Peningamál - 04.05.2022, Page 12
PENINGAMÁL 2022 / 2 12
Útflutningsverð og viðskiptakjör
Horfur á meiri verðhækkun sjávarafurða ...
Verð á íslenskum sjávarafurðum hækkaði hratt á seinni
hluta síðasta árs í takt við batnandi markaðsaðstæður
eftir mikla lækkun vegna áhrifa farsóttarinnar á árinu
2020 (mynd I-13). Verð í erlendum gjaldmiðlum var
orðið um 5% hærra en fyrir faraldurinn undir lok síðasta
árs. Það er í takt við það sem búist var við í febrúarspá
bankans. Ólíkt því sem þá var búist við hækkaði sjávar-
afurðaverð hins vegar áfram í byrjun þessa árs og útlit er
fyrir töluvert meiri hækkun í ár en áður var spáð. Skýrist
það einkum af betri horfum um verð botnfiskafurða,
bæði sakir meiri hækkana í ársbyrjun en ekki síður vegna
áhrifa refsiaðgerða gagnvart Rússlandi. Rússland er
mikilvægur útflytjandi á botnfiski og hefur heft aðgengi
þeirra að mörkuðum leitt til aukinnar eftirspurnar eftir
íslenskum sjávarafurðum sem að öðru óbreyttu mun
leiða til enn frekari verðhækkunar á botnfiskafurðum á
árinu. Þá eru einnig horfur á að verð loðnuafurða lækki
ívið minna en áður var áætlað þar sem ekki var unnt
að veiða allan útgefinn kvóta. Í grunnspá bankans er
gert ráð fyrir að útflutningsverð sjávarafurða í erlendum
gjaldmiðlum hækki um 9% í ár í stað 4% eins og spáð
var í febrúar. Á móti er búist við heldur meiri verðlækkun
á næsta ári en að það verði þó heldur hærra undir lok
spátímans en spáð var í febrúar.
… og enn meiri hækkun álverðs
Útflutningsverð áls í Bandaríkjadölum hefur hækkað
verulega á undanförnum misserum og nam árshækkun
þess um 44% í fyrra (mynd I-13). Skýrist það að hluta
af skertri framleiðslu í Kína vegna stefnu þarlendra
stjórnvalda í umhverfismálum. Þá hefur skortur á orku
og hækkun aðfangaverðs einnig leitt til framleiðslu-
skerðingar víða um heim. Á sama tíma hefur eftir-
spurn farið vaxandi í takt við alþjóðlegan efnahagsbata.
Heimsmarkaðsverð á áli hækkaði enn frekar í kjölfar
innrásar Rússa í Úkraínu. Það fór hæst í tæplega 3.900
Bandaríkjadali á tonnið í byrjun mars og hafði aldrei
mælst hærra. Skýrist það einkum af aukinni óvissu um
áhrif átakanna og refsiaðgerða á framboð en hlutdeild
Rússlands í heimsframleiðslunni er 6%. Einnig eru
vísbendingar um að mikil hækkun orkuverðs í kjölfar
átakanna hafi leitt til enn frekari framleiðsluskerðingar
álfyrirtækja, einkum í Evrópu. Þá hefur verð á súráli, sem
er notað til álframleiðslu, einnig hækkað mikið sem hefur
ýtt undir verðhækkun áls. Talið er að útflutningsverð áls í
Bandaríkjadölum verði því um 37% hærra í ár en það var
í fyrra í stað 16% hærra í febrúarspá bankans. Á móti eru
horfur á heldur meiri lækkunum á næstu tveimur árum.
Hrávöruverð og viðskiptakjör¹
1. ársfj. 2013 - 1. ársfj. 2022
1. Grunnspá Seðlabankans 1. ársfj. 2022 fyrir verð sjávarafurða og viðskiptakjör.
Heimildir: Alþjóðabankinn, Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
Vísitala, 2010 = 100
Mynd I-13
Hrávörur (án orku, í USD)
Sjávarafurðir (í erl. gjaldm.)
Ál (í USD)
Viðskiptakjör
70
80
90
100
110
120
130
140
150
160
170
202120202019201820172016201520142013