Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1944, Qupperneq 30

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1944, Qupperneq 30
Norrœn jól Vikivakarnir voru fallnir í gleymsku að kalla mátti um allan Noreg, eins og hér á landi, en þá gerðist Hulda Garborg til þess að endurlífga þá, aðallega eftir fær- eyskri fyrirmynd, og hafa þeir náð mikilli útbreiðslu í Noregi, fyrir tilverknað ungmennafélaganna, og aðrir hafa orðið til að bæta við það, sem Hulda Garborg gerði, og auka smekkvísi í dansinum og fjölbreytni. En Hallingdansinn, hinn tryllta eindans, með „Hallingkasti“ og öðru því- líku, fékk ég ekki að sjá fyrr en löngu síðar. Það eru ekki nema fáir Haddingjar, sem kunna hann, og einn þeirra fáu, Thor Myhre, sem talinn var beztur í þessari íþrótt þarna á Nesi, gerði það fyrir bænarstað minn að sýna mér hann. Þessi dans mætti eins vel teljast til fimleika, þegar hann er sýndur af jafnmikilli list og ég sá hann. Sá siður helzt enn í Hallingdal, að „gaa julebukk“, sem kallað er. Má helzt líkja þessu við föstuinngangsærsl þau, sem tíðkazt hafa víða um Norðurlönd. Unglingarnir dulbúa sig, strákar í kvenmannsföt og stúlkur í karlmannsföt, binda tusku fyrir andlitið í grímu stað og ganga svo hús úr húsi, ávarpa heimilisfólkið með annarlegri rödd, svo að allt verði sem torkennilegast. Takist heimilisfólkinu ekki að þekkja gestinn, þá er því skylt að veita honum góðgerðir, og enda hvort sem er. Þykir þetta bezta skemmtun, bæði gestum og húsráðendum, en ærið eril- samt er oft á heimilum þetta kvöld og mikið um ærsl á götunni. í stuttu máli sagt þá eru jólin í Hallingdal hljóð jól, og öllu meiri alvara hvílir yfir þeim en hér hjá okkur.----- Síðan 1924 hef ég lifað mörg jól í Noregi, bæði í Hallingdal og annars staðar. Og jafnan voru þau jól hátíð friðarins. Nú eru fimmtu jólin að ganga í garð í Noregi, síðan hann komst undir okið, en engin hinna fjögra hef ég lifað. Ég get því ekki um það sagt, hvernig breyting hafi orðið á jólunum síðan í þá góðu gömlu daga. En víst er um það, að víða hefur eigi verið góð aðstaðan til að halda jólin, bæði í Hallingdal og annars staðar. Þar hefur lifað „hnípin þjóð í vanda“, þjóð, sem hefur lifað við skort, fjölskyldur, sem hafa átt nána vini á hafs- botni, í fjarlægum löndum, í fangelsum eða ógróinni gröf. Þjóð, sem var svift frelsinu, því dýrmætasta, sem hún átti. En hún hefur sýnt, að hún lætur aldrei bugazt. Og þó að hún hafi farið á mis við jólagleðina undanfarin ár, en þolað harma og raunir í staðinn, þá lifir 28
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norræn jól : ársrit Norræna félagsins
https://timarit.is/publication/1682

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.