verið erfitt að stilla innréttingar
básanna rétt. Hér gildir þó að horfa
þarf til stærstu kúnna, enda verða
þær að komast fyrir á básunum.
Vandi skapast þá með minni kýr,
en það verður því miður ekki á allt
kosið. Af þessu má leiða að því
líkur að hérlendis fari meiri vinna
í þrif á legubásum en gerist víða
erlendis, þar sem kýr eru jafnari
að stærð.
Mýktin skiptir máli
Síðasta atriðið sem hér verður
nefnt er mikilvægi þess að
básaundirlagið sé mjúkt. Vitandi
það að mjög mörg fjós á Íslandi eru
með legubásadýnur er sérstaklega
mikilvægt að minna á að tíð
notkun kúa á legubásadýnum
veldur auðvitað sliti á þeim og
dregur úr mýkt þeirra eftir því
sem líður á.
Danskar leiðbeiningar um
gæði á dýnum segja að þær eigi
að gefa eftir um 16-28 mm þegar
kýrin stígur fæti á þær og að þær
eigi að vera að lágmarki 50 mm
og gjarnan 60 mm þykkar. Þá á
yfirborð dýnanna að vera þannig
hannað að það ýti ekki undir
hárslit eða hárlausa bletti á kúnum.
Rétt er að benda á að þegar kýr
fá sjálfar val um undirlag velja
þær alltaf mjúkar dýnur. Það sem
hefur þó áhrif á þetta val þeirra er
staða þeirra innan hjarðarinnar þ.e.
virðingarröðin.
Rannsóknir sýna nefnilega að
kýrnar láta virðingarröðina ganga
fyrir eigin þægindum við hvíld,
þ.e. ef í boði er að liggja á mjúku
undirlagi en t.d. við hlið háttsettrar
kýr, þá velja kýr, sem eru lægra
settar, frekar óþægilegt legusvæði.
Í raun mjög skiljanleg afstaða, þær
vilja fyrst og fremst frið, ró og
næði til þess að jórtra.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
SÍUR Í
DRÁTTARVÉLAR
Í dag er til afar fjölbreytt framboð á innréttingum fyrir legubása.
Í október nk. gefur Bændablaðið út tímarit í tengslum
við stórsýninguna Íslenskur landbúnaður 2022
sem haldin verður í Laugardalshöll dagana 14.-16. október.
Markmið sýningarinnar er að kynna fjölbreytni íslensks
landbúnaðar og hreinleika matvælaframleiðslunnar.
Sýningin verður bæði á úti- og innisvæði þar sem bændum í bland
við aðra gesti gefst tækifæri til að virða fyrir sér gagnleg tæki og
tól í landbúnaði og rekstri. Allir félagsmenn í Bændasamtökunum
fá boðsmiða á sýninguna og vænta má mikils fjölda gesta.
Tímaritið verður leiðarvísir gesta á sýningunni og mun m.a.
innihalda gagnlegar upplýsingar um sýninguna, kynningar
á þeim fyrirtækjum sem koma að sýningunni auk fræðandi
og fjölbreytilegs efnis um málefni landbúnaðarins.
Lengd tímaritsins er yfir 100 síður og það er prentað á glanspappír í stærðinni A4 í 8.000
eintökum og verður dreift bæði á sýningunni sjálfri og víðar. Búist er við að um 100 fyrirtæki
taki þátt í landbúnaðarsýningunni og býðst þeim að koma sér á framfæri í tímaritinu.
Auk efnis um landbúnað verður í tímaritinu kynningarefni frá fyrirtækjum sem unnið er í
samvinnu við blaðamenn en auk þess er boðið upp á hefðbundnar auglýsingar.
Æskilegt er að bóka auglýsingapláss og kynningar með góðum fyrirvara.
Nánari upplýsingar eru veittar í s. 563-0303 og gegnum netfangið thordis@bondi.is
Tímarit Bændablaðsins
í tengslum við stórsýningu landbúnaðarins
Íslenskur landbúnaður 2022
MATVÆLASÝNING . TÆKJASÝNING . ÖFLUG DAGSKRÁ
STÓR-
SÝNING
Í LAUGARDALSHÖLL
14. - 16. OKTÓBER
-2022-
Guðrúnu frá Lundi, Helgu Sigurðardóttur
matreiðslubækur.
A Geikie útg. 1879 efna- og
eðlisfræðijarðarinnar.
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi,
Jón Sveinsson Nonna.
Jóhann M. Bjarnason, Ólaf Jóhann Ólafsson,
Guðmund Kamban, Jón Trausta.
Halldór Kiljan Laxness.
Snorra Sturluson, Heimskringla, Eddukvæði,
Fornaldarsögur o.fl.
Allar upplýsingar í síma 844-1184
Til sölu bækur eftir eftirtalda höfunda: