Bændablaðið - 24.03.2022, Blaðsíða 56
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 202256
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Ábúendurnir á Urriðafossi fluttu
úr Reykjavík rétt fyrir jól 2016 og
voru síðan tekin við rekstrinum
á kúabúinu stuttu síðar.
Þau hrintu hugmyndum að
breytingum strax af stað, þær helstu
að skipuleggja gistingu ofan við
Urriðafoss.
Býli: Urriðafoss.
Staðsett í sveit: Flóahreppi á
Suðurlandi.
Ábúendur: Birna Harðardóttir og
Haraldur Einarsson.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Börnin okkar þrjú heita Matthilda,
f. 2013, Einar Hörður, f. 2015 og
Inga Lilja, f. 2018.
Stærð jarðar? 250 ha.
Gerð bús? Kúabú, ferðaþjónusta
og laxveiði.
Fjöldi búfjár og tegundir? Um 150
nautgripir, þar af 65 mjólkurkýr.
Fjósakettirnir Kátur og Pjakkur
ásamt bæjarhröfnunum.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Fjósverk og gjafir á morgnana. Þrif,
viðhald og annað sem fellur til áður
en vinnudagurinn klárast í fjósinu.
Birna sinnir ferðaþjónustunni;
bókunum, undirbúningi og þrifum.
Kvöldin oft í heita pottinum ef það
eru ekki fundarhöld í félagsmálum.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Halli: Skemmtilegast
er að vitja um netið í ánni. Birna:
Hönnun og undirbúningur næsta
ferðahúss.
Leiðinlegast er alveg klárlega að
gera við flórsköfur.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir
ykkur á jörðinni eftir fimm ár?
Með svipuðu sniði. Vonandi aðeins
fleiri kýr og meiri ferðaþjónustu.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í framleiðslu íslenskra
búvara? Vöruþróun á okkar
heilnæmu vörum. Framsetningu í
verslunum. Útiræktun með hlýnandi
loftslagi, bæði til manneldis og
fóður fyrir dýr.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Ostur og smjör, lárpera og skyr er
alltaf til.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Föstudagspitsan.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Brúðkaupið okkar í
skemmunni.
Nautasteik og bernaise-smjör
Nautasteik með bernaise-smjöri
› 4 stk. hvítlauksgeirar
› 3 stilkar rósmarín
› 4 msk. smjör
› 3 msk. olífuolía
› 3 msk. Maldon salt
› 2 msk. svartur pipar
› 400 g möndlukartöflur (ratte)
› 100 g smjör
› 100 g rjómi
› 200 g mjólk
› 1dl ólífuolía
Hitið pönnu þannig að hún verði
rjúkandi heit. Bætið olíunni út á
og steikið kjötið. Bætið timjan,
rósmarín og hvítlauknum út á
pönnuna.
Snúið steikinni við og bætið
smjörinu á pönnuna. Setjið smjörið
yfir steikina með skeið og látið
freyða yfir kjötið.
Setjið inn í ofn og bakið við 100 °
þar til kjarnhiti nær 50°.
Skerið kartöflur í litla strimla og
djúpsteikið (eða kaupið tilbúnar
franskar).
Líka er hægt að gera kartöflumauk:
Afhýðið kartöflurnar og sjóðið í
mjólkinni og smá vatni. Sigtið þegar
þær eru klárar og pressið í gegnum
kartöflupressu eða með gaffli. Setjið
í pott aftur og blandið sjóðandi
rjóma við og smjörinu. Kryddið til
með salti.
Berið steikina fram með smjörinu,
frönskum kartöflum eða kartöflu
músinni.
Bernaise-kryddað brúnt smjör
› 1 stk. smjör (500 g)
› 4 msk. ólífuolía
› 2 stk. hvítlauksrif
› ½ búnt steinselja
› 8 msk. hvítvínsedik
› safi úr ½ sítrónu
› 3 stk. litlir skalottlaukar
› ½ búnt estragon
› svartur pipar
› Maldon sjávarsalt
Setjið helminginn af smjörinu í pott
og látið á helluna við miðlungs
háan hita. Þegar smjörið fer að
freyða, hrærið þá með písk og takið
af hellunni. Smjörið ætti þá að gefa
frá sér hnetukeim og vera ljósbrúnt
að lit.
Látið kólna aðeins og blandið svo
öllu kryddinu saman við.
Bætið svo olíunni við og restinni af
smjörinu, hrærið vel saman við (má
setja í matvinnsluvél) og framreiðið
kalt með kjötinu eða við stofuhita.
Kökukúlur eða kökupinnar
Kökur og sætindi á pinna er í tísku
og slíkt er auðvelt að gera.
› Pinnar
› Hvítt súkkulaði
› 113 g smjör við herbergishita
› ½ bolli vatn
› 5 tsk. þurrger
› 1/4 bolli sykur
› ½ tsk. salt
› 1 bolli hveiti
› 3 egg og ein eggjarauða
› börkur af einni sítrónu (líka er hægt
að nota lime, ef ekki er til sítróna)
› 4 bollar af jurtaolíu
Hitið vatnið og blandið því saman
við gerið, bætið smá sykri út í (fyrir
gerið) og látið bíða í um 5 mínútur.
Á meðan beðið er, blandið saman
þurrefnum og sítrónu eða limeberki
saman í skál.
Bætið þurrefnunum út í og svo
eggjunum. Passið að hræra ekki
of lengi, annars getur deigið orðið
seigt. Hrærið ekki lengur en tvær
til þrjár mínútur. Leyfið deiginu að
hefast.
Rúllið út á hreint borð með smávegis
hveiti. Skerið út litla sæta hringi
með kökumóti, til að allir hausarnir
verði jafnstórir. Bakið í ofni við 180
gráður þar til prjónn, sem stungið
er í kökurnar, kemur hreinn út (um
1020 mínútur).
Kælið kökuna.
Líka er hægt að gera kúlur með því
að blanda kökumulningi við hvítt
súkkulaði og velta upp úr þurrkuðum
hindberjum eða öðru kökuskrauti.
Þær er auðvelt að setja á pinna og
Bjarni Gunnar Kristinsson
matreiðslumeistari
bjarnigk@gmail.com
Urriðafoss
framreiða fallega á fati.