Morgunblaðið - 31.12.2022, Síða 64

Morgunblaðið - 31.12.2022, Síða 64
64 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12.2022 TÍMAMÓT 22 hlutir sem gerðust fyrsta sinn árið 2022 Óvæntir, alvar- legir og stundum kjánalegir við- burðir og straum- ar, sem gerðust eða varð vart við í fyrsta skipti 2022. Tricia Tisak Borja Suarez/Reuters Stjörnuhrap sést á himni frá Kanaríeyjum með stjörnur í Vetrar- brautina í bakgrunni. Vísindamenn negla niður upphaf mótunar vetrarbrautarinnar Vísindamenn geta nú útskýrt í fyrsta skipti hvað hratt af stað myndun stjarna í vetrarbrautinni, samkvæmt grein, sem birtist í vísindatímaritinu Nature í janúar. Vísindamenn segja að keðju- verkun í sprengistjörnum fyrir 14 milljónum ára hafi leitt til þess að til varð nokkurs konar bóla, sem var eitt þúsund ljósár á breidd, og í henni miðri liggur vetrarbrautin okkar. Vísindamenn vissu reyndar að þessi bóla væri til, en áttuðu sig ekki fyrr en fyrir skömmu á því að öll stjörnu- myndunarsvæði í kringum okkur væru á yfirborði hennar. Ástæðan væri sú að keðjuverkun hefði orðið til að þrýsta ögnum og gasi, sem þarf til að til verði nýjar stjörnur, út í jaðar bólunnar. Victoria’s Secret ræður fyrirsætu með Downs-heilkenni Sofia Jirau frá Puerto Rico er fyrsta konan með Downs-heilkenni, sem verð- ur fyrirsæta hjá Victoria’s Secret. Hún kemur fram í auglýsingaherferð tísku- fyrirtækisins undir merkinu ástarský þar sem lögð er áhersla á fjölbreytni og að taka öllum opnum örmum. Örplast greinist í mannablóði Í grein sem birtist í tímaritinu Environment International í mars sagði að fundist hefði örplast í mannablóði. Um helmingur þátt- takenda í rannsókninni reyndist vera með fjöletýlenin tarapþalöt í blóði. Það er fjölliða, sem notuð er í vatnsflöskur og matarumbúðir. Vísindamenn höfðu áður komist að raun um að plast yrði á vegi fólks á margvíslegan hátt frá degi til dags, í mat, drykk og lofti. Lamaður maður fær dánaraðstoð á Ítalíu Federico Carboni fékk dánaraðstoð í júní. Carboni var 44 ára gamall og hafði verið lamaður í 12 ár eftir að hann lenti í bílslysi. Hann er fyrsti maðurinn, sem fær dánaraðstoð með löglegum hætti í landinu eftir að Hæstiréttur Ítalíu komst að þeirri niðurstöðu 2019 að slík aðstoð væri lögleg undir ákveðnum kringumstæðum. Meirihluti Ítala er katólskur og dánaraðstoð er mjög umdeild í landinu. Meta greinir frá fyrsta tekjufallinu í ársfjórðungsupp- gjöri frá því að fyrirtækið fór á markað 2012 Meta, móðurfyrirtæki Facebook, greindi frá því í júlí að tekjur fyrirtæksins hefðu dregist saman í fyrsta skipti í ársfjórðungsuppgjöri frá því að það fór á markað fyrir áratug. Fyrirtækið var eitt sinn kallað undrið á Wall Street. Um þessar mundir eiga sér stað miklar breytingar hjá félagsmiðlinum og er ætlunin að hasla sér völl á sviði þrívíddartækni í svokölluðum sýndarheimum eða metaverse. Fyrirtækið glímir einnig við þann vanda að notendum hefur fækkað og þeir eru að eldast auk þess sem samkeppnin hefur harðnað við smáforrit á borð við TikTok. Apple verður fyrst félaga á hlutabréfamarkaði til að ná þriggja billjóna dollara virði Í janúar fór andvirði hlutabréfa í Apple skamma stund yfir þrjár billjónir dollara (429 billjónir króna) og hafði það aldrei gerst áður hjá fyrirtæki á opnum hlutabréfamarkaði. Verð hlutabréfa í fyrirtækinu hefur lækkað aftur síðan þá og þurfa stjórnendur Apple og annarra fyrirtækja að glíma við styggð í efnahagslífinu vegna kórónuveirufar- aldursins og hárrar verðbólgu. Apple var líka fyrsta fyrirtækið til að ná því að verða einnar billjónar virði árið 2018 og tveggja billjóna virði árið 2020. Emma Howells/The New York Times Verslun Apple í hverfinu SoHo í New York. Silkiþrykk eftir AndyWarhol slær uppboðsmet í Bandaríkjunum Silkiþrykk af andliti Marilyn Monroe, „Shot Sage Blue Marilyn“, eftir Andy Warhol var slegið á 195 milljónir dollara (27,5 milljarða króna) á uppboði hjá Christie‘s í maí. Þetta er langhæsta verð, sem fengist hefur fyrir bandarískt listaverk á upp- boði. Fyrra metið var frá 2017 fyrir verk eftir Jean-Michel Basquiat. Konur dæma á heimsmeistaramóti karla Stéphanie Frappart frá Frakklandi varð fyrsta konan til að blása í flautuna á heimsmeistara- móti karla í knattspyrnu þegar hún dæmdi leik Costa Rica og Þýskalands í Katar í desember. Þetta var einnig í fyrsta skipti sem aðeins konur voru í dómarateyminu á leik á HM karla. Aðstoðardómarar Frapparts voru Neuza Bak frá Brasilíu og Karen Diaz Medina frá Mexíkó. Stephanie Frappart dómari hitar upp ásamt Neuzu Back og Karen Diaz Medina aðstoðardómurum fyrir leik Costa Rica gegn Þýskalandi á HM 1. desember. Matthew Childs/Reuters Dr. Christopher A. Shuman, UMBC/NASA gegnum AP Gervihnattamynd af Conger-íshellunni í febr- úar. Hún hrundi í mars. Íshella hrynur á austanverðu Suðurskauts- landinu Conger-íshellan hrundi um miðjan mars. Þetta er í fyrsta sinn, sem slíkt hrun á sér stað á austurhluta Suðurskautslandsins frá því að byrjað var að fylgjast með gangi mála þar í gegnum gervihnött árið 1979. Hrunið á þessum 725 km langa kafla íssins átti sér stað fyrr en vísindamenn áttu von á og í hluta álfunnar, sem ekki er talinn jafn viðkvæmur fyrir áhrifum loftslagsbreytinga og aðrir hlutar hennar. Suður-Kórea skýtur á loft gervihnetti með eigin eldflaug Suður-Kóreumönnum tókst að koma gervihnetti á braut umhverfis jörðu þegar þeir skutu á loft eldflauginni Nuri, sem geimrannsóknarstofnun suður-kóreska ríkisins smíðaði í samvinnu við kóresk fyrirtæki. Geimskotið var upphaf nýrrar geimáætlunar landsins og ríkir mikið stolt vegna hennar heima fyrir. Suður-Kóreumenn stefna á að lenda geimflaug á tunglinu fyrir 2030. Fyrstu heimasmíðuðu geimflaug Suður-Kóreu- manna, Nuri, skotið á loft frá Naro-geimmið- stöðinni í strandþorpinu Goheung. Geimrannsóknarstofnun Kóreu/AFP gegnum Getty Images

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.