Morgunblaðið - 31.12.2022, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 31.12.2022, Qupperneq 52
52 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12.2022 Með leyfi Liu Cixin „Rannsóknarstofa hugsana“ Að segja sögur – nota hugmyndaflugið til að búa til sýndarheima utan veruleikans – er mikilvægur og einstakur hæfileiki mannsins. Enn sem komið er bend- ir ekkert til að nokkur önnur tegund á jörðinni búi yfir þessum mætti. Sýndarheimarnir, sem mynda kjarna mannlegra frásagna, kunna stundum að virðast líkir hinum raun- verulega heimi, en þeir geta líka átt lítið sameiginlegt með honum Sagan verður að búa yfir nógu miklum líkindum með hinum raunverulega heimi til að fólk finni snertifleti, en nógu ólíkir til að bjóða upp á rannsóknar- leiðangra. Þessi sýndarheimur – sagan – þjónar margvíslegum mikilvægum tilgangi. Í fyrsta lagi er hann framlenging á hinu raunverulega lífi. Fólk býr til eða nýtur þess að reyna hluti í sögu, sem ekki geta verið til í raunveruleikanum. Þannig getur maðurinn orðið fyrir andlegri og tilfinningalegri reynslu í þessu rými sem ekki er hægt í öðru samhengi. Sögur gefa fólki líka kost á að skilja heiminn frá öðru sjónarhorni. Sýndarheimur myndaður úr sögum er rannsóknarstofa hugsana þar sem náttúran getur farið sínu fram í jaðarástandi af ýmsum toga. Með því að rannsaka mörk hins náttúrulega heims í þessari sýndarstillingu er hægt að afhjúpa hliðar á grundvallarþáttum hans, sem ekki hafa verið prófaðir í raunveruleikanum. Sögur eru ekki bara til í sýndarheimi. Með þeim er hægt að búa til tengingar í raunheimi. Þegar fólk les eða heyrir sömu söguna fer það inn í sýndarveröld, sem það deilir. Þessi hópreynsla getur orðið til þess að til verður tengt samfélag í raunheimi byggt á því að fólk hittist í þessari sýndarveröld. Liu Cixin er vísindaskáldsöguhöfundur og skrifaði skáldsöguna The Three-Body Problem, sem fékk Hugo-verðlaunin og verið er að gera eftir þætti fyrir Netflix. Liu Cixin „Gáttin að því að segja sannleikann“ „Maður getur ekki horfið burt á sama hátt og maður kom,“ segir persónan Willy Loman í leikriti Arthurs Millers, „Sölumaður deyr“. „Það gengur ekki, maður verður að skilja eitthvað eftir sig.“ Í hvert skipti sem ég kem fram í þessu hlutverki í uppfærslunni, sem nú er sýnd á Broadway, minnir það mig á hina meðfæddu löngun mannsins til að hafa varanleg áhrif á heiminn áður en við kveðjum hann. Sem listamaður hefur mér alltaf fundist það forréttindi að segja sögur, hvort sem það hefur verið með því að taka upp tónlist, vera þulur í heimildar- mynd eða fara í hlutverk persónu á skjánum. Að segja söguna af ferðum okkar gefur lífi okkar tilgang, merkingu og endingu, veitir innsýn í hlutskipti mannsins, sem hægt er að deila með komandi kyn- slóðum og felur í sér máttinn til að breyta sjónarhorni fólks. Að segja sögur er einnig gáttin að því að segja sannleikann, sem hjálpar okkur að móta skoðanir okkar með upplýstum hætti, taka ákvarðanir og sjá okkur sjálf. Með því að segja sögur getum við náð saman, sagt hver okkar gildi eru og breytt í samræmi við þau. Án þess að segja sögur hefðum við ekki öll þau lög sögunnar, sem setja mark sitt á samtímann og Wendell Pierce Með leyfi Naomi Watanabe „Sögur eru arfur lífsins“ Sögurnar eru jafn margar og fólkið í heiminum. Ég vil heyra og læra af jafn mörgum og hægt er. Sem lista- maður á sviði og á skjánum hitti ég fyrir marga, ólíka einstaklinga og hlusta á frásagnir þeirra. Mig langar til að heyra af ævintýrum þeirra og skilja hvernig þeir lífa og hvernig þeim líður. Sögur veita tækifæri til að sjá heiminn með ólíkum hætti. Hvert okkar kemur að borðinu með einstakan bakgrunn. Það getur verið erfitt að fara út úr sinni kúlu og setja sig inn í sjónarhorn annarra. En lífið er stutt þannig að mig langar til að kynnast innsýn allra í það sem er að gerast í heiminum í kringum mig. Mín saga varð ekki aðeins til úr minni persónulegu lífsreynslu; sögur allra blandast við mína og verða hluti af minni sögu. Þessar sögur annarra geta hjálpað okkur að finna tilgang og öðlast lífsfyllingu – ef við kjósum að læra af þeim. Þess vegna eru frásagnir allra mér verðmætar. Þessar frásagnir gefa okkur kost á að stíga út fyrir okkur sjálf og horfa á okkar veruleika af nýjum krafti. Hugsið um lífið eins og hlaðborð og þið fáið að bragða á því sem það hefur upp á að bjóða. Þú gætir stundum áttað þig á að þú hafir viljað borða eitt, en nú viljir þú bragða annað í staðinn. Þú yfirgefur hlaðborðið með fullan disk, hlaðinn réttum, sem ekki er víst að þú hefðir smakkað annars. Það sama á við um okkar hversdagslíf. En því miður gleymum við okkur svo oft við að einblína á stóru myndina að við missum af smærri augnablikunum, sem geta veriö alveg jafn verðmæt, augnablik, sem móta sögu okkar. Þess vegna reyni ég að setja færslur á Instagram. Ég nota félagsvefi til að taka upp og deila því sem verður á vegi mínum í mínu daglega lífi. Sögur eru arfur lífsins. Þeim vindur fram á hverjum degi, hverri mínútu, hverri sekúndu. Sögur færa okkur mikla, sameiginlega reynslu og kjósum við að opna hug okkar og hjarta fyrir þessum ómissandi erfðagripum munu þeir auðga líf okkar svo um munar. Naomi Watanabe er skemmtikraftur. Naomi Watanabe Doug Watkins „Hvernig við gerum okkur heil“ Við segjum sögur vegna þess að við viljum sjá mynstur. Allir spyrja mig: „Hvernig fórstu úr því að vera vísindamaður í að vera rithöfundur?“ „Skrifaði bók,“ svara ég og yppti öxlum. „Maður þarf ekki að fá leyfi.“ Listir og vísindi eru ekki ólíkir hlutir, satt að segja; þau eru tvær hliðar á sama peningi. Og það sama og gerir einhvern að góðum rithöfundi – eða hvers konar listamanni – er það sama og gerir einhvern að góðum vísindamanni: hæfileikinn til að greina mynstur í því sem lítur út eins og glundroði. Vísindamaður skoðar ytri heiminn og vinnur með því að einangra afmarkaðan glundroða (segjum vistkerfi, plánetur, lífveru eða byggingu örvera) og greina mynstrin í honum. Það er svipað því sem listamaðurinn gerir, nema hann leitar í innri heim síns persónulega glundroða. Mynstur eru rökbygging jafnt hins efnislega sem hins andlega heims og með sögum sýn- um við hvert öðru þessa rökbyggingu. Með hverju mynstri skýrum við og tengjum, fyllum inn í eyður og búum til stökkpall að einhverju meira. Með sögum gerum við okkur heil. Diana Gabaldon er rithöfundur. Nýjasta skáldsagan hennar heitir Go Tell the Bees That I Am Gone og er níunda bókin í bókaflokknum Outlander. Diana Gabaldon Angela Sterling „Hið kvalafulla fárviðri hlutskiptis mannsins“ Við segjum sögur vegna þess að það er auð- veldara að skilja djúpan sannleik í gegnum goðsagnir, þjóðsögur og altækar hugmyndir. Vegna þess að tónlist og hreyfing eru altæk, jafnvel frumhvatir, kviknar okkar djúpi skilningur á því hvernig saga rís og hnígur sérstaklega með dansi. Maður á von á því að öll dramatíkin í ballett- frásögn komi fram þegar saman fara spor og tónlist. En augnablik án hreyfingar getur líka verið kraftmikið. Tökum þriðja þáttinn í hinni klassísku uppfærslu sir Kenneths MacMillans á ballettinum Rómeó og Júlíu. Eftir að Tíbalt deyr fyrir hendi Rómeós og Júlía sér fram á að verða neydd til að giftast París kýs MacMillan kyrrðina til að lýsa þjáningum Júlíu. Eftir að hafa dregið fram ofsafengnar ástríður söguhetjanna af slíkri fagmennsku með því að tvinna saman klassísk spor ballettsins og tónlist Sergeis Prokofjevs kýs MacMillan að sýna okkur ólgandi ráðabrugg Júlíu með því að láta hana einfaldlega sitja fremst á rúmi sínu. Hún haggast ekki, með ristarnar beinar og tærnar saman og niður. Meira að segja augnaráðið er óhuggulega kyrrt þannig að hljómusli strengjahljóðfær- anna og ómstríð blásturshljóðfærin fá að segja frá og túlka hugsanir hennar um leið og tilfinningareið hennar tekur á sig mynd. Hver einasti snúningur, í hvert einasta skipti sem hún var hafin á loft færðumst við nær þessu augnabliki þar sem hreyfingarleysið ríkir. Þetta er fallegt dæmi um hvernig hreyfing – og augnablikin þar á milli – endurómar í okkur í djúpum tilfinninganna. Dans getur enduspeglað ótta, ást eða gleði, eða jafnvel kafað dýpra í hið kvalafulla fárviðri hlutskiptis mannsins. Christopher Wheeldon er danshöfundur og leik- stjóri. Hans nýjasta verk er MJ: The Musical. Christopher Wheeldon hafa áhrif á framtíðina. Það er ógerningur að ímynda sér heim þar sem forfeður okkar deildu ekki reynslu sinni af þrældómi, ofsóknum, hryllingi, heiðri, von og sigrum. Hugsið um hvert landslag frásagnarinnar í djassi – hugmyndin um frelsi og form fær tilveru hlið við hlið í listinni – væri án listamanna á borð við Miles Davis, Ellu Fitzgerald og Lou- is Armstrong. Án þeirra væri enginn Terence Blanchard, Cécile McLorin Salvant, Wynton Marsalis eða allir þeir tónlistarmenn, sem haldið hafa djassinum á lofti fram á þennan dag. Þegar kórónuveirufaraldurinn skall á varð það að segja sögur tignaður vettvangur huggunar og sköpunar. Við uppgötvuðum nýja höfunda og kvikmyndagerðarmenn, enduruppgötvuðum bíómyndir og uppáhaldssjónvarpsefni og fórum á sýningar leikhúsa um allan heim á netinu. Ég fann mína gátt að því að segja sögur þegar ég var að vaxa úr grasi sem drengur í New Orleans með innblæstri frá hinu sögulega Free Southern Theater og á 40 ára ferli mínum hef ég lært að meta kraft þess til fullnustu. Í hvert einasta skipti, sem ég stíg á svið fyrir framan myndavél, er ég að búa til samband við áhorfendur í þeirri von að þegar við skiljum og sýn- ingunni er lokið hafi þeir sína eigin sögu að segja. Að standa daglega á sviði í Sölumaður deyr, í klassísku hlutverki Willys Lomans, eru ekki aðeins tímamót í mínu lífi og ferli, heldur bætir einnig við sögulegum kafla og opnar dyr fyrir fjölda ólíkra radda og listamanna til að segja þessa sögu. Ég vona að með hverri sýningu brennum við til grunna hús, sem hefur verið eins og spennitreyja, og reisum stærra heimili þar sem fleiri eiga athvarf – þar sem er að finna nærandi umhverfi til að fagna allri þeirri sagnaauðgi sem við búum yfir. Wendell Pierce er leikari og tónlistarmaður. Hann leikur um þessar mundir í nýrri uppfærslu af Sölumaður deyr á Broadway. TÍMAMÓT STÓRA SPURNINGIN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.