Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1944, Qupperneq 23
Norrœn jól
föðurlausum börnum í fóstur í Svíþjóð og með mikilli fjársöfnun og margs
konar aðstoð til hjálpar flóttafólki frá Danmörku og Noregi. Norræna félagið á
Islandi hefur, sem kunnugt er, snúið sér að svipuðum verkefnum. Fyrst með
fjársöfnun til Rauðakross Finnlands, síðan með fjársöfnun 1940 til hjálpar norsk-
um flóttamönnum og loks með Noregssöfnuninni, sem nú er orðin mesta fjár-
söfnun, sem átt hefur sér stað hér á landi. Þá hefur félagið gengizt fyrir fyrir-
lestrum um norræn málefni, upplestrarkvöldum, norrænum hljómleikum, sýn-
ingum á leikriti Ibsens, „Veizlan á Sólhaugum“, útvarpskvöldum og skemmti-
fundum með norrænni dagskrá. Þegar Nordens Kalender hætti að koma út, hóf
félagið útgáfu ársritsins „Norræn jól“, og hefur það komið út í þrjú ár.
Árið 1940 gaf félagið út bókina „Svíþjóð á vorum dögum“ eftir Guðl. Rósin-
kranz, og fengu félagsmenn þá bók í stað Kalendersins.
En síðasta verkefnið, sem félagið hefur tekið sér fyrir hendur, er að koma
upp myndarlegu félagsheimili, „norrænni höll“ fyrir starfsemi félagsins í fram-
tíðinni, fyrir fundi, mót og námskeið og dvalarstað félagsmanna í frístundum
þeirra og til þess að geta tekið sæmilega á móti frændum vorum á Norðurlönd-
Frá fulltrúafundi Norrœna félagsins [ Reykjavík 1939
21