Morgunblaðið - 31.12.2022, Síða 42

Morgunblaðið - 31.12.2022, Síða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12.2022 Phill Magakoe/AFP gegnum Getty Images Herir Eþíópíu ogTigray gera vopnahlé NÓVEMBER Lýðfrelsisfylking Tigray og stjórnvöld í Eþíópíu féllust á vopnahlé eftir tíu ára samningalotu í Pretoríu í Suður-Afríku þar sem Afríkusambandið hafði milligöngu. Samkomulagið kom á óvart og var gert aðeins einum degi áður en tvö ár voru liðin frá upphafi átakanna, sem hafa verið blóðug og leikið næst fjölmennasta ríki Afríku grátt. Þúsundir manna hafa látið lífið og milljónir eru á vergangi. Áður en stríðið hófst hafði mikil spenna ríkt á milli Abiys Ahmeds forsætisráðherra og eþíópíska þjóðarhersins annars vegar og hins vegar Lýðfrelsisfylkingarinnar, sem áður hafði ráðið lögum og lofum í landinu í þrjá áratugi. Á myndinni sjást fulltrúar eþíópískra stjórnvalda og uppreisnarmanna í Tigray skiptast á eintökum af friðarsamkomulaginu eftir undirritun í Pretoríu 2. nóvember. Jenn Ackerman fyrir The New York Times Varað við þreföldum faraldri DESEMBER Heilbrigðissér- fræðingar vöruðu við því að álag á bandarískt heilbrigð- iskerfi, sem þegar glímir við þreytu vegna faraldursins og kulnun starfsmanna, gæti enn aukist út af þrefaldri veiruógn og almenningur ætti því að hafa varann á yfir vetrarmánuðina. Deildir fylltust á barnaspítölum vegna tilfella af kvefveirunni RSV í mörgum ríkjum Banda- ríkjanna í haust og flensutilfell- um fór fjölgandi. Læknum var brugðið vegna þess að þetta tvennt fór saman og að auki var spáð að kórónuveiran yrði að- sópsmeiri þegar kólnaði í veðri. Litlar eða engar hömlur eru á ferðalög og litlar sem engar nálgunarreglur. Árstíðabundnir sjúkdómar á borð við flensuna og RSV hafa tekið rækilega við sér eftir að fólk tók aftur upp sömu lífshætti og fyrir kórónu- veirufaraldurinn. Á myndinni er verið að bólusetja barn í verslunarmiðstöðinni Mall of America í Minnesota. Ilvy Njiokiktjien/The New York Times Orkukreppa í Evrópu DESEMBER Með metframleiðslu á vind- og sólarorku tókst að draga úr áhrifum orkukreppunnar í Evrópu. Kreppan orsakaðist af því að Rússar drógu úr framboði á ódýru, náttúrulegu gasi eftir að þeir réðust inn í Úkraínu í febrúar. Í Evrópu var einnig aukinn innflutningur á gasi frá Noregi og Norður-Afríku. Einnig var flutt inn gas í flutningaskipum, einkum frá Bandaríkj- unum. Þessar tilraunir til að draga úr því hvað Evrópa er háð rússnesku gasi hafa dugað til að koma á jafnvægi í bili. Í álfunni er þó mikið undir að tryggja aðrar orkulindir og hefur verð á gasi og rafmagni náð sögulegum hæðum. Óttast er að það ásamt stjórnlausri verðbólgu gæti grafið undan stuðningi í Evrópu við að verja Úkraínu gegn Rússum. Sérfræðingar hafa áhyggjur af að áframhaldandi óvissa í orkumálum gæti orðið til þess að menn neyðist til að skera niður framleiðslu í orkufrekum iðngreinum. Á myndinni sjást vindmyllur í hafnarborginni Eemshaven í Hollandi. FRÉTTAMYNDIR AF ERLENDUM VETTVANGI Kosningar valda sundr- ungu í Brasilíu NÓVEMBER Þúsundir stuðningsmanna Jairs Bolsonaros tókust á við lögreglu í Sao Paulo snemma í nóvember eftir að vinstri frambjóðandinn Luiz Inácia Lula da Silva sigraði í forsetakosningunum í Brasilíu. Þeir voru fullir reiði og héldu fram að úrslitum hefði verið hagrætt í kosningunum. Mikill fjöldi þyrptist til höfuðborgarinnar, Brasilíu, og kröfðust sumir þess að herinn tæki völdin þar til kosið hefði verið aftur. Öðrum þótti sú krafa váleg tíðindi, minnugir þess að í tvo áratugi bjuggu Brasilíumenn við herforingjastjórn. Brasilía er fjórða stærsta lýðræðisríki heims. Vandamálin eru mörg, þar á meðal mikið atvinnu- leysi og háar skuldir hins opinbera. Þá hefur stefna Brasilíustjórnar vegna regnskóganna, sem gengur á jafnt og þétt, vakið gagnrýni víða um heim. Á myndinni sjást lögreglumenn í borginni Brasilíu í viðbragðsstöðu andspænis stuðningsmönnum Bolsonaros.Victor Moriyama/The New York Times

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.