Morgunblaðið - 31.12.2022, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12.2022 35
Morgunblaðið/Eggert
Eldur í hundrað bílhræjum
OKTÓBER Allt tiltækt slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar
var að störfum við athafnasvæði Terra, í grennd við Akranes, 27.
október þegar eldur blossaði upp í um hundrað bílhræjum. Slökkvi-
liðsmenn unnu að því að rífa hauginn í sundur og kæla svæðið til
þess að koma í veg fyrir að eldur kviknaði á ný.
Morgunblaðið/Eggert
Mótmælimenntskælinga
OKTÓBER Fjölmenn mótmæli voru við Menntaskólann við
Hamrahlíð í haust þegar nemendur gengu úr tímum til að sýna
þolendum kynferðisofbeldis stuðning. Tilgangur mótmælanna var að
reyna að knýja fram breytingar á viðbragðsáætlun allra skóla, þannig
að tekið verði á kynferðisbrotum af sömu alvöru og öðru ofbeldi.
Morgunblaðið/Eggert
Veðurteppt á flugvellinum
DESEMBER Rétt fyrir jól urðu ríflega þúsund manns innlyksa á Keflavíkurflugvelli. Öllum
flugferðum var aflýst vegna illviðris og fannfergis. Þar að auki var Reykjanesbrautinni
lokað svo farþegar komust hvorki lönd né strönd.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vetur konungur hélt innreið sína
DESEMBER Óhætt er að segja að veturinn hafi mætt á landið í desember með tilheyrandi
frosti og snjókomu. Fjölmargir festu bíla sína, ófært var víða um land og fólk lenti í ýmsum
hremmingum. Í lok árs fór svo frostið niður í -22,8 gráður í höfuðborginni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kjaradeilur í brennidepli
NÓVEMBER Skammtímasamingar náðust milli Samtaka atvinnulífs-
ins og VR og Starfsgreinasambandsins en ósamið er við Eflingu og
stefnir í harða kjaradeilu. Ekki vantaði þó fjölmennið í samninganefnd
Eflingar á fundi í nóvember en fulltrúar SA voru aðeins tveir.
Morgunblaðið/Eggert
Bjarni áfram í
formannsstólnum
NÓVEMBER Í byrjun nóvember var haldinn lands-
fundur Sjálfstæðismanna þar sem formannskjör
fór fram. Bjarni Benediksson, fjármálaráðherra og
formaður Sjálfstæðisflokksins, hafði betur í kjörinu
á móti Guðlaugi Þór Þórðarsyni, umhverfis-, orku-
og loftslagsráðherra, sem hafði boðið sig fram til
formanns Sjálfstæðisflokksins gegn Bjarna. Hann
hefur nú verið formaður í 13 ár.