Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1944, Page 67
Norrœn jól
inda úr hendi kúgarans — og skirrðust engar mannraunir, svo sem hver dagur
vitnar nú; enda forustan örugg, bæði leynt og ljóst, heima og erlendis, ekki sízt
hjá þjóðhöfðingja þeirra Dananna, Kristjáni koungi tíunda. Allt þetta mun lýsa
sem sá eldstólpi, er leitt getur hvaða þjóð sem er og hvað sem á dynur, til fyrir-
heitna landsins. — Og á þessum degi, þessu konungsafmæli, og framvegis myndu
hinir hugprúðu Danir óska, að við „siglu“ Danmerkur mætti í öllum orrahríðum
standa slíkur „sjóli“ sem Kristján X.
Það er vor einlæga bæn, að nú megi brátt létta því ógnaréli, er grúfir þar
yfir landi og þjóð, og bjartur dagur frelsis og farsældar ljóma, svo að aftur verði
Dananna ættarstorð einnig í þeim skilningi eins og fyrr:
„Et yndigt Land.“
Guð blessi þjóð og konung Danmerkur!