Peningamál - 04.05.2022, Síða 10
PENINGAMÁL 2022 / 2 10
Verðbólga í viðskiptalöndum Íslands hefur ekki verið
meiri í ríflega þrjá áratugi …
Verðbólga hefur aukist mikið um allan heim og mun
meira en almennt var spáð. Hún var 1,2% að meðaltali
í helstu viðskiptalöndum Íslands á fyrsta fjórðungi í fyrra
en var komin í 5,8% á sama fjórðungi í ár (mynd I-6). Það
er 1,4 prósentum meiri verðbólga en gert var ráð fyrir í
febrúarspá bankans og sú mesta í viðskiptalöndunum í
meira en þrjá áratugi. Mikil hækkun orkuverðs á undan-
förnum misserum vegur þungt. Þannig má t.d. rekja
rúmlega fjórðung ársverðbólgunnar í Bandaríkjunum til
hækkunar orkuverðs og um helming hennar á evrusvæð-
inu. Kröftugur efnahagsbati og mikil vörueftirspurn sam-
hliða þrálátum framleiðslutruflunum vegna farsóttarinn-
ar hafa einnig stuðlað að verðhækkunum til neytenda.
Endurspeglast það í mikilli hækkun flutningskostnaðar
og almennri hækkun hrávöruverðs (mynd I-7). Hefur
þetta haft í för með sér töluverða aukningu undirliggj-
andi verðbólgu, einkum í Bandaríkjunum og Bretlandi.
Án sveiflukenndra liða eins og orku og matvöru var
verðbólga t.d. 3,3% að meðaltali í viðskiptalöndunum á
fyrsta fjórðungi en var rúmlega 1% á sama tíma fyrir ári.
… og hafa alþjóðlegar verðbólguhorfur versnað enn
frekar
Alþjóðlegar verðbólguhorfur hafa versnað enn frekar í
kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu, einkum vegna viðbótar-
hækkunar á verði orkugjafa og annarrar hrávöru (sjá
rammagrein 2). Stríðsátökin og hertar sóttvarnaraðgerðir
í Kína munu líklega einnig valda því að lengri tíma tekur
að ráða fram úr þrálátum framleiðsluhnökrum sem
haldið hafa aftur af efnahagsumsvifum og leitt til verð-
hækkana undanfarin misseri. Talið er að verðbólga verði
5,8% að meðaltali í viðskiptalöndunum í ár sem er 2,3
prósentum meira en í febrúarspánni. Verðbólguhorfur
versna einkum á evrusvæðinu sem reiðir sig í miklum
mæli á orkuinnflutning frá Rússlandi. Einnig er spáð meiri
verðbólgu í viðskiptalöndunum á næsta ári.
Seðlabankar þróaðra ríkja hafa dregið enn frekar úr
stuðningsaðgerðum sínum …
Þrátt fyrir að hagvaxtarhorfur hafi versnað og óvissa
aukist hafa seðlabankar helstu iðnríkja haldið ótrauðir
áfram að draga úr lausu taumhaldi peningastefnunnar.
Nú er búist við enn meiri vaxtahækkunum á komandi
misserum en áður var vænst enda hafa verðbólgu-
horfur versnað og vísbendingar eru um aukna spennu
á vinnumarkaði (mynd I-8). Seðlabanki Evrópu (ECB)
tilkynnti snemma í mars sl. að hann hygðist draga hraðar
úr skuldabréfakaupum og að þeim yrði líklega hætt á
þriðja ársfjórðungi í ár. Seðlabanki Bandaríkjanna gekk
Seðlabankavextir í ýmsum ríkjum1
1. Gögn til og með 29. apríl 2022.
Heimildir: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, Refinitiv Datastream.
Vextir í árslok 2020
Vaxtabreyting 2021
Vaxtabreyting 2022
%
Mynd I-9
-2
0
2
4
6
8
10
12
Þróuð ríki Nýmarkaðs- og þróunarríki
Br
as
ilí
a
Ú
rú
gv
æ
Sí
le
M
ex
ík
ó
Pa
ra
gv
æ
Ja
m
aí
ka
Pe
rú
Pó
lla
nd
U
ng
v.
la
nd
K
ól
um
bí
a
Té
kk
la
nd
Ís
la
nd
Su
ðu
r-
K
ór
ea
N
ýj
a-
Sj
ál
an
d
Br
et
la
nd
N
or
eg
ur
K
an
ad
a
Ba
nd
ar
ík
in
Sv
íþ
jó
ð
Ev
ru
sv
æ
ði
Sv
is
s
Alþjóðlegt flutninga- og hrávöruverð¹
Janúar 2020 - apríl 2022
1. Landbúnaðarafurðir skiptast í matvæli (62%), drykkjarvörur (13%) og hráefni
(25%). Verðvísitala gámaflutninga er Freightos Global Container Index. Gögn til og
með 29. apríl 2022.
Heimildir: Alþjóðabankinn, Refinitiv Datastream.
Hrávara án orkugjafa (v. ás)
Landbúnaðarafurðir (v. ás)
Málmar (v. ás)
Gámaflutningar (h. ás)
Vísitala, janúar 2020 = 100
Mynd I-7
80
100
120
140
160
180
200
220
240
0
100
200
300
400
500
600
700
800
202220212020
Vísitala, janúar 2020 = 100
Meginvextir seðlabanka1
Janúar 2018 - júní 2025
1. Daglegar tölur 1. janúar 2018 til 29. apríl 2022 og ársfjórðungslegar tölur 2. ársfj.
2022 til 2. ársfj. 2025. Bandarísku vextirnir eru efri mörk vaxtabils Seðlabanka Banda-
ríkjanna og vextirnir fyrir evrusvæðið eru innlánsvextir Seðlabanka Evrópu. Framvirkir
vextir byggjast á vaxtaskiptasamningum (e. overnight index swaps, OIS). Heilar línur
byggjast á framvirkum ferlum í lok apríl 2022 en brotalínur í byrjun febrúar 2022.
Heimildir: Bloomberg, Refinitiv Datastream.
Bandaríkin Evrusvæðið Bretland
%
Mynd I-8
2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 ‘25
-1,0
-0,5
0,0
0,5
1,0
1,5
2,0
2,5
3,0
3,5