Morgunblaðið - 31.12.2022, Side 37

Morgunblaðið - 31.12.2022, Side 37
EHT Collaboration/National Science Foundation/Útbýtt fyrir milligöngu Reuters TPX Images of the Day Fyrsta myndin af svartholi íVetrarbrautinni MAÍ Stjörnufræðingar náðu 12. maí fyrstu myndinni af ljósinu í kringum Sagittarius A*, gríðarstórt svarthol í miðri Vetrarbrautinni, um 27 þúsund ljósár frá jörðu. Svartholið fannst 1974, en ekki hefur áður verið hægt að staðfesta tilvist þess með sýnilegum hætti. Stjörnufræðingar höfðu áður tekið eftir að stjörnur væru á braut í kringum ósýni- legt, gríðarstórt fyrirbæri, sem gaf til kynna að þar væri risasvarthol. Myndin var búin til í samstarfi vísindamanna sem nefnist Event Horizon Telecope Collaboration og snýst um að nota net kíkja til rannsókna. Sami hópur birti fyrstu mynd allra tíma af svartholi árið 2019. Það svarthol er 53 milljónir ljósára frá jörðu og 1.500 sinnum stærra en Sagittarius A*. Rannsóknarhópurinn er stöðugt að víkka út og efla samstarfið til að ná fleiri myndum af svartholum. MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12.2022 37 Reuters/Phil Noble Cristiano Ronaldo setur met MARS Opinberlega var viðurkennt 12. mars að Cristiano Ronaldo væri sá maður sem skorað hefði flest mörk í sögu atvinnufótboltans. Metinu náði Ronaldo þegar hann skoraði þrennu og tryggði Manchester United sigur á Tottenham Hotspur. Hafði hann þá samanlagt skorað 807 mörk. Metið átti Josef Bican. Ronaldo lét fyrst að sér kveða á sviði alþjóðaknattspyrnu í fyrsta leik sínum fyrir portúgalska landsliðið 2003 þegar hann var 18 ára. Hann hefur síðan leikið með Manchester United, Real Madrid og Juventus og verið fyrirliði portúgalska lands- liðsins. Hér sést hann fagna einu marka sinna þegar hann setti metið. Olivier Douliery/AFP gegnum Getty Images Musk býður 44 milljarða dollara íTwitter APRÍL Elon Musk bauð 14. apríl um 44 milljarða dollara (rúmar sex billjónir króna) í félagsmiðla- fyrirtækið Twitter. Stjórn Twitter samþykkti tilboðið, sem yrði til þess að fyrirtækið færi af mark- aði, einróma. Musk lýsti yfir því að hann myndi hafa málfrelsis- reglur í hávegum og sakaði Twitter um að hafa brugðist í þeim efnum. Hann gaf einnig í skyn að hann myndi bæta reiknirita eða algoritma Twitter til að útiloka rusltilkynningabotta og staðfesta alla notendur vefs- ins. 8. júlí tilkynnti Musk að hann hefði rift samkomulaginu vegna samningsbrots Twitter, sem hefði neitað að láta til skarar skríða til að uppræta reikninga rusltilkynningabotta. Í samn- ingnum var riftunarákvæði upp á einn milljarð dollara. Twitter höfðaði mál á hendur Musk. 4. október tilkynnti Musk að hann myndi kaupa Twitter fyrir þá upphæð sem hann bauð og hófust þá samningar á ný. Sergey Ponomarev/The New York Times Emmanuel Macron endurkjörinn APRÍL Emmanuel Macron bar sigurorð af Marine Le Pen 24. apríl og varð fyrsti forseti Frakklands til að ná endurkjöri frá árinu 2002. Í sigurræðu sinni sagði Macron, sem er Evrópusambandssinni á miðju hins pólitíska litrófs og leiðtogi flokksins La République En Marché!, að hann væri staðráðinn í að bregðast við þeirri reiði, sem hann hefði orðið var við hjá gagnrýnendum sínum. Le Pen er leiðtogi Þjóðfylkingarinnar. Hún setti innflytjenda- mál á oddinn. Munurinn á milli þeirra var mun minni nú en þegar þau leiddu saman hesta sína árið 2017 þegar Macron sigraði Le Pen fyrst og varð yngsti forseti í sögu Frakklands. Þrátt fyrir tapið í apríl sagði Le Pen að niðurstaðan væri sigur fyrir stjórnmálahreyfingu sína. Hér ávarpar Macron stuðningsmenn sína í París eftir sigurinn. Ruth Fremson/The New York Times Will Smith rekur Chris Rock kinnhest MARS Will Smith gekk upp á svið í miðri 94. Óskarsverð- launaafhendingunni og rak Chris Rock kinnhest. Rétt áður hafði Rock hent gaman að hárlausu höfði Jödu Pin- kett Smith, eiginkonu hans, þegar hann kynnti verðlaunin fyrir bestu heimildarmyndina. Smith hrópaði ókvæðisorð að Rock og sagði honum að hætta að tala um konu sína. Síðar um kvöldið hlaut Smith Óskarinn fyrir bestan leik í aðalhlutverki, flutti tilfinn- ingum hlaðna ræðu um að hann þyrfti að verja fölskyldu sína og bað bandarísku kvikmyndakademínuna, sem stendur að verðlauna- afhendingunni, afsökunar á hegðun sinni. Í vikunni á eftir gekk Smith úr akademíunni og hlaut 10 ára bann frá öllum viðburðum á hennar vegum. Smith bað Rock síðar afsökunar. Doug Mills/The New York Times Biden styður Taívan MAÍ Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, sagði að Bandaríkjamenn myndu skerast hernaðarlega í leikinn ef Kínverjar réðust inn í Taívan. Biden lét þessi orð falla á blaðamannafundi með Fimuio Kishida, forsætisráð- herra Japans, í Akasaka-höll í Tókíó og bætti við að þótt Bandaríkja- menn féllust á stefnu Kína að aðeins væri eitt Kína myndu þeir verja Taí- van fyrir árásum Kínverja. „Það er skuldbinding, sem við höfum gert,“ sagði Biden. Ekki leið á löngu þar til viðbrögð bárust frá Hvíta húsinu og virtist þeim ætlað að draga úr þunga orða forsetans. Sagði að stefna Bandaríkjamanna í þessum heimshluta hefði ekki breyst.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.