Skessuhorn


Skessuhorn - 15.06.2022, Side 34

Skessuhorn - 15.06.2022, Side 34
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 202234 Mikið er lagt upp úr að halda sjó- mannadaginn í Snæfellsbæ sem glæsilegastan. Sjómenn undir- bjuggu helgina en að þessu sinni voru áhafnir bátanna Guðmundar Jenssonar SH, Kristins HU, Ham- ars SH og Stakkhamars SH sem sáu um framkvæmd dagsins. Keppnis- greinar fóru fram í höfninni í Rifi að þessu sinni. Keppt var í kapp- róðri, reiptogi og þrautagreinum auk þess sem boðið var upp á fiski- súpu. Þá voru hoppukastalar fyrir yngstu börnin. Fyrr um morguninn fór fram dorgveiðikeppni í Ólafsvík það sem ungir veiðimenn létu sig ekki vanta ásamt foreldrum. Var ekki ann- að að sjá en að hinir ungu veiði- menn hefðu gaman af. Á laugar- dagskvöldið var sjómannaskemmt- un í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík þar sem meðal annars var hlaðborð og skemmtiatriði auk þess sem sjó- mannskonur voru heiðraðar. Að lokum var dansleikur og lék Stuð- bandið fyrir dansi. Veislustjóri var Sigurður Ingi Sigurðsson. Á sunnudag voru skemmti atriði í sjómannagörðunum í Ólafsvík og á Hellissandi. Auk þess sem sjó- mannamessur voru haldnar og bát- ar fóru með gesti í skemmtisigl- ingu. Þrír sjómenn voru heiðrað- ir við hátíðlega athöfn í sjómanna- garðinum í Ólafsvík; þeir Þorsteinn Hauksson, Heiðar Friðriksson og Jóhannes Ragnarsson. Þeir hafa stundað sjómennsku í tugi ára ásamt öðrum störfum tengdum sjávarút- vegi, en í ár eru 70 ár síðan fyrsti sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur í Ólafsvík. Af því tilefni var vígt nýtt skilti við innganginn í Sjómannagarðinn. Kristján Krist- jánsson KK söng á milli atriða og Ólafur Hlynur Steingrímsson flutti ræðu dagsins. af Mikil dagskrá á sjómannadaginn í Snæfellsbæ Ungir veiðimenn settu fiskana sem þeir veiddu í kar. Stoltur veiðimaður ásamt pabba og afa. Fiskisúpa framreidd. Þyrlan TF-Eir mætti á svæðið og sýndi björgun úr sjó. Þessar stúlkur tóku þátt í þrautakeppn- inni. Keppnisskapið var mikið í reiptoginu og er ekki annað að sjá en að stórskipperinn Emil Freyr Emilsson tæki á öllu sínu, en hafði ekki erindi sem erfiði og lutu þeir í gras fyrir andstæðingum sínum. Börnin tóku þátt í flekahlaupi. Þessi ungi drengur stóð sig með prýði enda faðir hann í sjónum að fylgjast vel með og hvetja áfram. Kristín Bjargmundsdóttir eiginkona Þorsteins Haukssonar, Felix Herbertsson barnabarn Heiðars Friðrikssonar, Jóhannes Ragnarsson og eiginkona hans Anna Valves. Nýja skiltið vígt. Jónas Gunnarsson, Pétur Steinar Jóhanns- son, Illugi Jónasson, Jens Brynjólfsson og Björn Erlingur Jónasson, sem eru í sjómannaráðinu í Ólafsvík. Magnús Þorsteinsson sló heldur betur í gegn þegar hann birtist óvænt og söng sjómannalög á pallinum með KK, en Magnús er kominn vel yfir áttrætt og er að eigin sögn í fanta formi.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.