Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1944, Síða 38

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1944, Síða 38
Norrœn jól hinir erlendu fangavagnar fara skröltandi um göturnar í myrkri næturinnar. Eng- inn þekkir þá þöglu sorg, sem tekur sér sæti, þar sem eiginmaður, sonur eða bróðir hafa verið færðir á braut, út í óvissuna, oft undir óskráðan dauðadóm. En hitt vitum við, að þetta hefur engin áhrif á baráttuhug eða þrek þjóðarinnar. Þar stoða hvorki hótanir né hermdarverk, því að jafnan kemur maður í manns stað, og oft tveir fyrir einn, því að norrænir menn kunna enn að berjast, ef enginn er annar kostur, og þá spyrja þeir ekki um lífið, er hugsjónir og frelsi þjóðarinnar er í veði. Vopnin mega að vísu virðast fátækleg, eldvopn engin eða biturt stál. En þá vega menn með orðum og svipmóti, ef ekki fæst annað til, og gegn vopnum vitsmuna og snilli hafa harðstjórar allra alda kunnað fæst ráðin. Mig hlægir að hugsa til þess, hvernig sendlarnir í Höfn leika hina alvopnuðu útlendinga með tannhvössu háðinu einu saman. Allir sæmilegir menn hljóta að óska þess af heilum hug, að hörmungar þessara tveggja þjóða séu senn á enda. Og hver er sá íslendingur, að honum hlaupi ekki kapp í kinn, er hann hugleiðir, hve drengilega þær verja rétt sinn og hug- sjónir og hverjum rennur þá ekki blóðið til skyldunnar. Þær eru þó af sama bergi brotnar sem við. Augljóst virðist, að þær munu báðar koma út úr þessari eldraun styrkari en fyrr og auðugri miklu að þeim verðmætum, sem hvorki mölur né ryð fá grandað: frelsisást, samhug og fórnarlund. — En hver verður okkar hlutur, íslendinga? — Vissulega höfum við auðgazt að hinum jarðnesku fjármunum, sem vaxið hafa, líkt og gorkúlur, upp af svita, blóði og tárum hinnar stríðandi veraldar. Er líklegt, að slíkur auður verði okkur til gæfu eða virðast horfur á því enn sem komið er? Hefur skilningur okkar aukizt á hlutverki okkar og eðli, höfum við styrkzt í föðurlandsást, samlyndi og fórnfýsi, eða trúum við engu minna en áður á slembilukku og skjóttekinn gróða? — Hve miklu mundir þú, íslendingur, vilja fórna fyrir frelsið, fyrir ísland? Létir þú atvinnu þína, heimili þitt, aleiguna, lífið? Um allt þetta má vafalaust lengi deila, meðan ekki reynir á. En hitt er víst, að við lifum nú okkar örlagastund. Ýmsir mætir menn hafa haldið því fram undanfarið, að norræn samvinna sé okkur íslendingum lítils virði. Þessi skoðun er að mínum dómi röng og raunar háskaleg. Rætur þjóðlífs vors og menningar liggja djúpt í norrænni jörð, og ég er sannfærður um það, að við njótum okkar bezt sem norræn þjóð 1 samstarfi við aðrar norrænar þjóðir. Þöllin á þorpinu hrörnar, og þjóðir þurfa skjóls, þurfa velvildar og skilnings annarra þjóða, og þá ekki sízt vér, hinir smæstu. Norður- 36
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norræn jól : ársrit Norræna félagsins
https://timarit.is/publication/1682

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.