Skessuhorn


Skessuhorn - 15.06.2022, Síða 17

Skessuhorn - 15.06.2022, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2022 17 Umhverfisskýrsla Elkem Ísland fyrir árið 2021 er komin út og er hún framsett á stafrænu formi í fyrsta skipti. Er það liður Elkem Ísland að auka gagnsæi og aðgengi að upplýsingum um umhverfismál sérstaklega. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að skýrslan skiptist í sex mismunandi kafla þar sem gerð er grein fyrir stefnu Elkem í umhverfismálum ásamt umhverfis- þáttum og vöktun í starfseminni. „Jafnframt er að finna umhverfis- verkefni sem Elkem vinnur mark- visst að til þess að endurvinna og endurnýta allar aukaafurðir sem falla til við framleiðsluna til þess að lágmarka sóun og auka sjálf- bærni rekstrarins. Nýsköpun Elkem Ísland skilar umhverfisleg- um ávinningi og er það stefna fyrir- tækisins að vera fyrsta kolefnishlut- lausa kísilmálmverksmiðjan eigi síðar en árið 2040 sem þýðir jafn- framt að Elkem Ísland verður fyrsta slíka verksmiðjan í allri Evrópu.“ „Elkem Ísland leggur metn- að sinn í að starfsemi fyrirtækis- ins sé í sátt við umhverfið og sitt nánasta samfélag. Þess vegna er stefna Elkem Ísland að draga mark- visst úr áhrifum starfseminnar á ytra umhverfi og fylgja í hvívetna ákvæðum starfsleyfis. Elkem Ísland stefnir jafnframt að stöðug- um framförum í störfum sínum og það endurspeglast í metnaði okkar í umhverfismálum“ segir Álfheið- ur Ágústsdóttir forstjóri Elkem á Íslandi. mm Elkem Ísland gefur út umhverfisskýrslu fyrir 2021 Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið. Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is. Umsóknarfrestur er til og með 20. júní nk. Nánari upplýsingar veita Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is og Þórdís Sif Arnarsdóttir, thordis@hagvangur.is. Sveitarstjóri í Dalabyggð Dalabyggð er landbúnaðarhérað sem geymir mikla sögu. Dalirnir eru náttúruparadís með útsýni út á Hvammsfjörð og Gilsfjörð ásamt hinum óteljandi Breiðafjarðareyjum og bjóða upp á mikla möguleika í útivist og afþreyingu. Í upphafi árs 2022 bjuggu 665 íbúar í Dalabyggð. Í Dalabyggð er veitt fjölbreytt þjónusta, þar er Auðarskóli (leik- grunn- og tónlistarskóli), heilsugæsla, verslun, veitingasala og ýmis verktakaþjónusta. Dalabyggð er miðsvæðis, innan við tveggja klukkustunda akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu og mikilvæg tenging á milli landshluta. Sjá nánar á dalir.is. Sótt er um störfin á hagvangur.is Starf sveitarstjóra í Dalabyggð er laust til umsóknar og er leitað að kraftmiklum og drífandi einstaklingi til að stýra krefjandi verkefnum á vegum sveitarfélagsins. Rík áhersla er á að efla atvinnulíf og þjónustu við fjölskyldur. Starfið felst meðal annars í að vinna af krafti að nýjum verkefnum sem sveitarfélagið er með í bígerð og má þar meðal annars nefna byggingu nýs íþróttamannvirkis. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfssvið • Daglegur rekstur sveitarfélagsins og ábyrgð á framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar • Yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu sveitarfélagsins og starfsmannamálum • Náið samstarf við sveitarstjórn, undirbúningur og upplýsingagjöf á fundum sveitarstjórnar og byggðaráðs • Annast upplýsingamiðlun og samskipti við samstarfsaðila, stofnanir, samtök, fyrirtæki og íbúa • Að gæta hagsmuna Dalabyggðar út á við, vera talsmaður sveitarstjórnar og vinna að framfaramálum • Stefnumarkandi vinna og mótun framtíðarsýnar í ólíkum málaflokkum Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfinu • Reynsla af stjórnun, rekstri og bókhaldi • Áhugi og reynsla af eflingu atvinnulífs til að stuðla að vexti samfélagsins • Reynsla af kynningar- og ímyndarmálum sem og stefnumótun • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Leiðtogahæfni, frumkvæði og hugmyndaauðgi • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti • Þekkja vel og hafa reynslu af lögum og reglugerðum í opinberri stjórnsýslu • Reynsla af störfum á sveitarstjórnarstigi er æskileg en ekki skilyrði

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.