Bændablaðið - 24.03.2022, Side 57
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 2022 57
Okkur mæðgum þykir gaman að
eiga fallegar tuskur. Páskarnir
nálgast og þá er gaman að eiga
gular tuskur með fallegu blaða
mynstri. Þessar eru prjónaðar
úr dásamlega bómullargarninu
Drops Safran.
DROPS Design: Mynstur e-282.
Efni:
ca 24x24 cm.
Garn: DROPS SAFRAN (fæst í Handverkskúnst)
- 50 g (litir á mynd: nr 10 vanillugulur og nr 11,
skærgulur)
Prjónar: nr 2,5 eða þá stærð sem þarf til að fá 26
lykkjur = 10 cm í sléttu prjóni.
Garðaprjón (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar
eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.
Mynstur: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð
frá réttu.
TUSKA: Tuskurnar eru prjónaðar fram og til baka.
Fitjið upp 67 lykkjur á prjóna nr 2,5 með Safran.
Prjónið 3 umferðir slétt, prjónið 1 umferð slétt
og aukið út um 6 lykkjur jafnt yfir í umferð = 73
lykkjur. Prjónið síðan áfram eftir mynsturteikningu
frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni
– sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir 15 lykkjur, A.2
yfir 40 lykkjur (= 2 sinnum á breidd), A.3 yfir 14
lykkjur og prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið
svona áfram að prjóna eftir mynsturteikningu þar
til mynsturteikning hefur verið prjónuð 2 sinnum
á hæðina. Prjónið síðan mynsturteikningu 1 sinni
til viðbótar, en endið eftir umferð merktri með ör.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6 lykkjur
jafnt yfir = 67 lykkjur. Prjónið 3 umferðir slétt og fellið
af með sléttum lykkjum í næstu umferð.
Klippið frá og festið enda.
Prjónið eina tusku í hvorum lit eða nokkrar í alls
konar litum.
Prjónapáskakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst
www.garn.is
Páskatuskur
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
7 9 8 2
1 5 7 3
9 4 1 3 5
8 4 1 7
4 1 2 6
3 2 7 8 4
7 8 4 1
5 6 2 9
8 2 1 5
Þyngst
5 1 4 7
3 6
6 4 2 3
7 5 4 9
2 3
6 8 9 1
1 5 7 8
7 1
2 8 1 6
4 7 1
1 9
9 2 8 6
6 5 1
4 3
2 5 8
7 3 8 1
7 2
3 4 7
5 1
8
1 7 3 8
5 3 6
9 2
7 6 8
3 8 2 9
7
5 4
Bóndi og búðarkona
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Eik býr í Lundarreykjadal og
gengur í Grunnskóla Borgar
fjarðar.
Nafn: Eik Logadóttir.
Aldur: 6 ára.
Stjörnumerki: Vog.
Búseta: Steinahlíð í Lundarreykjadal.
Skóli: Grunnskóli Borgarfjarðar.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Að baka.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hundur.
Uppáhaldsmatur: Pitsa.
Uppáhaldshljómsveit: Daði og
gagnamagnið.
Uppáhaldskvikmynd: Frozen.
Fyrsta minning þín? Þegar ég sá
krókódíl í dýragarði á Costa del Sol.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi boltaíþróttir.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Bóndi og búðarkona.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Bruna á skíðum á Ítalíu.
Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt
um páskana? Borða súkkulaðiegg.
Næst » Ég skora á Sunnevu Líf
Jónsdóttur að svara næst.