Morgunblaðið - 31.12.2022, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 31.12.2022, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12.2022 65 Broti valdasprotans sjónvarpað Broti valdasprotans var sjónvarpað í fyrsta skipti á Bretlandi. Chamberlain lávarður braut sprotann, sem var tákn um vald Elísabetar II. drottingar, ellefu dögum eftir andlát hennar í september. Þessi táknræna athöfn, sem markar endalok valdatíma drottningar, fór fram í kapellu heilags Georgs í Windsor. Chamberlain lá- varður brýtur valda- sprota Elísabetar II. við útför hennar. Jonathan Brady/Reuters Fleiri Bandaríkjamenn reykja marijúana en sígarettur Í skýrslu frá Gallup, sem birt var í ágúst, kom fram að í Bandaríkjunum reykja nú fleiri marijúana en sígarettur. Það hafði ekki gerst áður. Um 16% þeirra, sem spurð- ir voru í könnun Gallup, kváðust reykja marijúana, en 11% sögðust reykja sígar- ettur. Dregið hefur jafnt og þétt úr sígarettureykingum frá því að þær náðu hámarki um miðjan sjötta áratuginn þegar 45% Bandaríkjamanna kváðust reykja. Katólikkar orðnir fleiri en mótmælendur á Norður-Írlandi Samkvæmt manntali, sem birt var í september, búa nú fleiri katólikkar á Norður-Ír- landi en mótmælendur. Það er í fyrsta skipti síðan Norður-Írland var stofnað með lagasetningu á breska þinginu árið 1920. Þessi tímamót hafa orðið tilefni vanga- veltna um að efna til þjóðaratkvæðis um að sameinast Írlandi á ný. Svifhjólið Xturismo fer í fyrstu opinberu flugferðina Japanskt sprotafyrirtæki sýndi svifhjól sitt í fyrsta sinn á bílasýningunni í Detroit í september. Svifhjólið nefnist Xturismo og getur verið á lofti í 40 mínútur. Það kostar rúmlega hálfa milljón dollara (rúm- lega 70 milljónir króna) þannig að ekki er það ókeypis. Ráðgert er að setja rafknúið svifhjól á viðráðanlegra verði á mark- að. Það mun væntanlega kosta 50.000 dollara (um sjö milljónir króna). NASA flaug geimflaug á loftstein í tilraunaskyni Bandaríska geimvísindastofnunin, NASA, flaug nýrri geimflaug með vilja á loftstein í september. Við áreksturinn breyttist stefna loftsteinsins. Þessi tilraun er hluti af rannsókn á því hvernig megi breyta stefnu loftsteina, sem gætu ógnað jörðinni. NASA nefnir verkefnið DART sem stendur fyrir The Double Asteroid Redirection Test og segir að þarna hafi farið fram „fyrsta geimvarnartilraunin“. Frakkar senda gas til Þýskalands Í fyrsta skipti dældu Frakkar náttúrulegu gasi beint til Þýskalands í staðinn fyrir rafmagn. Bæði lönd eru að laga sig að nýrri stöðu í orkumálum eftir að Rússar skrúfuðu fyrir gasflutninga til Evrópu, sem gagnrýnendur sögðu að væri ætlað að refsa Vesturlöndum fyrir refsiaðgerðir út af innrás Rússa í Úkraínu. Jarðneskar leifar Neanderdalsmanna finnast í helli í Rússlandi Vísindamenn fundu fyrstu jarðnesku leifar hóps Neanderdalsmanna í helli í Rúss- landi. Sagt var frá þessu í grein í tímaritinu Nature í október. Þessi fundur hefur gert kleift að ráðast í umfangsmestu erfðarannsókn sögunnar á hópi Neanderdalsmanna. Í hópnum voru 11 manns, þar á meðal faðir og dóttir hans. Talið er að dauða þeirra hafi borið að á svipuðum tíma fyrir 54 þúsund árum og þau hafi jafnvel dáið úr hungri. Heimsmeistaramót FIFA í knattspyrnu haldið í Mið-Austurlöndum í fyrsta sinn Katar hélt heimsmeistaramótið í knattspyrnu. Mótið hafði aldrei verið haldið áður þar í landi og ekki heldur í Mið-Austurlöndum. Þetta var líka í fyrsta skipti sem HM hefur verið haldið að vetri til á norðurhveli jarðar. Katar varði milljörðum dollara í að reisa leikvanga og styrkja innviði fyrir mótið. Konur skipaðar í háar stöður í Páfagarði og Al Azhar Í fyrsta skipti hafa þjár konur, systir Raffaella Petrini, systir Yvonne Reungoat og hin leika Maria Lia Zervino, verið skipaðar í nefndina í Páfagarði, sem veitir Frans páfa ráð um vænleg efni í biskupsstöður í katólsku kirkjunni. Og í Egyptalandi skipaði Al Azhar-moskan konu, Dr. Nahla al-Saeedy, ráðgjafa æðsta predikarans, Ahmeds el-Tayebs sjeiks. Hafði það ekki gerst áður í þúsund ára sögu þeirrar íslömsku stofnunar. Frans Páfi heilsar systur Raffaellu Petrini, sem er ítölsk nunna og fyrsta konan til að gegna næstæðstu stjórn- unarstöðu Páfagarðs. Vatican Media gegnum Reuters Í fyrsta skipti leiðir hörundsdökkur maður breska ríkisstjórn Rishi Sunak fæddist í suðurhluta Englands. Foreldrar hans fluttu frá nýlendum Breta í Austur-Afríku og afar hans og ömmur voru frá Punjab-héraði í Indlandi. Í október var brotið blað í sögunni þegar hann varð fyrsti hörundsdökki maðurinn til að verða for- sætisráðherra Bretlands. Hann er líka fyrsti forsætisráðherra landsins, sem er hindúa- trúar, og gæti jafnvel líka verið sá fyrsti til að gegna embættinu sem er auðugri en breska konungsfjölskyldan. Talið er að auðæfi Sunaks, sem er fyrrverandi bankamað- ur, og konu hans, sem er dóttir annars stofnanda tæknifyrirtækisins Infosys, nemi 730 milljónum punda (127 milljörðum króna). Eignir Elísabetar II. drottningar voru metnar á 370 milljónir punda (64 milljarða króna) samkvæmt ríkra manna tali blaðsins Sunday Times. Sunak var fjármálaráðherra í ríkisstjórn Borisar Johnsons. Hann tók við af Liz Truss, sem mikill styrr stóð um og var aðeins forsætisráðherra í 44 daga. Rishi Sunak, nýr leiðtogi breska Íhalds- flokksins, veifar fyrir utan kosningaher- búðir flokksins í London 24. október. Maja Smiejkowska/Reuters Smásjármynd í þrívídd af bakteríunni Thiom- argarita Magnifica, sem sjá má með berum aug- um. Hún er ekki aðeins um 5.000 sinnum stærri en flestar aðrar bakter- íur, heldur er bygging hennar flóknari. Jean-Marie Volland/Lawrence Berkeley National Labor/AFP gegnum Getty Images Vísindamenn greina frá bakteríum sem sjást með berum augum Vísindamenn birtu í júní grein í tímaritinu Science þar sem sagði frá tilveru baktería, sem hægt er að sjá án hjálpar smásjár. Með því var snúið á hvolf þeirri viðteknu hugmynd að bakteríur væru örverur, sem ekki sæjust með berum augum. Aðmeðaltali verður bakterían Thiomargarita magnifica 9.000 míkron eða 0,9 cm á lengd. Þótt Thiomargarita magnifica hafi fyrst fundist árið 2009 í fenjaviði í frumskógi á eyjunni Guadeloupe í Karíbahaf- inu, tók það vísindamenn sinn tíma að átta sig á að um bakteríu væri að ræða vegna þess hvað hún var furðulega stór. Vísindamenn ná mynd af svartholiVetrarbrautarinnar Vísindamenn birtu í maí fyrstu myndina af Sagittarius A*, svartholi í miðri Vetrarbraut- inni. Myndbirtingin var hluti af alþjóðlegu verkefni, sem nefnist á ensku Event Horizon Telescope. Árið 2019 birti sami hópur vísindamanna fyrstu myndina af svartholi í miðri stjörnuþokunni M87. Það svarthol er 1.500 sinnum stærra en Sagittarius A*. © 2022 The New York Times Company og Tricia Tisak
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.