Morgunblaðið - 31.12.2022, Síða 6

Morgunblaðið - 31.12.2022, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12.2022 Sunneva Eir Einarsdóttir áhrifavaldur fékk sér Pamelu Anderson-hár- greiðslu á árinu. Komu 2022 var fagnað af öllu hjarta en ekki leið á löngu þar til fólk var skipað í enn eina sóttkvína og hvað þetta allt hét. Í febrúar fór að rofa aðeins til og þann 25. febrúar var öllum sótt- varnaraðgerðum vegna kórónuveirunnar aflétt Fólk komst út úr húsi, gat hitt alla skemmti- legu samferðamenn sína og endurheimt sína glitrandi tilveru. Eða það hélt fólk að minnsta kosti. Á meðan gular viðvaranir mokuðust yfir þessa litlu eyju í Atlantshafi laumaðist fólk í símann sinn, hækkaði yfirdráttinn og pantaði sér ferð til Tenerife. Landsmenn voru þó ekki lengi í sinni Tenerife-búbblu, því um miðjan febrúar ákvað Pútín að ráðast inn í Úkraínu. Vi þekkjum afleiðingarnar af því. Merkilegt er að þótt fjármálakerfi heimsins haldi því fram að þ séu skotheld þá þola þau lítið rask. Það þarf ekk nema einn Rússa á eftirlaunaaldri til að setja allt í uppnám. Þótt Íslendingar hafi sloppið nokkuð vel á styrjaldartímum með sitt ódýra rafmagn og alla sína ýsu og þorsk sem fiskast upp úr landhelginni þá hefur þorri þjóðar- innar verið svolítið öfugsnúinn á köflum. Það eru líklega tvær ástæður fyrir því. Önnur ástæðan gæti verið sú að fólk sé að upplifa „post covid trauma“. Hin gæti verið stýrivaxtaáfall. Þegar lánastofnanir lánuðu landsmönnum peninga fyrir húsnæði þá voru vextir til dæmis 0,75 % í maí 2021. Þessir vext eru nú 6%. Þar sem fjármálalæsi er ekki kenn í 7. bekk og fjármál meira feimnismál en kyn- fræðsla þá er ekki nema von að fólk hafi ekki vitað nákvæmlega hvernig lán væri farsælast að taka. Það skiptir kannski ekki máli að taka lán með breytilegum vöxtum þegar vextir eru 0,75% en breytilegir vextir hafa tilhneigingu til að breytast. Í kynfræðslu í 7. bekk þurfa nemendur að vita hvað það kemur mikið magn úr miðjuparti karla við sáðlát. Samkvæmt kennslubókum er það ein teskeið eða svipað magn og fólk notar af lyftidufti þegar það bakar súkkulaðiköku. Það hlýtur að þjóna einhverjum tilgangi að slíkar upplýsingar séu á vitorði 12 ára barna. Annars væru þau líklega ekki látin læra um töfra miðjuparts karla og kvenna utanbókar. Það gæti verið gagnlegt að þessi hópur lærði líka um lán- tökur, sparnað og vexti. Það væri hægt að láta hópinn reikna hvað hægt er að spara mikla peninga með því að sleppa því að kaupa einn orkudrykk á dag og kannski kenna þeim að reikna hvað Playstation-tölva myndi kosta í dag ef hún hefði hækkað um 6% síðan í maí 2021. Tásumyndir frá Tenerife voru móðins á árinu. . ð au i ir t Ásgeir Jónsson seðla- bankastjóri er nýjasta grýlan í bænum. Er lífið ekki örugglega núna? Landsmenn voru fullir af bjartsýni þegar þeir sprengdu upp 2021 og hétu sér því að þurfa aldrei framar að fara í smitgát, í sóttkví og ganga með grímu. Fólkið í landinu var komið með nóg af þessu stofu- fangelsi sem hafði staðið yfir síðan í febrúar 2020. Nú skyldi slett úr klaufunum þar sem engin tveggja metra regla var að rústa lífi fólks. MARTA MARÍAWINKEL JÓNASDÓTTIR er fréttastjóri dægurmála mbl.is og höfundur Smartlands. Hún hefur starfað hjá Árvakri frá 2011. Hún hóf blaðamannsferil sinn árið 2001 og hefur á ferli sínum ritstýrt lífsstílstímaritum og gefið út fjórar bækur. Ef millistétt nútímans hefði til dæmis lært að reikna út verð á Millet-úlpum í 12 ára bekk þá myndi hún kannski hugsa öðruvísi um peninga. Setningar á borð við Lífið er núna og Þetta reddast eru krúttlegar og mjög íslenskar. Krúttlegheitin afmást þó svolítið þegar snjóar í hagkerfinu. Íslendingar eru ekki aumingjar. Þeir eru harðgerðari en gengur og gerist. Geðlæknir nokkur lét þau orð falla í einkasamtali okkar að það væri ekki skrýtið að þjóðin væri með stjórnlausa fjölathygli. Það hefði enginn hefð- bundinn meðaljón komið sér upp skipi, fyllt það af vinum sínum og nokkrum skvísum og siglt í fússi út á litla eyju í Atlantshafi. Komið sér upp tilveru þar og neitað að snúa til baka. Þetta gerir líklega bara fólk með fjölathygli. Ef við sem þjóð erum með fjölathygli á hærra stigi en gengur og gerist þá er kannski ekkert skrýtið að við nennum ekki að setja okkur inn í áhrif breytilegra vaxta. Þjóðin dettur út um leið og hún heyrir orðið stýrivaxtahækkun. Og treystir á að þetta reddist. Þetta gæti verið ein af ástæðunum fyrir því að fólk lætur nýjustu grýluna í bænum, Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra, ekki eyðileggja fyrir sér stemninguna. Það finnur leiðir til þess að vera í stuði þrátt fyrir stýrivaxtahækkanir. Margir fóru til dæmis að flytja inn vín eða ólívuolíu og lærðu að vera markþjálfar eða jógakennarar. Ein- hverjir komu sér upp TikTok aðgangi og fóru að safna að sér fylgjendum og fríu dóti til að maka á sig á meðan aðrir fóru bara upp í Breiðholt í sveppaseremóníu. Allt í nafni sjálfsræktar og valdeflingar. Svo voru einhverjir sem fundu sig uppi á fjöllum með búbblur í bakpokanum, létu stækka hressi- lega á sér varirnar og fengu sér Pamelu Anderson-klippingu. Restin af þjóðinni fór svo bara til Tene. Hellti vel í sig af sangríu og passaði að kaupa nóg af nikótínpúðum í fríhöfninni. Fólk með púða undir vörinni lítur út fyrir að vera nýkomið úr varastækkun í heimahúsi. Svo treysti fólk því bara að þetta myndi allt saman reddast. Sem það gerir líklega. Ein- hvern veginn. Ef millistétt nútímans hefði til dæmis lært að reikna út verð á Millet-úlpum í 12 ára bekk þá myndi hún kannski hugsa öðruvísi um peninga. Setningar á borð við Lífið er núna og Þetta reddast eru krúttlegar og mjög íslenskar.Krúttleg- heitin afmást þó svolítið þegar snjóar í hagkerfinu. TÍMAMÓT REYNT VAR AÐ EYÐILEGGJA STEMNINGUNA MEÐ STÝRIVAXTAHÆKKUNUM EN ÞAÐ TÓKST EKKI. Unsplash Það fór helst enginn út úr húsi á árinu nema að vera með búbblur í bakpokanum. AFP 2022 var árið þar sem Pamelu Ander- son-útlitið varð móðins á ný. Kisu- lórutoppur og ljósar varir með dekkri varalitablýanti gerðu allt vitlaust. Morgunblaðið/Einar Falur Hér eru íslenskir víkingar komnir til New York en for- feður þessara manna voru líklega með fjölathygli. Unsplash Unsplash Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.