Skessuhorn - 15.06.2022, Page 41
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2022 41
Slökkvilið Akraness og Hval-
fjarðarsveitar tók á fimmtudaginn
á móti öllum útskriftarárgöng-
um úr leikskólum á starfssvæð-
inu, Akranesi og Hvalfjarðarsveit,
á slökkvistöðinni að Kalmanns-
völlum 2 á Akranesi. Um er að
ræða leikskólana Akrasel, Garða-
sel, Teigasel og Vallarsel á Akra-
nesi og Skýjaborg í Hvalfjarðar-
sveit. Tilefnið er lok á verkefninu
„Aðstoðarmaður slökkviliðsins“
sem börnin hafa verið að vinna
að í leikskólanum í vetur. Þar hafa
krakkarnir verið að kanna með
eldvarnir á sínu heimili og einnig
á leikskólanum. Logi og Glóð eru
slökkviálfar og eru krökkunum til
aðstoðar í þessu verkefni. Einnig
hafa þau fengið leiðsögn frá leik-
skólakennurum og forvarnasviði
Slökkviliðs Akraness og Hval-
fjarðarsveitar.
Allir krakkar sem tóku þátt
í verk efninu fengu viðurkenn-
ingarskjal í lok heimsóknarinn-
ar. Verkefnið er samstarfsverkefni
leikskóla, Brunabótafélags Íslands
og Landssambands slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna.
Blaðamaður Skessuhorns kíkti
á fimmtudagsmorgun þegar leik-
skólinn Skýjaborg var í heimsókn
og smellti af nokkrum myndum af
fjörinu.
vaks
Fengu að sprauta og sulla
á slökkvistöðinni