Skessuhorn - 15.06.2022, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 20228
Báta- og hlunn-
indasýningin
opnuð
REYKHÓLAR: Báta- og
hlunnindasýningin var opnuð
á ný á dögunum. Á sýningunni
er yfirlit um hlunnindanytj-
ar við Breiðafjörð og í Breiða-
fjarðareyjum. Einnig er fróð-
leikur um dýra- og fuglalíf. Á
bátasafninu eru einkum súð-
byrðingar með breiðfirsku lagi,
einnig er þar nokkuð stórt safn
gamalla bátavéla, sumar sjald-
gæfar. Bátasafnið hefur jafn-
framt verið verkstæði þar sem
unnið hefur verið að bátasmíði
og viðgerðum, þar hafa líka
verið haldin námskeið í báta-
viðgerðum. Á fimmtudögum
og föstudögum í sumar verð-
ur Hafliði Aðalsteinsson báta-
smiður þar við vinnu og gefst
gestum sýningarinnar kostur á
að fylgjast með bátaviðgerðum.
Þannig er þetta að nokkru leyti
lifandi safn. Það er vel ómaks-
ins vert að staldra við og skoða
Báta- og hlunnindasýninguna.
Sýningin er opin alla daga vik-
unnar fram í miðjan ágúst, milli
kl. 11 og 18. -vaks
Kindur á ferðinni
BORGARFJ: Talsvert hefur
verið kvartað undanfarið yfir
kindum í vegköntum við og fyr-
ir ofan Bifröst. Ökumenn eru
beðnir um að hafa varann á sér
þegar þeir eiga leið hjá. -vaks
Kviknaði í
inntakskassa
HÚSAFELL: Síðasta föstu-
dagskvöld kom upp eldur í inn-
takskassa fyrir aftan þjónustu-
skúr í Húsafelli. Þegar Slökkvi-
liðið Borgarbyggðar kom á
vettvang var eldurinn slokknað-
ur en kviknað hafði í rafmagns-
lögn sem brann inn að vatns-
lögn, sem bráðnaði og slökkti
vatnið þá eldinn. -vaks
Mínar síður
fyrirtækja
LANDIÐ: „Mínar síður“ á
Ísland.is eru í sífelldri þróun
og eru nú aðgengilegar fyrir-
tækjum fyrir þá sem hafa pró-
kúru. Prókúruhafar fyrirtækja
hafa sjálfkrafa aðgang með eig-
in rafrænum skilríkjum og geta
skipt milli aðganga. Innskrán-
ing fyrir tækja byggist á nýju
innskráningar- og umboðskerfi
sem þýðir að prókúruhafi get-
ur veitt öðrum aðgang að Mín-
um síðum fyrirtækisins, sé þess
þörf. Samkvæmt tölum frá Hag-
stofunni voru rúmlega 3.200
fyrirtæki skráð í fyrirtækjaskrá
árið 2021 og þessi bætta þjón-
usta ætti því að koma að gagni
hjá stórum hópi. -mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
4. júní – 10. júní
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes: 18 bátar.
Heildarlöndun: 35.497 kg.
Mestur afli: Steinunn ÁR:
3.725 kg í þremur löndun-
um.
Arnarstapi: 35 bátar.
Heildarlöndun: 61.162 kg.
Mestur afli: Gísli ÍS: 4.398
kg í þremur róðrum.
Grundarfjörður: 25 bátar.
Heildarlöndun: 649.444 kg.
Mestur afli: Viðey RE:
152.469 kg í einum róðri.
Ólafsvík: 52 bátar.
Heildarlöndun: 193.679 kg.
Mestur afli: Steinunn SH:
33.175 kg í tveimur löndun-
um.
Rif: 38 bátar.
Heildarlöndun: 259.948 kg.
Mestur afli: Örvar SH:
44.274 kg í einum róðri.
Stykkishólmur: 27 bátar.
Heildarlöndun: 108.034 kg.
Mestur afli: Magnús HU:
12.557 kg í fimm löndunum.
1. Viðey RE – GRU:
152.469 kg. 6. júní.
2. Vörður ÞH – GRU:
82.344 kg. 6. júní.
3. Áskell ÞH – GRU:
82.330 kg. 6. júní.
4. Jóhanna Gísladóttir GK
– GRU: 73.848 kg. 5. júní.
5. Sigurborg SH – GRU:
61.272 kg. 7. júní.
-sþ
Miðvikudaginn 8. júní kom ný
bæjarstjórn sameinaðs sveitarfé-
lags Helgafellssveitar og Stykkis-
hólmsbæjar saman í fyrsta sinn.
Bæjarstjórn skipa nú Hrafnhild-
ur Hallvarðsdóttir, Steinunn I.
Magnúsdóttir, Ragnar Ingi Sig-
urðsson, Þórhildur Eyþórsdóttir,
Haukur Garðarsson, Ragnheiður
Harpa Sveinsdóttir og Ragnar Már
Ragnarsson.
Á vef sveitarfélagsins kemur fram
að Hrafnhildur Hallvarðsdótt-
ir var kjörin forseti bæjarstjórnar
á fundinum, Ragnar I. Sigurðsson
var kjörinn fyrsti varaforseti bæjar-
stjórnar og Haukur Garðarsson
annar varaforseti. Kosnir voru full-
trúar í bæjarráð, skipulagsnefnd,
skóla- og fræðslunefnd og fulltrú-
ar sveitarfélagsins í Samtök sveitar-
félaga á Vesturlandi (SSV). Kjöri í
aðrar nefndir var frestað til næsta
fundar.
Lagðar voru fram hugmynd-
ir að nafni sameinaðs sveitarfélags
Helgafellssveitar og Stykkishólms-
bæjar sem bárust í samráðsgátt.
Samþykkt var að vísa málinu til
frekari vinnslu í bæjarráði. Bæjar-
ráð kemur næst saman 23. júní
næstkomandi.
vaks
Fimmtudaginn 9. júní sl. kom
nýkjörin bæjarstjórn Grundar-
fjarðarbæjar saman til fyrsta fundar
á kjörtímabilinu. Bæjarstjórn skipa
nú Ágústa Einarsdóttir, Bjarni Sig-
urbjörnsson, Garðar Svansson, Jósef
Ó. Kjartansson, Loftur Árni Björg-
vinsson, Signý Gunnarsdóttir og
Sigurður Gísli Guðjónsson. Fjórir
bæjarfulltrúar af sjö eru nýir fulltrúar
í bæjarstjórn en þeir Jósef og Garðar
hafa báðir setið í átta ár í bæjarstjórn
og Bjarni í eitt kjörtímabil, fjögur ár,
sem varamaður og síðan aðalmaður.
Fram kemur á heimasíðu bæjar ins
að á fundinum hafi Jósef Ó. Kjart-
ansson verið kosinn forseti bæjar-
stjórnar til eins árs og Ágústa Einars-
dóttir varaforseti, til sama tíma. Í
bæjarráði fyrsta árið verða Garð-
ar Svansson, Jósef Ó. Kjartansson
og Sigurður Gísli Guðjónsson, sem
jafnframt var kjörinn formaður bæj-
arráðs til eins árs. Á fundinum var
samþykkt að ganga frá ráðningu
Bjargar Ágústsdóttur, bæjarstjóra, til
næstu fjögurra ára.
Bæjarstjórn fundar mánaðarlega,
en þó ekki yfir sumarmánuðina, júlí
og ágúst. Á þeim tíma fer bæjar ráð
með sömu heimildir og bæjarstjórn
og afgreiðir fundargerðir nefnda og
þau mál sem upp koma, nema ástæða
þyki til að kalla bæjarstjórn sérstak-
lega saman til fundar um sérlega
mikilvægar ákvarðanir. Á fyrsta fundi
bæjarstjórnar var skipað í fastanefnd-
ir og ráð bæjarins næstu fjögur árin.
Nefndarfólk fær á næstu dögum sent
kjörbréf sem staðfestir nefndarsetu
og bæjarstjóri mun síðan kalla nefnd-
ir til fyrsta fundar í Ráðhúsinu.
Bæjarstjórn samþykkti jafn-
framt að halda fljótlega fræðslu-
og kynningardag fyrir kjörna full-
trúa í bæjar stjórn og nefndum, þar
sem farið verður yfir helstu þætti í
stjórnsýslu og starfsemi bæjarins
og nefnda hans og gerð grein fyrir
helstu verke fnum sem nefndir síð-
asta kjörtímabils höfðu til meðferð-
ar. Með þessu er reynt að tryggja
sem skilvirkasta yfirfærslu á þekk-
ingu og verkefnum, milli eldri og
nýrra nefnda, að afloknum sveitar-
stjórnarkosningum. vaks
Á þriðjudag í liðinni viku var fyrsti
fundur nýrrar bæjarstjórnar á Akra-
nesi haldinn. Þar var kosið í ráð og
nefndir á vegum bæjarins næstu
fjögur árin. Allar tillögur sem lagð-
ar voru fram á fundinum voru
samþykktar með öllum greidd-
um atkvæðum en níu manns skipa
bæjar stjórn Akraness.
Valgarður Lyngdal Jónsson (S)
verður forseti bæjarstjórnar, Ein-
ar Brandsson (D) verður varafor-
seti og Ragnar B. Sæmundsson
(B) verður annar varaforseti bæj-
arstjórnar. Aðalmenn í bæjarráði
eru Líf Lárusdóttir (D) formað-
ur bæjar ráðs, Valgarður L. Jóns-
son varaformaður og Ragnar B.
Sæmundsson.
Í skóla- og frístundaráði er Jónína
Margrét Sigmundsdóttir (S) for-
maður, í skipulags- og umhverfis-
ráði er Guðmundur Ingþór Guð-
jónsson (D) formaður og Kristinn
Hallur Sveinsson (S) er formað-
ur velferðar- og mannréttindaráðs.
Nánari skipan nefnda og ráða má
finna á heimasíðu Akraneskaup-
staðar.
vaks
Fyrsti fundur bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar
Frá vinstri: Garðar Svansson, Signý Gunnarsdóttir, Loftur Árni Björgvinsson, Jósef Ó. Kjartansson, Davíð Magnússon, Ágústa
Einarsdóttir, Bjarni Sigurbjörnsson og Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri. Ljósm. grundarfjordur.is
Það var létt yfir bæjarstjórninni á sínum fyrsta fundi. Sævar Freyr bæjarstjóri er
lengst til vinstri. Ljósm. Steinar Adolfsson.
Fyrsti fundur nýrrar
bæjarstjórnar á Akranesi
Bæjarstjórnin ásamt Jakobi Björgvini Jakobssyni bæjarstjóra sem er efst til hægri
á myndinni. Ljósm. stykkisholmur.is
Bæjarstjórn Helgafellssveitar og
Stykkishólmsbæjar með fyrsta fund