Morgunblaðið - 31.12.2022, Side 33

Morgunblaðið - 31.12.2022, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12.2022 33 Morgunblaðið/Eggert Með hækkandi sól í Eurovision MAÍ Systur komu, sáu og sigruðu í Söngvakeppni Sjónvarpsins með laginu Með hækkandi sól. Úrslitin voru nokkuð óvænt að sögn Hildar Tryggvadóttur Flóvenz formanns FÁSES, Fé- lags áhugafólks um söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Sigga, Beta og Elín Eyþórs- dætur voru fulltrúar Íslands í Eurovision í Tórínó á Ítalíu í maí og lentu í 23. sæti. Morgunblaðið/Eggert Rússneskir hermenn nauðga MAÍ Mótmæli voru haldin við rússneska sendiráðið á Túngötu í maí. Flóttafólk frá Úkraínu kom þar saman til að mótmæla stríðinu og var atað rauðri málningu sem tákn fyrir blóðsúthellinguna sem á sér stað í heimalandinu. Á borða mátti lesa að rússnesk- ir hermenn nauðgi en úkraínskar konur sem búa við hrylling stríðsins hafa sagt frá nauðgunum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Selenskí ávarpar Alþingi MAÍ Í maí ávarpaði Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, íslenska þingmenn og þjóðina alla. Þetta var í fyrsta sinn sem erlendum einstaklingi er boðið að ávarpa Alþingi. Forset- inn hefur ávarpað fjölda þjóðþinga frá því að innrás Rússlands í Úkraínu hófst 24. febrúar síðastliðinn. Þar hefur hann óskað eftir auknum stuðningi við Úkraínu vegna innrásarinnar. Meðal annars hefur hann kallað eftir hertum refsiaðgerðum í garð Rússa. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sveitarstjórnarkosningar í vor MAÍ Um miðjan maí voru haldnar sveitarstjórnarkosningar á Íslandi. Dagur B. Egg- ertsson, borgarstjóri í Reykjavík, sést á mynd ávarpa gesti á kosningavöku Sam- fylkingarinnar. Hann hélt sæti sínu sem borgarstjóri en Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í borgarstjórn, tekur síðar við keflinu. Morgunblaðið/Eggert Ferðamenn streyma til landsins JÚNÍ Ferðamenn eru til í allt en vilja hafa vaðið fyrir neðan sig. Þessir vösku ferðalangar létu veðrið ekki trufla sig en til að vera öruggir fyrir veirusýkingum ákváðu þeir að allur væri varinn góður og báru grímur. Eða kannski var það bara hlýrra? Morgunblaðið/Árni Sæberg Krýsuvíkurkirkja endurreist JÚNÍ Krýsuvíkurkirkja hefur verið endurreist eftir brunann árið 2010. Var hún vígð við hátíðlega athöfn á hvítasunnudag, hinn 5. júní, en veður- guðirnir voru ekki sérlega hliðhollir. Kirkjan brann til grunna í upphafi árs árið 2010 en Vinir Krýsu- víkurkirkju stóðu fyrir endurbyggingu hennar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.