Morgunblaðið - 31.12.2022, Síða 39

Morgunblaðið - 31.12.2022, Síða 39
James Hill fyrir The New York Times) Andlát Elísa- betar II. SEPTEMBER Elísabet II. Bretadrottning lést 8. september 96 ára að aldri. Þar með lauk 70 ára valdatíð sem hófst á einni öld og lauk á annarri. Viðamikil útför fór fram 19. september eftir 10 daga sorgartímabil. Talið er að 250 þúsund manns hafi stillt sér upp til að votta hinni elskuðu og dáðu drottningu hinstu virðingu. Almenningur gat kvatt drottninguna í Westminster Abbey þar sem hún lá fyrir útförina. Þar gifti hún sig árið 1947 og var krýnd árið 1953. Drottningin var jarðsett í kapellu heilags Georgs í Windsor-kastala við hlið manns síns, hertogans af Edinborg, föður síns, Georgs VI., móður sinnar, Elísabetar, og systur, Margrétar prinsessu. Í huga margra, sem þekktu ekki annað en að Elísabet gegndi keik embætti drottningar, markar fráfall hennar tíma óvissu, ekki síst vegna pólitísks usla í Íhaldsflokknum, sem skipti tvisvar um forsætisráðherra á nokkrum vikum, og yfirvofandi efnahag- skreppu. Myndin sýnir mannþröngina á götum Lundúna þegar fólk stillti sér upp til að fylgjast með líkfylgd Elísabetar frá Westminster Abbey til hinstu hvílu í Windsor-kastala. MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12.2022 39 Fredrik Sandberg/Agence France-Presse, gegnum Tt News Agency/AFP gegnum Getty Images Íhaldsmenn ná naum- ummeirihluta í Svíþjóð SEPTEMBER Kosningabandalag hægri- og miðjuflokka tryggði sér í september nauman þriggja sæta meirihluta á sænska þinginu eftir kosningar, sem víða var grannt fylgst með. Kosningabandalagið hafði betur en flokkur sósíaldemókrata og naut til þess stuðnings Sví- þjóðardemókrata, sem lögðu áherslu á andstöðu við innflytjendur og hafa verið litnir hornauga af öðrum flokkum í landinu. Úrslitin fleyttu Ulf Kristersson, leiðtoga hægri flokksins Modera- terna, í stól forsætisráðherra 17. október með 176 atkvæðum gegn 173. Kristersson hét hægri sveiflu í stefnu nýrrar stjórnar í innflytjenda-, glæpa- og orkumálum. Þjóðernishyggja setti líka mark sitt á kosningarnar á Ítalíu þar sem Giorgia Meloni og hægri flokkur hennar, Bræður Ítalíu, komust til valda. Þar léku innflytjendamál einnig stórt hlutverk í kosningabaráttunni.Kirill Kudryavtsev/AFP gegnum Getty Images Körfuboltakona í fangelsi í Rússlandi ÁGÚST Brittney Griner, leik- maður í bandarísku kvenna- deildinni í körfubolta, WNBA, var dæmd í níu ára fangelsi í Rússlandi fyrir brot á eitur- lyfjalöggjöf landsins. Griner er stjörnuleikmaður og miðherji liðsins Phoenix Mercury, en var í Rússlandi að leika körfu- bolta milli keppnistímabila í Bandaríkjunum. Hún var tekin á Sjeremetjevo-flugvelli í Moskvu og kváðust verðir hafa fundið rafrettugræju með leifum af hassolíu, sem er ólögleg í Rússlandi, í farangri hennar. Réttarhöldin yfir Griner fóru fram í skugga inn- rásar Rússlands í Úkraínu og spennu milli Bandaríkjamanna og Rússa. Griner var flutt í fanganýlendu í nóvember. Brittney Griner var látin laus í fangaskiptum 8. nóvember fyrir rússneska vopnasalann Viktor Bout. Myndin er af Griner í réttarsal í Rússlandi. Athit Perawongmetha/Reuters Fjöldamorð í leikskóla í Taílandi OKTÓBER Maður vopnaður skammbyssu og hnífi réðst inn í leikskóla í sveitahéraðinu Nong Bua Lamphu í Taílandi og skaut og stakk 36 manns til bana, þar á meðal 24 börn. Eftir ódæðisverkið sneri Panya Kamrab heim til sín og myrti konu sína og ungan son og svipti sig því næst lífi. Hann var 34 ára gamall. Byssueign í Taílandi er með því mesta sem gerist í Asíu og ofbeldi með skotvopnum sömuleiðis. Panya hafði skömmu áður verið vikið úr starfi sem lögregluþjónn eftir að hann var gripinn með metamfetamín í fórum sínum. Misnotkun á metamfetamíni hefur verið mikið vandamál í Taílandi þrátt fyrir tilraunir stjórn- valda til að stöðva eiturlyfjasölu og skipulagða glæpastarfsemi. Á myndinni sést syrgjandi kona leggja blómvönd til minningar um fórnarlömbin á leikskólanum. Thomas Peter TPX Images of the Day/Reuters Xi Jinping tryggir sér þriðja valdatímabilið OKTÓBER Xi Jinping, leiðtogi Kína, tryggði sér þriðja kjörtímabilið í forustu Kín- verska kommúnistaflokksins á 20. þjóðþingi flokksins 16. október. Fundurinn stóð í viku og greindi Xi frá því á hvað hann hygðist leggja áherslu. Nefndi þjóðaröryggi, tilkallið til Taívans samkvæmt stefnunni um „eitt Kína“, mikilvægi þess að verjast vestrænum ógnunum og áherslu á að stöðva kórónuveirusmit í fæðingu. Einnig tryggði hann flokksfélögum, sem honum eru hollir, sæti í fastanefnd stjórnmálaráðs flokksins. Í fyrsta skipti í marga áratugi var engin kona skipuð í neina af mikil- vægustu forustustöðunum. Á myndinni heilsar Xi viðstöddum við setningarathöfn flokksþingsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.